Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1992, Side 29

Frjáls verslun - 01.02.1992, Side 29
yfikoÁyft Viituref fariu/^ eU'k«r ilbar V ^HolUufarAar ,RÉYKJAYÍ ■fcu<|mndi MtLhújí&!&&%W- KAfUSKjÓL'V^ !ELTJARNARNESS C«ÍMSST*CAHOl J ir (!41goJvrai HandhUfc <# m ARFJÖRÐU með að þaðan verði nýr vegur lagður frá Akranesi vestur yfir Grunnafjörð á brú og tengjast hringveginum á Fiski- lækjarmelum. Af hálfu Vegagerðar- innar hefur hins vegar verið bent á að þessi leið svari alls ekki kostnaði því nýr vegur yfir Grunnafjörð kosti hundruð milljóna króna og hafi ekki í för með sér neina styttingu á hring- veginum. Þá benda þeir á að vegurinn til Akraness undir Akrafjalli sé góður og réttlæti ekki mikla fjárfestingu annars staðar. Því er nokkuð ljóst að hringvegartenging frá nyrðri munna sjávarganga mun verða austan Akra- fjalls enda þótt vissulega þurfi að end- urbæta tenginguna frá göngunum vestur um til Akraness. Hvað varðar umtalsverðar umbæt- ur á veginum frá Reykjavík norður til Akureyrar er ljóst að göng undir Hvalfjörð eru næst okkur í tíma og má raunar fullyrða að af framkvæmdum verði á næstu misserum. Gangi spár eftir eru líkur á því að tilkoma veg- ganga undir Hvalfjörð hafi í för með sér um 30% meiri aukningu á umferð um þetta svæði en annars yrði. Meðalspá um umferð gerir ráð fyrir 2.500 bflum á sólarhring árið 2025 um væntanleg göng en innan við 1.700 bflum ef ekki yrði úr framkvæmdum. Þess má geta að með Hvalfjarðar- göngum verður álíka löng leið frá Reykjavík til atvinnusvæðisins Akra- nes-Borgarnes eins og nú er til Ár- borgarsvæðis, þ.e. svæðis sem sam- anstendur af Hveragerði, Ölfusi, Sel- fossi, Stokkseyri og Eyrarbakka. 7.500 manns búa á svæðinu fyrir vestan en 8.000 manns á Árborgar- svæði. Hvaða leið sem Spölur hf. og Vega- gerðin sættast á undir Hvalfjörðinn benda áætlanir til þess að mannvirkið ásamt tengingum við hringveginn muni kosta um 5 milljarða króna og eins og kunnugt er ætla menn að ná því fjármagni inn með vegatollum. LANGT í AÐGERÐIR NYRÐRA Talsverðar umbætur þarf að gera á þjóðveginum við Bifröst í Borgarfirði og fyrir liggur að malbika og ganga endanlega frá tæplega 5 kflómetra spotta í Hellistungum, neðan Forn- ahvamms. Næsti möguleiki á veru- legri styttingu hringvegarins skal nú Með sjávarbraut frá Kleppsvík til Kjalarness myndi umferð um Vestur- landsveg stórlega minnka og leiðin til Akureyrar styttast um 20 kílómetra. nefndur en þar er átt við nýjan veg um Reykjabraut, þ.e. frá Giljá með Svínavatni og tenging við núverandi veg við Æsustaði, vestan Húnavers. Ekki er hægt að segja að miklir möguleikar séu á þessari styttingu leiðarinnar norður til Akureyrar en vissulega hefur hún verið til umræðu. Krókurinn upp til Blönduóss er um 40 kflómetrar en með þessari þverun, sem áður er nefnd, mætti stytta norðurleiðina um 15 kflómetra eða svo. Talsvert margt mælir þó á móti því að þessi leið verði valin og viðbúið að menn telji aðrar umbætur á þjóðvega- kerfinu brýnni. Kostnaður við þessa framkvæmd yrði vart undir 1000 millj- ónum króna, m.a. þar sem þyrfti að leggja nýja brú á Blöndu. Þá er vegur- inn beggja vegna Blönduóss í ágætu ásigkomulagi og ekki þörf á aðgerðum þess vegna. Loks hefur sú skoðun verið uppi meðal Húnvetninga að þessi stytting leiðarinnar norður um , myndi kippa Blönduósi úr sambandi við aðalumferðina og veikja staðinn sem vaxandi þjónustumiðstöð í hér- aðinu. Fjórði möguleikinn á styttingu hringvegarins á þessum kafla er í Skagafirði. Þar er talinn möguleiki á því að leggja nýjan veg úr Vatns- skarði, ofan Varmahlíðar og til aust- urs yfir Héraðsvötn í átt til Silfra- staða. Þessi framkvæmd yrði nokkuð dýr, m.a. vegna brúargerðar yfir Héraðsvötn og mun kostnaður vart verða undir einum milljarði króna. Stytting norðurleiðarinnar yrði um 7 kflómetrar þegar allt er talið. Auk þessara samgöngubóta, sem þó verð- ur að teljast ólfldegt að í verði ráðist á næstu árum, er verið að undirbúa lokafrágang tæplega 6 kflómetra langs vegarkafla í Vatnsskarði en af Kolla,fjörð u r I uu.Uí, Orótlutatiyar c§* l.ompinkr r ReftnLtadur 4 'yéiSy*m™ar >|j

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.