Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1992, Síða 30

Frjáls verslun - 01.02.1992, Síða 30
Ef aksturstími frá Reykjavík til Akureyrar styttist um fjórðung er ekki vafi á að áhrifin á byggð úti á landi munu verða mikil. framkvæmdum verður þó ekki á þessu ári. Loks má minna á að nú standa yfir framkvæmdir við veginn um Öxnadal en að þeim loknum verður skotspölur um þann síðasta hlekk í vegakeðjunni til höfuðstaðar Norðurlands. Á FJÓRÐUNGISTYTTRITÍMA Með þessum aðgerðum á norður- leiðinni má stytta hringveginn frá Reykjavík til Akureyrar um 90 kíló- metra. Þá yrðu ekki lengur 430 km. til Akureyrar heldur einungis 340 km. og munar auðvitað um minna. Hér er um fimmtungs styttingu á vegalengd að ræða. Hins vegar má reikna með að þessar aðgerðir auk umbóta, sem þegar hefur verið ákveðið að ráðast í, geri það að verkum að aksturstíminn styttist um a.m.k. fjórðung. Ekki er vafi á því að ef til þessara aðgerða verður gripið á næstu árum muni þær hafa í för með sér afdrifarík- ar afleiðingar fyrir verslun og við- skipti á Vestur- og Norðurlandi. Hvort þau áhrif verða til að styrkja byggðirnar skal ósagt látið því vissu- lega hefur sú skoðun komið fram að betri vegtenging við höfuðborgar- svæðið geri mönnum auðveldara að sækja þangað verslun í stað þess að skipta við heimamenn. A hinn bóginn stækkar auðvitað þjónustusvæði byggðanna úti á landi og ferðamanna- straumur eykst. Þá er vert að benda þeim, sem hafa áhyggjur af „straumn- um suður“ með tilkomu betri sam- göngumannvirkja, á að þau eru þeim kostum búin að geta flutt umferð í báðar áttir! Það hefur stundum verið sagt að sauðkindin finni alltaf bestu leiðina og það þekkja sveitamenn vel af löngum kynnum við þessa skepnu sem hefur fylgt okkur frá landnámstíð. Eftir þær breytingar á norðurleiðinni, sem hér hafa verið gerðar að umtalsefni, má segja að hún minni á sauðagötu. Um frekari styttingar yrði tæpast að ræða að neinu marki og einungis hægt að flýta för manna með breikkun vegar- ins á þeim stöðum sem flöskuhálsar vilja myndast. Akstur á góðum vegi er ekki eini flutningsmátinn í nútíma þjóðfélagi. Innanlandsflug Flugleiða og smærri félaga til Norðurlands byggir fyrst og fremst á þjónustu við Akureyri og nærliggjandi byggðir. Ekki er vafi á því að með tilkomu þessarar stytting- ar á norðurleiðinni er hætt við að flug- félögum daprist flugið og sá kostur verði ekki jafn álitlegur og nú er. í FJARLÆGRIFRAMTÍÐ Miðað við ásókn eftir fjármagni til vegagerðar og óunninna verka á því sviði víða um land, sérstaklega á norðausturhorni landsins, er vart við því að búast að við upplifum styttingu leiðarinnar á milli Akureyrar og Reykjavíkur um 90-100 kílómetra. Af þessum fjórum meginkostum í þeim efnum eru Hvalfjarðargöng þau sem næst virðast í tíma, sjávarbraut frá Reykjavík til Kjalamess gæti nýst okkur upp úr aldamótum að hluta til en tveir síðmefndu kostimir eru meira fræðilegir möguleikar en svo að þá sé hægt að staðfesta í tímatal- inu. Á hinn bóginn er gaman að láta sig dreyma og sú tíð hlýtur að koma að róttækari breytingar geti orðið á vegakerfmu en orðið hafa síðustu ár. Þar hljóta menn í auknum mæli að líta til fjármögnunar með vegatollum líkt og ætlunin er að gera í Hvalfirði. Rík- iskassinn er tómur og það er nauð- synlegt fyrir stjórnmálamenn að átta sig á því að í þessum efnum eru tveir kostir fyrir hendi: Að íjármagna allar framkvæmdir með ríkisfé og bíða langt fram á næstu öld eftir arðbær- um samgöngumannvirkjum víða um land eða nýta sér gjaldtöku af vegfar- endum á takmörkuðum svæðum og eiga þess um leið kost að nýta hag- kvæmni verksins fyrr. Raunar er forvitnilegt að skoða töl- ur um tekjur ríkissjóðs af bifreiðum hin síðari árin og bera þær saman við útgjöld til vegamála. Samkvæmt nýj- um fjárlögum fyrir þetta ár er gert ráð fyrir tæplega 16 milljörðum króna í skatta af bílum en að útgjöld til vega- mála nemi aðeins 5.5 milljörðum á árinu. Verulegur hluti þessara miklu tekna ríkissjóðs er í formi gjalda sem beinlínis hafa verið lögð á til að fjár- magna vegakerfið. Því miður hefur um og innan við þriðjungur skattanna skilað sér til framkvæmda hin síðari árin. Framkvæmdavaldi ríkisins er því miður á stundum illa treystandi til að skila til baka því fjármagni sem lög- gjafmn hefur gefið því heimild til að innheimta. Þess vegna verða fyrir- tæki og landshlutasamtök að taka vegamálin í sínar hendur og afla sér aukinna heimilda til að leysa vandann á eigin spýtur. Þar liggja hagsmunir byggðanna og þar eru óunnin verkefni fyrir vannýttan tækjakost verktaka- fyrirtækjanna. Eða með öðrum orðum: Er einhver ástæða til að blanda ríkissjóði í málið?

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.