Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1992, Qupperneq 42

Frjáls verslun - 01.02.1992, Qupperneq 42
SKATTAMAL Ólafur Ragnar Grímsson skipaði nefnd árið 1989 til að gera tillögur um skatt á fjármagnstekjur. Margvísleg form eigna bera vexti eða fjármagnstekjur, svo sem inn- stæður í innlánsstofnunum og margs- konar skuldabréf og önnur verðbréf. Þessar eignir bera ýmist, nafnvexti, vexti og verðbætur, vexti og gengis- mun, arð eða hafa ákveðið verðgildi eða gengi á hverjum tíma. Það skal undirstrikað að vaxtatekj- ur atvinnurekstrarins, bæði félaga og einstaklinga í atvinnurekstri, eru og hafa verið skattskyldar. Það eru því fyrst og fremst vaxtatekjur einstakl- inga utan atvinnurekstrar sem hafa verið skattfrjálsar og ætlunin er að slattleggja. Ekki liggja fyrir nákvæm- ar upplýsingar um það hvemig skipt- ing hins nýja skattstofns yrði milli t.d. tekna af bankainnstæðum og af hinum ýmsu tegundum skuldabréfa, svo sem af spariskírteinum, bankabréf- um, hlutdeildarbréfum og öðrum markaðsverðbréfum, en þessi bréf eru með fjölbreytilegum vaxta- ákvæðum. Engin skráning er nú til á eigendum þessara bréfa. í seinni tíð hafa kaupendur þeirra verið nafn- skráðir hjá þeim peningastofnunum og verðbréfafyritækjum, sem selt hafa bréfin, en bréfin geta síðan geng- ið kaupum og sölum milli aðila án þess að eigendaskiptin séu skráð hjá útgef- endum. NAFNVEXTIR - RAUNVEXTIR Sú nefnd, sem vann á vegum fyrri Friðrik Sophusson skipaði á síðasta ári nefnd um samræmda skattlagningu eigna og eignatekna. ríkisstjórnar, gerði ráð fyrir því að skattlagning fjármagnstekna miðaðist við raunvexti og svo virðist sem nefndin, sem starfar að málinu nú, hafi einnig stefnt á raunvaxtaskatt. Æskilegt væri að miða útreikning skattstofnsins við raunvexti, en hér er um mjög erfitt mál að ræða í fram- kvæmd. Raunar tel ég að nær útilok- að sé að koma á slíkri skattlagningu svo vit verði í. Sjálfsagt er mögulegt að gera innlánsstofnunum að reikna út raunvexti fyrir innstæðueigendur, en raunvaxtaútreikningur á ýmsum öðrum eignum yrði eigendum þeirra og skattyfirvöldum ofviða. GREIDDIR VEXTIR - ÁFALLNIR VEXTIR Svo virðist sem stefnt sé að skatt- lagningu vaxtatekna við greiðslu vaxtanna. Skattur af vöxtum af inn- stæðum í innlánsstofnunum yrði þannig innheimtur árlega eða jafnóð- um og vextirnir falla á innstæðurnar en skattur af vöxtum af skuldabréfum yrði innheimtur við greiðslu þeirra. Þannig kæmu tekjur af afborgunar- lausum skuldabréfum, t.d. kúlubréf- um eða hlutdeildarbréfum, ekki til skatts fyrr en eftir fjölda ára eða við innlausn. Margar spurningar vakna varðandi þessa aðferð. Á sá, sem innleysir bréfið hjá útgefanda, að geiða skatt af vöxtum allt frá útgáfu þess þótt marg- ir eigendur hafi verið að því á tímabil- inu eða á hver eigandi að reikna út tekjur og skila skatti vegna síns eign- arhaldstíma? Er samræmi í því að skattur sé greiddur af sumum vöxtum jafnóðum og þeir falla til, svo sem af bankainnstæðum, en af ýmsum teg- undum skuldabréfa ekki fyrr en eftir fjölda ára? Er ekki hætt við að tíma- munur á skattgreiðslum hafi áhrif á val manna á spamaðarformum? Með skattlagningu áfallinna vaxta í stað greiddra vaxta er unnt að ná meira samræmi í skattlagningu rnilli hinna ýmsu eignaforma, auk þess sem skatttekjurnar falla jafnar til. Þeir, sem hafa andmælt þessari að- ferð, hafa bent á að áfallnar tekjur myndu skattleggjast án þess að þær væru greiddar. Á móti má segja að verðbréf, sem ekki er greitt af árlega eru yfirleitt markaðsbréf sem gera það mögulegt að innleysa hluta bréf- anna og breyta þeim þannig í hand- bært fé. ÁLAGNING OGINNHEIMTA - HUGMYNDIR Ljóst er að fleiri en ein leið koma til greina við álagningu hins umtalaða skatts og við innheimtu hans, svo sem álagning og innheimta við greiðslu vaxtanna, þ.e. staðgreiðsla, eða álagning og innheimta eftirá á grundvelli skattframtals eigenda. Lít- um nánar á nokkra þætti málsins: ★ Skatturinn þarf að vera hlutlaus gagnvart hinum ýmsu sparnaðar- formum. Ríkisskuldabréf og vextir af þeim ættu að lúta sömu reglum og aðrar eignir og eignatekjur. ★ Komi til skattlagningar vaxta- tekna hefði verið æskilegt að miða við raunvexti, en það tel ég óraunhæft vegna erfiðleika við framkvæmdina. Það er í raun mikil bjartsýni að ætla framteljendum og skattyfirvöldum að glíma við slíkan útreikning. Skattlagn- ing nafnvaxta verður því að teljast eina leiðin við núverandi aðstæður með lægra skatthlutfalli en gildir um aðrar tekjur. Aukin verðbólga myndi hins vegar raska þessum möguleika. ★ Mikilvægt er að gert verði ráð fyrir skattfrelsi upp að ákveðnu marki eigna og tekna, en með því myndu ýmsar eignir falla brott sem ekki bera jákvæða raunvexti. 42
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.