Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1992, Síða 22

Frjáls verslun - 01.02.1992, Síða 22
FORSIÐUGREIN ENGIN VIÐSKIPTALEG RÖK ERU FYRIR SÖLU BÚNADARBANKANS EFTIR GUÐNA ÁGÚSTSSON, ALÞINGISMANN Fyrir skömmu heyrði ég viðtal við ungan íslending sem hefur getið sér mikils frama erlendis, Ólaf Jóhann Ólafsson, sem er einn af framkvæmdastjórum jap- anska fyrirtækisins SONY í Bandaríkjunum. Þessum unga hógværa manni er spáð enn meiri frama innan þessa risa fyrirtækis. Ólafur Jóhann var spurður að því í sjónvarpi hvað hann myndi gera ef honum yrði nú falið það verk að reka íslenska þjóðfélagið. Ungi maðurinn hugsaði sig um litla stund og sagðist ekki geta svarað því svo auðveldlega, hann yrði að kynna sér íslensk efnahagsmál. Síðan bætti hann við á þá leið að hann myndi ekki raska því eða breyta sem vel hefði gefist í þjóð- félaginu á sl. árum eða áratugum. Þessi orð unga athafnamanns- ins koma mér æ oftar í hug þegar rætt er um að breyta Búnaðar- banka íslands í hlutafélag og selja hann síðan og jafnvel á hálfvirði eins og fjármálaáðherrann sagði í haust. Búnaðarbankinn er ekki ríkis- fyrirtæki í merkingu þess orðs, þ.e. fyrirtæki sem er kostnaðar- baggi á ríkissjóði. Búnaðarbankinn er sjálfstæð stofnun í eigu allra landsmanna, háður þjóðinni og Guðni Ágústsson er formaður bankaráðs Búnaðarbankans. viðskiptamönnum sínum um allt land en ekki örfáum eigendum hlutabréfa stórum eða smáum. Það stjórnskipulag að bankaráð eru kosin af Alþingi og gegni eftir- litshlutverki fyrir hönd löggjafar- valdsins skapar hlutleysi. Síðan fer viðskiptaráðherra fyrir hönd fram- kvæmdavaldsins ásamt bankaráð- inu með æðstu stjóm bankans. Daglegur rekstur er síðan í höndum og á ábyrgð bankastjórnar. Ekkert bendir til að betri og hæfari stjórn- endur verði ráðnir og mat á lánsum- sóknum batni þó Búnaðarbankinn yrði seldur. Hver er staða Búnaðarbankans í dag? Hann er rekstrarlega sterkur, skilar arði og hundruðum milljóna í skatttekjur í ríkissjóð árlega. Öllum skilmálum viðskiptabankalaga er fullnægt. Vöxtur innlána er meiri en í öðrum peningastofnunum, lausa- fjárstaða sú besta í bankakerfinu og eigið fé á fjórða milljarð. Bankinn hefur tryggt starfsfólki bankans betri lífeyrisréttindi en gerist, þann- ig að bankinn sjálfur hefur leyst þann fortíðarvanda sem víða er í líf- eyrismálum. Búnaðarbankinn hefur sýnt það á síðustu misserum að hinn trausti rekstur hefur gert það að bankinn greiðir síst lakari vexti á sparifé og þarf minni vaxtamun en gerist og er Ieiðandi í vaxtalækkunum. Hvað knýr ráðamenn þjóðarinnar til að raska eða taka áhættu með svo sterkt fyrirtæki á jafn viðsjárverð- um tímum og nú ríkja í efnahagsmál- um okkar? Einkabankarnir á Norðurlöndum eru víti til varnaðar og hafa á síðustu misserum orðið gjaldþrota einn af öðrum og ríki viðkomandi landa orð- ið að hlaupa undir bagga. Hér segja ráðherramir að ríkið eigi áfram að ábyrgjast spariféð þó bankinn væri seldur. Ríkisbankar fá hagstæðari lán erlendis en einka- bankar. Hefur hin skuldsetta ís- lenska þjóð efni á að raska slíku? Það er von að spurt sé hver væri tilgangurinn með sölu Búnaðar- bankans. Ekkert bendir til þess að aðrir myndu reka bankann á hag- kvæmari hátt en gert er. Sala hluta- bréfa nú í svo sterku fyrirtæki myndi rústa veikburða hlutabréfa- markað sem hér er að þróast og koma í veg fyrir að hin mörgu mikil- vægu fyrirtæki sem eru að styrkja eigin stöðu næðu árangri. Verð- mæti Búnaðarbankans skiptir litlu í 22

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.