Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1992, Síða 52

Frjáls verslun - 01.02.1992, Síða 52
STJÓRNUN Hermilíkön fyrir framleiðslukerfi eru samt nokkuð frábrugðin flughermum hvað varðar aðferðarfræðina. I flug- herminum verða samskipti nemand- ans og hermisins mjög náin í gegnum alla eftirlíkinguna. Við eftirlíkingar á framleiðslukerfum eru allar ákvarð- anir á hinn bóginn fyrirfram skil- greindar í formi reglna og ennfremur er fyrirfram ákveðið í hvaða röð hinar ýmsu aðgerðir eiga sér stað. Með því að gera tölvulíkan af framleiðslukerfi áður en það er sett upp í raunveru- leikanum er hægt að forðast margar hættur og erfiðleika sem svo oft vilja koma fram þegar reyna á ný kerfi. Hermilíkan getur gert augljóst hvernig fyrirhugað kerfi muni reynast og þar með svipt hulunni af því hvort kerfið er hæft eða vanhæft til að skila þeim árangri sem til var ætlast. AÐGERÐARANNSÓKNIR OG HERMILÍKÖN í aðgerðarannsóknum (Operations Research) er áhersla lögð á að setja upp stærðfræðileg líkön af raunveru- legum kerfum. Einn aðalstyrkur þeirrar aðferðar er sá að hún dregur vel fram kjarna vandamálsins og opin- berar það, sem undir býr, og gefur á þann hátt innsýn inn í samspil orsaka og afleiðinga innan viðkomandi kerfis. Þess vegna er, ef unnt er að byggja upp stærðfræðilegt líkan sem bæði gefur raunhæfa hugmynd af vanda- málinu og getur veitt áreiðanlega lausn, sá greiningarmáti venjulega æðri hermilíkani. Hins vegar eru ým- is flókin vandamál þannig að þó gerð hermilíkans geti reynst bæði fremur dýr og oft tímafrekur kostur þá er það oft eini raunhæfi kosturinn. Þær upplýsingar, sem hermilíkan veitir, eru tölfræðileg líkindi en ekki „Hermilíkön eru mjög gagnleg við framleiðslustjórnun og notkun þeirra hefur breiðst hratt út samfara framförum í menntun á sviði tölvutækni ásamt bættum vél- og hugbúnaði.“ nákvæmar útkomur og með slíku lík- ani er hægt að gera samanburð á ýmsum valkostum fremur en að kalla fram hámörkun. Aðalreglur varðandi gerð hermilíkana eru fljótlærðar og auðvelt er að auka við þá þekkingu. Fyrr en varir eru menn farnir að fást við að leysa vandamál sem að á annan hátt er miklu erfiðara að leysa. Nú, þegar verulega getumiklar smátölvur eru að verða hvers manns eign, ættu stjórnendur framleiðslufyrirtækja og jafnvel stjórnendur þjónustustofnana að kynna sér hvað felst í gerð hermi- líkana. Tiltölulega ódýr hugbúnaður til þessara nota er fáanlegur og er hann oft nokkuð auðveldur í notkun. Gæta þarf þó varúðar við val á hug- búnaði því stundum er hann „of auð- veldur“ í notkun; sem sagt forrit sem gera manni kleift að byggja upp módel sem eru í raun lítils eða einskis virði og bjóða svo upp á lausnir sem geta tekið á sig mjög raunhæft útlit en eru engu að síður algjörlega rangar. Þró- unarferli hermilíkana ætti að innihalda ákveðinþrep, s.s. könnun á samræmi líkans og raunveruleika (model valid- ation), næmnisgreiningu (sensitivity analysis) og prófun til að koma í veg fyrir að útkoman verði misvísandi eða villuleiðandi. Framkvæmd þessara þrepa þarf ekki að vera svo flókin en það er grundvallaratriði að vita hvað er að gerast áður en lagður er trúnað- ur á útkomuna. HVERS VEGNA HERMILÍKÖN? Framleiðslustjórar þurfa oft að fá svör við spurningum sem þessum: — Hvereruáhrifþessaðbætainn manni eða vél? — Hvað eiga millilagerar að vera miklir? — Hvemig er samhengið á milli lotustærða og stærða millilag- era? — Hvar eru flöskuhálsar í fram- leiðslurásinni? — Hver verða áhrif aukinna af- kasta á flöskuhálsa? — Hver verða áhrif bilana og ann- arra tafa? Við hönnun á þjónustukerfum get- ur viðfangsefnið verið að fmna út sambandið á milli fjölda afgreiðslu- borða og lengdar á biðröð. Allt eru þetta atriði sem skynsamlega hönnuð hermilíkön gætu leitt í ljós á rök- studdan hátt. Meðal stjórnenda er sú skoðun út- breidd að neyta eigi allra bragða til að vinda hvern dropa, sem hægt er, út úr vinnuaflinu. Sem sagt; það ætti ekki að borga fólki fyrir að vera að- gerðalaust í vinnunni! Samt er hægt að sýna fram á að þrátt fyrir hver afkastagetan er þá er tilviljunin oft ráðandi í því hvenær verkefnin berast og hve langan tíma tekur að ljúka þeim. í kerfmu mun því þróast upp- söfnun á mismun eftirspurnar og Mynd 2. Dæmi um framsetningu á niðurstöðum frá hermiathugun. 52

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.