Frjáls verslun - 01.02.1992, Page 46
VINNUSTAÐIR
íþrótta að leiðarljósi, þar sem aðeins
er um tvennt að ræða, — að sigra eða
tapa. Starfsmenn fyllast keppnisskapi
og metnaði fyrir hönd fyrirtækisins,
eins og um liðsheild sé að ræða. í boði
eru störf sem reyna á fólk, það fær
ögrun því stjómendur búa til hungur í
mönnum eftir því að ná árangri.“
STARFSMENN LAÐA AÐ VIÐSKIPTAVINI
En það getur verið jafn erfitt að
umgangast sigur eins og ósigur, jafnt í
íþróttum sem í fyrirtækjarekstri. Jó-
hann Ingi benti á að hér á landi hafi
menn oft ekki kunnað að fara með
sigurinn. Hin tíðu gjaldþrot eigi m.a.
rót að rekja til þess að ekki var farið
nógu varlega þegar vel gekk. A sama
hátt er mikilvægt að gefast ekki upp
þegar illa gengur, — að kunna að taka
tapi.
„Það eina sem keppinauturinn á
ekki er starfsfólkið mitt,“ sagði
Ólafur Jón. „Það er auðvelt að taka
upp aðferðir og tilboð samkeppnisað-
ila, en starfsmennirnir geta gert
gæfumuninn.“
Hjá Sjóvá-Almennum þurfti að
vinna sérstaklega að því að ná góðum
starfsanda þegar fyrirtækin samein-
uðust fyrir þremur árum. Ákveðið
var að byrja strax á að sameina starfs-
fólkið, til að koma í veg fyrir hugsun-
arháttinn VIÐ annars vegar og ÞIÐ
hins vegar. Þetta var gert með því að
helmingur starfsfólks Sjóvá fór í hús
Almennra, og öfugt. Þar var þeim
einnig raðað upp sitt á hvað, til þess
að hóparnir blönduðust. „Árangurinn
af þessu varð mjög góður,“ sagði
Ólafur Jón. „Þessi uppstokkun stóð í
níu mánuði, eða þar til við fluttum í
nýtt hús sem sameinaði okkur enn
meir. Við höfum síðan tekið í gagnið
nýjan tölvu- og hugbúnað sem hefur
einnig sameinað okkur.
ÓFORMLEGT FRAMMISTÖÐUMAT
Fyrirtækið Einar J. Skúlason hf.
hefur vaxið hratt sl. áratug. Það
stendur á gömlum merg, hafði 22
starfsmenn árið 1984, en þeir eru nú
orðnir 80. Vöxtur fyrirtækisins hefur
orðið samhliða tölvuvæðingu lands-
manna og átti sér stað í skorpum, að
sögn Bjarna Ásgeirssonar skrifstofu-
stjóra og eins eigenda fyrirtækisins.
„Við höfum ráðið til okkar hópa í
ákveðin verk og þurftum að senda
fólk í nám erlendis vegna tækni- og
hugbúnaðarmála. Tækniþekking er
dýr og starfsfólkið því mikilvæg fjár-
festing. Okkur hefur haldist mjög vel
á fólki, sami kjarninn frá upphafi.
Starfsfólk með slíka þekkingu á auð-
velt með að fá vinnu og fer eitthvað
annað ef það er ekki ánægt, t.d. með
laun. Við greiðum laun eins og þau
gerast á markaðnum og reynum að
halda vöku okkar í þeim efnum. En
það er ekki nóg. Starfsumhverfið þarf
líka að vera gott og störfin fjölbreytt, “
sagði Bjarni.
Fyrirtækið er deildaskipt og eru
yfirmenn deildanna flestir eigendur.
Þeir hafa því ekki sérstakan starfs-
mannastjóra, ráða sjálfir fólk hver í
sína deild. Af þessari nánu samvinnu
leiðir einnig að frammistöðumat er
óformlegt og á sér stað daglega þar
sem yfirmenn vinna með sínu fólki.
Frammistöðumat hjá Sjóvá-Al-
mennum er einnig óformlegt. Það er í
höndum deildarstjóra sem gefa
starfsmannastjóra ábendingar um
frammistöðu starfsmanna og getur
það haft áhrif á laun viðkomandi.
Fyrirtækið hefur lokað launakerfi þar
sem óheimilt er að ræða um hver
launin eru. Það er samningsatriði milli
fyrirtækis og starfsmanns.
„Menn geta verið með mishá laun
þó þeir vinni sömu störf,“ sagði
Ólafur Jón. „Ýmsir þættir hafa áhrif á
það hvernig samið er við hvem og
einn. Mat deildarstjóra getur þar
skipt máli svo og annarra starfs-
manna. Við tökum einnig tillit til hróss
og kvartana viðskiptavina.“
ÞEKKING SKAPAR VELLÍÐAN
Til þess að gera starfsmenn hæfari
eru ýmsir möguleikar á endur- og
framhaldsmenntun. Starfsmanni sem
fmnst hann hafa vald á starfi sínu og
vera vel að sér, líður betur en þeim
sem finnst hann illa að sér.
Sum fyrirtæki bjóða upp á byrjun-
arnámskeið fyrir nýtt starfsfólk.
Samband íslenskra tryggingarfélaga
rekur til dæmis Tryggingaskólann,
en það er eins mánaðar námskeið
sem starfsmenn sitja í hálfan daginn.
Einnig eru í boði endurmenntunar-
námskeið sem starfsmenn þurfa helst
að fara á þegar þeim býðst það, til
þess að missa ekki af lestinni.
Ólafur Jón sagði tilgang endur-
menntunar vera að auka framleiðni
fyrirtækisins og gera starfsmenn
46