Frjáls verslun - 01.02.1992, Side 45
„Á sama hátt og starfsmenn geta notað það sem afsökun fyrir slælegum vinnubrögðum að fyrirtækið sé vonlaust,
geta fyrirtæki kallað frarn góð vinnubrögð með jákvæðu andrúmslofti."
Viðskiptadeild Háskóla íslands er
valnámskeið á fjórða ári sem nefnist
„stjómun starfsmannamála". Þar er
Qallað um samskipti við starfsmenn,
frammistöðumat, laun, vinnurétt ofl.
Ólafur Jón Ingólfsson starfs-
mannastjóri Sjóvá-Almennra er kenn-
ari á þessu valnámskeiði. Hann segir
að námskeiðið sé hugsað sem undir-
búningur fyrir skrifstofustjóra og aðra
þá sem þurfa að taka á starfsmanna-
tengdum málum. „Þegar fyrirtæki
eru komin upp fyrir ákveðna stærð
taka starfsmannastjórar við og er þá
oft miðað við 100 manna vinnustaði.
Erlenda þumalputtareglan er hins
vegar sú að starfsmannastjórn sé 2%
af starfsmönnum. Þar sjá því tugir
manna um starfsmannamál í stærstu
fyrirtækjunum. Samkvæmt þeirri
reglu ætti að vera einn starfsmanna-
stjóri í fimmtíu manna fyrirtæki, tveir
í hundrað manna fyrirtæki o.s.frv.,“
sagði Ólafur Jón.
AÐVITAHVAR MAÐUR STENDUR
Ólafur sagði að stjórnendur ís-
lenskra fyrirtækja hafi verið tregir til
að gefa starfsmannamálum eins mik-
inn gaum og tíðkast erlendis. Þetta sé
þó að þreytast og víða séu starfs-
mannastjórar starfandi. Einnig hafa
menn verið ráðnir til að sinna sér-
stökum þætti starfsmannastjórnar.
„Flugleiðir réðu til dæmis á sl. ári
„Þar höfðum við kröfu
keppnisíþrótta að leiðarljósi,
þar sem aðeins var um tvennt
að ræða - sigra eða tapa.
Starfsmenn fyllast keppnisskapi
og metnaði fyrir hönd
fyrirtækisins, eins og um
liðsheild sé að ræða.“
mann sem á að koma á frammistöðu-
mati, sem þó er ekki launatengt. Slíkt
mat er hugsað sem umbun og á að
veita starfsmanni öryggi. Hann fær
að vita hvaða álit fyrirtækið hefur á
honum og getur sagt hvers hann
væntir. Það líður öllum vel ef þeir vita
hvar þeir standa. Fólki fmnst einnig
gott að fá að vita hvort það eigi mögu-
leika á að vinna sig upp ef það stendur
sig vel,“ sagði Ólafur Jón.
í sama streng tók Jóhann Ingi
Gunnarsson sálfræðingur sem hefur
haldið námskeið um starfsmannamál
fyrirtækja. „Til að ná árangri þarf
ákveðna hæfileika og viðhorf til
starfsins og lífsins. Þetta þarf að til-
einka sér og í því felst ákveðinn agi.
Með því að laða það besta fram í
hverri manneskju nær hún að
blómstra. Ef fyrirtæki skapa skilyrði
til þess, eignast þau góða starfsmenn
sem vilja leggja sig fram um að ná
árangri,“ sagði Jóhann Ingi.
A sama hátt og starfsmenn geta
notað það sem afsökun fyrir slæleg-
um vinnubrögðum að fyrirtækið sé
vonlaust, geta fyrirtæki kallað fram
góð vinnubrögð með jákvæðu and-
rúmslofti.
„Ég vann að slíku verkefni fyrir
Lufthansa í Þýskalandi," sagði Jóhann
Ingi. „Þar höfðum við kröfu keppnis-
45