Frjáls verslun - 01.08.1997, Side 8
RITSTJORNARGREIN
ÞORSKAR OG BÖRN
Það er nöturleg staðreynd að þjóðinni bregður meira við
að heyra fréttir um lélega árganga af þorsld en slælegan
námsárangur barna og unglinga, með öðrum orðum;
„lélega árganga” í skólum. Iikt og þorskurinn er verndað-
ur gegn ofveiði - svo hann nái að vaxa og
þroskast og gefa vel af sér síðar - þarf að
vernda börn og unglinga gegn því að fara út
af sporinu í námi. Það þarf að setja meira fé
í skólamál tíl að menntun barna batni - og
þar með hagsæld þjóðarinnar.
Vandamálið er hins vegar að þjóðin virð-
ist engan áhuga hafa á að setja meira fé til
skólamála; fjárfesta í menntun, svo hún
verði ekki eftirbátur annarra þjóða eftir
nokkur ár í hugsun og hagsæld. Þjóðin lítur
til dæmis á skóla sem geymslur fyrir börn en
ekld menntastofnanir. Sömuleiðis lítur hún á
kennara sem gæslumenn fremur en fræðara. Þetta sést best
á því að starfsdagar kennara fara meira í taugarnar á þjóð-
inni en fréttir um misjafnan námsárangur íslenskra barna í
samanburði við jafnaldra þeirra erlendis.
Enda þótt kennarar vinni núna fram í byrjun júní, eigi
sex vikna sumarfrí eins og aðrar stéttir, séu skyldugir til að
sækja námskeið, hefji störf seinni partinn í ágúst, vinni af
sér hluta af sumrinu yfir vetrarmánuðina, undirbúi starfið,
séu oft bundir af mikilli heimavinnu og sinni viðtölum við
foreldra barna - þess vegna langt fram eftir kvöldi, er það
svo að þjóðin lítur á kennara sem aumingja. I hugum þjóð-
arinnar eru þeir letingjar sem nenna ekki að vinna og vilja
helst hafa það náðugt í löngum fríum á sumrin og um jólin
- en eru samt alltaf að heimta hærri laun!
Menntun er Ijárfesting sem skilar sér í öflugri einstak-
lingum og þar með auldnni hugsun og hagsæld þjóðarinnar.
En hvernig verður menntun sett framar í forgangsröðina ef
þjóðin hefur engan áhuga á setja meira fé til skólamála og
byggja upp „sterka árganga” barna og unglinga - rétt eins og
hún byggir upp fiskistofriana? Benda verður á leið markað-
arins og taka það upp sem aldrei má minnast á; hógvær
skólagjöld. Skólagjöldin yrðu síðan frádráttarbær til fulls frá
skattí á þá leið að skattar viðkomandi lækk-
uðu sem skólagjöldunum næmi. Benda má á
að fjárfesting í hlutabréfum hefúr örvað
hlutabréfakaup á undanfönum 'árum og
sfyrkt fyrirtæld. Að vísu er sá afsláttur að
hverfa. Jafnframt verður að reka skóla meira
sem fyrirtæld en stofiianir. Til greina kæmi
að aftiema æviráðningu kennara, gefa skóla-
stjórum aukið frelsi til að ráða og reka kenn-
ara - og greiða þeim vel fyrir aukna kennslu
og skyldur - draga kennara að skólum.
Á sama tíma og ekld er gripið til nýrra
lausna í skólamálum blasir við mildl patt-
staða í kjarabaráttu kennara við sveitarfélögin. Samnings-
vandi sveitarfélaga er sá að þau eru mjög misjafnlega í stakk
búin til að mæta útgjöldum til skólamála vegna skulda og
framkvæmda. Ennfremur hefúr einsetning skóla ein og sér
haft mikinn kostnað í för með sér. Sveitarfélögin áttu aldrei
að yfirtaka rekstur skóla fyrst þau reynast svo illa í stakk
búin til þess.
Kennaramegin er vandinn sá að með einsetningu í skól-
um eiga skólastjórar orðið erfitt með að útvega fastráðnum
kennurum fúlla kennsluskyldu - hvað þá einhverja yfir-
vinnu til að auka tekjurnar. Og nýútskrifaðir kennarar eru
nánast með próf upp á að fá ekld nema hlutastarf í skólum
- hluta af dagvinnu - en byrjunarlaun kennara eru 75 þús-
und krónur á mánuði!!!
Til að hefja menntun barna og unglinga til vegs og virð-
ingar þarf þjóðinni að þykja vænna um börnin sín en þorsk-
ana í sjónum - eða að minnsta kosti jafti vænt um þau!
Jón G. Hauksson
ISSN 1017-3544
Stofhuð 1939
Sérrit um viðskipta-, efhahags- og atvinnumál - 58. árgangur
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Jón G. Hauksson - AUGLÝSINGASTJÓRI: Sjöfn Sigurgeirsdóttir -
BLAÐAMAÐUR: Páll Ásgeir Ásgeirsson - LJÓSMYNDARAR: Geir Ólafsson og Kristín Bogadóttir - UMBROT: Ágústa
Ragnarsdóttir. - ÚTGEFANDI: Talnakönnun hf. - RTTSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA: Borgartúni 23,105
Reykjavík, sími: 561-7575, fax: 561-8646 - ÁSKRIFTARVERÐ: 3.315 kr. fyrir 6.-11. tbl. - 10% lægra áskriftarverð ef greitt er með
kreditkorti. - LAUSASÖLUVERÐ: 699 kr. nema bókin 100 stærstu sem er á 1.995,- - DREIFING í bókaverslanir og söluturna
á Stór-Reykjavíkursvæðinu annast fyrirtækið Sala og dreifing, sími: GSM 89-23334. - FHMUVINNA, PRENTUN OG
BÓKBAND: Prentsmiðjan Grafík hf. - LTTGREININGAR: Prentmyndastofan hf. - Öll réttindi áskilin varðandi efiii og myndir.
8