Frjáls verslun - 01.02.1992, Qupperneq 35
Til að auka verðmæti íslensks útflutnings þarf að komast eins nálægt markaðnum og kostur er. íslendingar eiga og
reka fiskréttaverksmiðjur í Bandaríkjunum og Evrópu þar sem íslenskur fiskur er unninn í neytendapakkningar,
tilbúinn í hendur endanlegra kaupenda. I anda raunsærrar bjartsýni þarf að ganga enn lengra á þessu sviði til að
auka verðmæti sjávarafurða okkar.
var að álversframkvæmdum yrði
slegið á frest sl. haust, sagði Ellert B.
Schram eftirfarandi í ritstjórnargrein
DV:
„Hættan er sú að þjóðin leggist í
þunglyndi og svartsýni nái tökum á
íslandi. En neyðin kennir naktri konu
að spinna og nú er lag til að nýta afla
betur og auka framleiðni. Nú er tæki-
færi til að líta til annarra átta í stór-
iðjumálum, jafnt sem öðrum fram-
leiðslugreinum. Nú þarf að telja kjark
í þjóðina. Nú þarf forystu.“
Þetta er allt rétt. Full ástæða er til
að lýsa eftir forystu. Forystu, sem
leggur áherslu á að auka verðmæta-
sköpun í þjóðfélaginu og afla verð-
mætanna áður en þeim er ráðstafað.
Það þarf í stjórnmálum og atvinnulífi
forystu sem hefur skilning á þessum
grundvallaratriðum.
Sem betur fer hafa menn aðeins
verið að vakna til umhugsunar um
þessi mál nú í vetur. Mikið er nú rætt
„íslendingar eru að dragast
aftur úr nágrannaþjóðunum á
Vesturlöndum. Virtir
hagfræðingar hafa boðað okkur
það að íslendingar verði
fátækasta þjóð Vestur-Evrópu
um næstu aldamót haldi
efnahagsþróunin svona áfram
hér á landi.“
um betri nýtingu sjávarfangs, talað er
um að rjúfa kyrrstöðu í atvinnulífinu
og menn hafa vakið athygli á að margt
smátt gerir eitt stórt, þ.e. að smærri
fyrirtækjum sé ekki gleymt og þess
verði gætt að þau fái tækifæri til að
skapa þjóðinni sem mest verðmæti
því fleira skiptir máli en sú starfsemi
sem aflar gjaldeyris — einnig innlend-
ur iðnaður sem þjónar heimamarkaði
og sparar okkur gjaldeyri.
í ANDA RAUNSÆRRAR BJARTSÝNI
Einnig heyrist nú nefnt að efla þurfi
þjóðina til dáða með „raunsærri bjart-
sýni“. Dr. Vilhjálmur Egilsson, hag-
fræðingur og alþingismaður, hefur
síðasta orðið í þessari umfjöllun, en
hann talar um nauðsyn bjartsýni sem
sé byggð á raunsæi:
„Nú eru hins vegar breyttir tímar
og komið að því að við þurfum að
sækja hagvöxt og bætt lífskjör með
betra skipulagi í okkar atvinnu- og
viðskiptalífi, með meiri aga í opinber-
um fjármálum og með því að sækja
fram á erlendum mörkuðum.
Þá er bjartsýni að sjálfsögðu nauð-
35