Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1992, Page 64

Frjáls verslun - 01.02.1992, Page 64
LOGFRÆÐI vald, varðandi aðild að lífeyrissjóðum og að ekki hefði verið leitað eftir úrsk- urði ráðuneytisins. Því væri allsendis óvíst að leigubifreiðastjórinn ÚM ætti aðild að málinu. Því var leitað eftir úrskurði Fjár- málaráðuneytisins og lá hann fyrir í júlí 1983. í honum var m.a. bent á að meginreglan sé sú að tryggingar- skyldu sé fullnægt með þátttöku í þeim lífeyrissjóðum viðkomandi starfsstéttar eða starfshóps sem fyrir eru. Og þar sem starfandi sé lífeyris- sjóður leigubifreiðastjóra verði ekki hjá því komist að telja að sjálfseignar- leigu- og sendibifreiðastjórar skuli vera félagar í Lífeyrissjóði leigubifr- eiðastjóra. Þrátt fyrir þennan úrskurð neituðu enn nokkrir leigubifreiðastjórar að greiða iðgjöld sín og kom því til máls- sóknar sjóðsins gegn þeim. Málið gegn leigubifreiðastjóranum ÚM var þingfest í bæjarþingi Reykjavíkur þann 9. desember 1986. Hann var krafinn um ógreitt iðgjald fyrir rúm- lega tveggja ára tímabil auk dráttar- vaxta og málskostnaðar. Lögmaður Lífeyrissjóðs leigubif- reiðastjóra, Jón G. Zoéga hrl., rök- studdi mál sitt m. a. með vísan í lög nr. 55/1980. Lífeyrissjóðurinn væri sjóð- ur með skylduaðild og því bæri hon- um að tryggja að allir þeir, sem í sjóð- inn eiga að greiða, geri það. Til þess að lífeyrissjóður geti gegnt hlutverki sínu verði iðgjöld að innheimtast. Sjóðurinn bæri þessa skyldu gagnvart bifreiðastjóranum, sem á að greiða, gagnvart öðrum bifreiðastjórum og ekki síst gagnvart maka og börnum. Þá benti lögmaðurinn á, og lagði fram gögn þar að lútandi, að gjald- tökuuppbygging leigubifreiðastjóra fæli í sér 6% framlag atvinnurekenda sem í tilviki leigubifreiðastjóra er við- skiptavinurinn. Ökugjald leigubif- reiðastjóra væri m.ö.o. byggt upp á nokkrum þáttum sem nauðsynlegir eru til reksturs bifreiða, svo sem bensín- og olíuverði, viðhaldskostn- aði, afskriftum, launum o.fl. þar með töldu áðurnefndu framlagi atvinnu- rekenda. Lögmaður leigubifreiðastjórans, Hjörtur Torfason hrl, sem nú er hæstaréttardómari, krafðist þess að stefndi yrði sýknaður af öllum kröfum Leigubílstjórar verða að greiða í líf- eyrisjóð eins og aðrir. stefnanda. Hann taldi það vera háð ákvörðunarrétti stefnda ÚM hvort hann gerðist aðili að lífeyrissjóði stefnda eða ekki. Þá taldi hann ákvæði laga nr. 55/1980 ekki hafa stjórnskipulegt gildi og að ákvæði lag- anna brytu í bága við 67. og 69. grein stjórnarskrárinnar. Einnig taldi lög- maðurinn þau brjóta í bága við alþjóð- leg mannréttindaákvæði sem skylt sé að hafa í heiðri á íslandi. Vísaði lög- maðurinn sérstaklega til sáttmála Evrópuráðsins um verndun mann- réttinda og mannfrelsis sem ísland hefur fullgilt, einkum þeirrar greinar sáttmálans sem ætlast til þess að menn séu ekki skyldaðir til að gerast félagar í tilteknum samtökum gegn eigin vilja. Þá var því einnig mótmælt af hálfu lögmanns stefnda ÚM að gilt geti verið að stjórnskipunarlögum að fela Fjármálaráðuneytinu úrskurðarvald um það hvort ÚM skuli tilheyra sjóði stefnda eða ekki. Loks taldi lögmaður stefnda ÚM að til þess að geta haft uppi kröfur um aðild og iðgjöld á hendur stefnda ÚM yrði sjóðurinn að sýna fram á að hann uppfylli almennar kröfur til lífeyris- sjóða, þ.á.m. það grundvallarskilyrði að sjóðurinn sé fær um að standa við eðlilegar lífeyrisskuldbindingar til sjóðsfélaga. Dómur var kveðinn upp í málinu í bæjarþingi Reykjavíkur þann 23. apríl 1990. Dómarinn, Friðgeir Björnsson yfirborgardómari, taldi ekki að sú ótvíræða skylda sem launamönnum og þeim, er stunda atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi, er lögð á herðar með lögum nr. 55/1980, nefni- lega að eiga aðild að lífeyrissjóði við- komandi starfsstéttar eða starfs- hóps, væri brot á 69. eða 73. grein stjórnarskrárinnar. Lagaskyldan væri ótvíræð og yfirlýstur tilgangur laganna m.a. sá að leggja á menn skyldur til þess að réttindanýting byggðist á sem jöfnustum forsend- um. Ekki taldi dómarinn að byggt yrði á Evrópusamningi um verndun mann- réttinda og mannfrelsis þar sem samningurinn hefði ekki lagagildi hér á landi. Dómarinn taldi ekki heldur að samningurinn veitti víðtækari vernd en 73. grein stjórnarskrárinnar og því engin nauðsyn að skýra stjórnar- skrárgreinina með sérstakri hliðsjón af samningnum. Dómarinn taldi að jafnvel þótt svo kynni að vera að Lífeyrissjóður leigu- bifreiðastjóra ætti nú í erfiðleikum með að standa við skuldbindingar sín- ar þá hefði ekkert verið leitt í ljós um að hann geti það ekki eða muni ekki geta það í framtíðinni. Á grundvelli þessara forsendna var stefndi ÚM dæmdur til að greiða ið- gjaldaskuld sína að fullu ásamt drátt- arvöxtum og málskostnaði. Stefndi ÚM áfrýjaði máli sínu til Hæstaréttar íslands. Fyrir Hæstarétt voru lögð fram nokkur ný gögn, m.a. um stöðu Líf- eyrissjóðs leigubifreiðastjóra og um stöðu fleiri lífeyrissjóða. Lögmaður leigubifreiðastjórans í Hæstarétti, Kristján Ólafsson hdl. 64

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.