Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1992, Page 18

Frjáls verslun - 01.02.1992, Page 18
FORSIÐUGREIN AF HVERJU AD SEUA BÚNADARBANKANN? Rétt fyrir áramót lýsti Davíð Oddsson forsætisráðherra því yfir á Alþingi að stefnt yrði að sölu Búnaðarbankans á þessu ári. Nokkru síðar var gerð skoð- anakönnun fyrir tilstuðlan Bún- aðarbankans þar sem kom fram að stór hluti þeirra, sem spurðir voru, hafa ekki myndað sér skoðun á því hvort selja beri Búnaðarbankann, en meirihluti þeirra, sem tóku afstöðu, voru sölunni andvígir. Einungis var spurt einnar spurn- ingar í þessari könnun: Ertu andvíg/ ur eða hlynnt/ur sölu Búnaðarbank- ans? Það vekur furðu að Búnaðar- bankinn skuli ekki hafa reynt að graf- ast fyrir um ástæður eða á annan hátt að fá skýra mynd af viðhorfum fólks gagnvart sölu á bankanum. Svar við einni spurningu sem þessari getur aldrei gefið heildstæða mynd af við- horfum fólks. Þótt aðferð forráða- manna Búnaðarbankans sé aðfinnslu- Greinarhöfundurinn, Þór Sigfússon, er rekstrarhagfræðingur verð þá er ljóst að viðhorf almennings gagnvart sölu bankans eru neikvæð enda ekki von á öðru á meðan kynning á einkavæðingu er lítil sem engin. Það er því mikilvægt að á næstu vikum og mánuðum verði fyrirhuguð einka- væðing Búnaðarbankans kynnt fyrir viðskiptavinum bankans og lands- mönnum öllum. Þessi grein er skrifuð í þeim tilgangi að varpa ljósi á tilgang og hugsanlegar leiðir við einkavæð- ingu Búnaðarbankans. Einkavæðing fer fram víða um heim og virðast sérfræðingar á einu máli um mikilvægi einkavæðingar í bankarekstri. Jafnframt virðist sem víðtæk pólitísk samstaða sé um nauð- syn einkavæðingar banka á meðan deilt er um einkavæðingu á öðrum sviðum, s.s. í heilbrigðiskerfínu. Svo virðist einnig sem forráðamenn einkavæddra ríkisbanka víða um heim séu í forystuhlutverkinu fyrir fram- gangi einkavæðingarinnar og alls ekki í hópi úrtölumanna, enda engin fagleg rök með eign ríkis á bönkum. Eðlilegt er að forráðamenn Búnaðarbankans verði mun meira áberandi í forystu einkavæðingar Búnaðarbankans og fylgi þannig forverum sínum í öðrum löndum. RÖKIN FYRIRSÖLU Á næstunni þurfa rökin fyrir sölu Búnaðarbankans að vera tíunduð svo almenningur fái skýrari mynd af til- gangi einkavæðingar Búnaðarbank- ans. Eftirfarandi rök má færa fyrir sölu Búnaðarbankans. 1. Hagkvæmni í fj ármálakerfinu í fyrsta lagi er grundvöllur skilvirks hagkerfis hagkvæmt fjármálakerfi. Hagkvæmt fjármálakerfi veitir nú- tíma hagkerfum möguleika á auknum vexti og framförum. Fjölmargar rann- sóknir sýna að ríkisfyrirtæki eru ekki eins hagkvæm í rekstri og einkafyrir- tæki og ríkisfyrirtækin eru einnig seinni á sér með nýjungar. Saman- burður var gerður á ríkisbanka og einkabanka í Ástralíu. Þessir bankar bjuggu við sömu aðstæður og engar sérstakar kvaðir voru á ríkisbankan- um. Einkabankinn reyndist mun hag- kvæmari í rekstri en ríkisbankinn. Dr. David Davies, prófessor við Duke háskólann, sem unnið hefur að áðurnefndum rannsóknum, segir ástæðuna m.a. þá að forráðamenn ríkisbankans hafi „komið málum bankans þannig fyrir að þeir hafi haft þægilegra og mun erfiðisminna k'f ... og að fyrirtæki þeirra hafi vaxið hrað- ar og haft fleiri starfsmenn.“ Með þessu er ekki gefið í skyn að Búnaðarbankinn sé verr rekinn en til dæmis íslandsbanki — til þess þyrfti frekari rannsókn. Dæmin sýna þó að í ríkisrekstri er hætt við að hagræðing- arsjónarmið séu látin víkja fyrir sér- hagsmunasjónarmiðum. Ef bornar eru saman rekstrartölur ríkis- og einkabanka í Noregi má sjá að rekstrartölur úr rekstrinum koma mun verr út hjá þeim fyrmefndu. Hlutfall launakostnaðar miðað við heildartekjur var tvöfalt hærra hjá ríkisbönkum en hjá einkabönkunum og sömu sögu var að segja í sambandi við útlán, tekjur og hagnað norskra ríkisbanka í samanburði við einka- banka (undirritaður notaði tölur frá OECD frá 1964-1977). Ekki er raun- hæft að gera smanburð sem þennan hérlendis vegna þess hversu skamm- an tíma íslandsbanki, sem er aðal keppinautur ríkisbankanna, hefur verið starfræktur. 18

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.