Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1992, Side 28

Frjáls verslun - 01.02.1992, Side 28
SAMGONGUR Útgjöld til vegamála Samkvæmt lögum nr. 3/1987 hefur Vegageröin tekjur af mörkuöum tekjustofnum, sem eru bensíngjald og þungaskattur. BEINT STRIK Á KJALARNES Það skal strax tekið fram að þessar hugleiðingar blaðamanns eru algjör- lega á hans ábyrgð og engu er hér slegið föstu um það hvenær ráðist verður í þær endurbætur sem hér eru gerðar að umtalsefni. Hins vegar er stuðst við upplýsingar frá Vegagerð ríkisins, embætti borgarverkfræð- ings í Reykjavík og aðrar heimildir sem tiltækar voru. Ein stærsta framkvæmd, sem fyrirhugað er að ráðast í á höfuðborg- arsvæðinu á næstu árum, er bygging nýs vegar frá Reykjavík norður um til Kjalarness. Þessi framkvæmd er á aðalskipulagi Reykjavíkur 1990-2010, sem nú bíður staðfestingar. Sam- kvæmt þeim hugmyndum, sem fyrir liggja, er ætlunin að leggja hraðbraut þessa frá Holtagörðum yfir Klepps- vík, um Gufunes yfir Eiðsvík og aust- urenda Geldingarness, yfir á Gunnu- nes, um Alfsnes, þvert yfir utanverð- an Kollafjörð og tengja hana loks núverandi þjóðvegi á Kjalarnesi á móts við Varmhóla. í dag er reiknað með að þessi fram- kvæmd kosti um 4 milljarða króna eða álíka mikið fé og Vestfjarðagöng sem nú eru í byggingu. Munurinn er hins vegar sá að um þetta mannvirki myndu fara þúsundir bíla á sólarhring og það myndi stytta akstursleiðina norður í land um tæplega 20 kíló- metra. Ahrif þessarar tengingar á byggðaþróun höfuðborgarsvæðisins yrðu gífurleg. Hún myndi án efa styrkja byggð í Geldingarnesi og virka sem vítamínsprauta á fyrirhug- aða byggð í Alfsnesi. Með þessari sjávarbraut myndi Alfsnesið verða komið í svipaða akstursfjarlægð frá miðborg Reykjavíkur og Hafnarfjörð- ur er nú. Fyrstu hugmyndir um þessa nýju samgönguþót út frá höfuðborgar- svæðinu komu fram á 8. áratugnum en þóttu þá býsna háleitar og óraun- hæfar. í samgönguráðherratíð Matt- híasar Á. Mathiesen var rykið dustað af þeim og nefnd skipuð til að gera ffekari tillögur. Nú er þessi fram- kvæmd að komast á áætlun og áform- að að ráðast í hana á næstu 10-15 árum. Meginástæðan fyrir áhuga Reykjavíkurborgar á þessari fram- kvæmd er uppbygging norðursvæða borgarinnar, þ.e. í Grafarvogi, Korp- úlfsstaðalandi og Geldinganesi. Þá hefur tilkoma Sorpu í Gufunesi og urðunarstaður sorps á Álfsnesi þrýst á um hagkvæmni þess að ráðast í þetta mikla mannvirki. GÖNG UNDIR HVALFJÖRÐINN Nokkru norðar á því landakorti, sem við erum að skoða í þessari grein, eða nánar tiltekið í Kjós og Hvalfirði, er verið að undirbúa mikla framkvæmd sem styttir leiðina vest- ur og norður um land. Þar er að sjálf- sögðu átt við göng undir Hvalfjörð. Nú er tekist á um það hvar verði nákvæmlega farið undir fjörðinn en um það atriði eru Vegagerð ríkisins og hlutafélagið Spölur ekki sammála þessa stundina. Tvær leiðir koma þar til greina en hvor kosturinn, sem verður fyrir valinu, breytir nær engu um styttinguna sem verður á norður- leiðinni. í báðum tilvikum styttist hún um 48 kílómetra og er þá átt við leið- ina frá syðri gangaopinu við Saurbæ í Kjós og að afleggjaranum til Akra- ness, norðan Akrafjalls. Vestlendingar hafa margir mikinn áhuga á því að leggja veg frá nyrðra gangaopi vestur fyrir Akrafjall og koma þar með Akranesi í beina teng- ingu við hringveginn. Þá reikna þeir Hlutfall til bifreiðaskatta til vegagerðar 1984-1992 * Skv. áætlun 28

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.