Frjáls verslun - 01.02.1992, Blaðsíða 63
LOGFRÆÐI
SKYLDUABILD AD
LÍFEYRISSJÓÐUM
Greinarhöfundurinn, Ólafur
Garðarsson, er starfandi
lögmaður.
í nóvember sl. gekk í Hæsta-
rétti athyglisverður dómur í
máli er Lífeyrissjóður leigubif-
reiðastjóra höfðaði gegn leigu-
bifreiðastjóra sem neitaði að
greiða iðgjald til sjóðsins. Beðið
var eftir dómi í þessu máli með
nokkurri óþreyju þar sem niður-
staða Hæstaréttar gat haft mikil
áhrif m.a. á greiðsluskyldu fólks
í einstaka lífeyrissjóði sem og
starfsemi margra lífeyrissjóða.
Málavextir voru í stuttu máli þeir
að á árinu 1971 var Lífeyrissjóður
leigubifreiðastjóra stofnaður fyrir
tilstuðlan stéttarfélags leigubílstjóra,
bifreiðastjórafélagsins Frama og
Trausta, félags sendibílstjóra. Líf-
eyrissjóðurinn var í upphafi frjáls líf-
eyrissjóður án skylduaðildar. Með
lögum nr. 55/1980 um starfskjör
launafólks og skyldutryggingu líf-
eyrisréttinda, sem tóku gildi 9. júní
1980, var öllum launþegum og at-
vinnurekendum gert skylt að eiga að-
ild að Kfeyrissjóði hjá viðkomandi
stéttarfélagi. Lífeyrissjóður leigubif-
reiðastjóra, sem hafði verið frjáls líf-
eyrissjóður, varð við þessa lagasetn-
ingu lífeyrissjóður með skylduaðild.
Stjórn lífeyrissjóðsins kynnti þessa
staðreynd rækilega fyrir félagsmönn-
um í þeim þremur félögum sem staðið
höfðu að stofnun sjóðsins. Ekki vildu
þó allir leigubifreiðastjórar greiða til
sjóðsins og báru m.a. fyrir sig að 2.
gr. laga nr. 55/1980 fæli Fjármála-
ráðuneytinu tiltekið vald, úrskurðar-
63