Frjáls verslun - 01.08.1997, Blaðsíða 30
Bjarni ásamt Tómasi syni sínum í
svissneskum skógarlundi. Myndin er
frá Lausanne þar sem hann stund-
aði nám við einn þekktasta viðskipta-
háskóla Evrópu, IMD.
FV-mynd: Helga Sverrisdóttir.
Sem stjórnanda er Bjarna lýst þann-
ig að hann sé agaður og kröfuharður
við starfsmenn sína og afdráttarlaus í
framkomu. Samstarfsmenn segja að
hann sé orðinn harðari og íjarlægari
eftir að hann kom frá námi erlendis og
varð yfirmaður og hafi þannig misst
tengslin við starfsfólkið. Námið sýnist
því hafa hert hann og þroskað sem
stjórnanda. Samstarfsmenn hans full-
yrða samt að þeir hafi gott aðgengi að
honum.
Bjarni er kvæntur Helgu Sverris-
dóttur hjúkrunarfræðingi sem er fædd
29.11 1968 í Reykjavík. Þau eiga einn
son sem er fæddur 19.7.1994 og heitir
Tómas. Til skamms tíma bjuggu þau á
Bárugötu 29 en hafa nýlega flutt bú-
ferlum í ný húsakynni við Bakkavör á
Seltjarnarnesi.
Helga og Bjarni kynntust í Háskól-
anum þegar þau sátu bæði í Stúdenta-
ráði fýrir Vöku. Helga er dóttir Guð-
rúnar Helgadóttur alþingismanns og
Sverris Hólmarssonar þýðanda.
VINNAN GÖFGAR MANNINN
Bjarni vinnur mjög mikið eins og
fleiri ungir menn í viðskiptalífinu. Hann
er yfirleitt mættur í Kaupþingi fyrir allar
aldir og hikar ekki við að dvelja þar fram
undir miðnætti ef þörf krefur. Sumir
ganga jafnvel svo langt að segja að hann
sé „workaholic" eða vinnufíkill.
Hann tilheyrir þeirri kynslóð sem
finnst þetta hluti af lífsbaráttu nútímans
og eðlilegur fýlgifiskur þessarar at-
vinnugreinar sérstaklega. Það kemur
samt ekki í veg fýrir að hann gefi sér
tíma til að skemmta sér á góðri stundu
með vinnufélögum og vinum.
Á VÆNGJUM SÖNGSINS
Bjarni er mikill áhugamaður um tón-
list og syngur fullum hálsi þegar það á
við. Hann er orðlagður fyrir það að taka
stjórnina í gleðskapnum og leikur á als
oddi með hverskonar uppákomur, söng
og grín. Stuðmenn eru í sérstöku uppá-
haldi og vinir hans segja að hann geti,
þegar sá gállinn er á honum, byrjað á
fyrsta lagi á hlið 1 á eftirlætis Stuð-
mannaplötunum og sungið hiklaust í
gegnum allt prógrammið. Stundum hef-
ur hann vakið athygli á almannafæri fyr-
ir fagran söng og vinum hans er enn í
fersku minni þegar hann stóð upp á
Hard Rock Café og söng gamla Sinatra
slagarann My way fullum hálsi. Þess ber
að geta að þetta gerðist í steggjapartí
honum til heiðurs fyrir brúðkaup hans
og Helgu. Einnig mætti riija upp sigur
hans í „local“ Eurovison keppni í Istan-
búl í Tyrklandi en þar var hann á ferð
1989 eftir að hafa dvalist sem skiptinemi
IASTE við Reiknistofnun háskólans í Za-
greb í Júgóslavíu.
ÚTSAUMUR, SIÐFRÆÐIOG SKOKK
Bjarni hefur lítinn áhuga á íþróttum á
borð við fótbolta þó að hann sé alinn upp
í fótboltabænum Akranesi. Hann skokk-
ar stundum sér til heilsubótar en er ekki
meðlimur í neinum hlaupahópi heldur
fer einn út með sjálfum sér.
Bjarni hefur ekki tekið þátt í starf-
semi hefðbundinna klúbba á borð við
JC, Rotary eða Lions enn sem komið er
en hefur lítillega föndrað við stangveiði.
Hann fékkst á sínum yngri árum við
nokkuð óhefðbundið tómstundagaman,
að minnsta kosti meðal karlmanna en
það er útsaumur. Hann á margar út-
saumsmyndir frá sínum yngri árum og
er áreiðanlega býsna slyngur með nál-
ina þótt penninn sé honum tamari í
dag.
Þó að fáar tómstundir gefist í hefð-
bundnum skilningi þess orðs á Bjarni
góða vini sem hann heldur sambandi
við. Helstu vinir hans eru sagðir: Guð-
mundur Hauksson bankastjóri f
SPRON, Hjalti Geir Kristjánsson kaup-
sýslumaður, Hreiðar Már Sigurðsson
sjóðsstjóri hjá Kaupþingi, Halldór Frið-
rik Þorsteinsson starfsmaður Kaup-
þings, Skúli Mogensen framkvæmda-
stjóri og eigandi tölvufyrirtækisins OZ,
Guðni Tómasson tölvunarfræðingur hjá
Sklmu og Björn Þorri Viktorsson lög-
fræðingur og fasteignasali. Vinir hans
segja að mikil vinna undanfarinna ára
hafi tekið sinn toll af samskiptunum.
Bjarni hefur sjálfur sagt að hann hafi
mikinn áhuga á siðfræði og heimspeki
og hafi verið að lesa sér til í þeim efnum.
Hann hefur mikinn áhuga á stjórnmál-
um og fylgist vel með þeim. Þótt forysta
hans í Vöku gæti gefið tilefni tíl þess að
telja hann hægrisinnaðan og íhaldssam-
an hefur hann aldrei verið flokksbund-
inn í neinum stjórnmálaflokki.
TALNAGLÖGGUR SJARMÖR
Þeir eru til sem segja að Bjarna
skortí algerlega aldur og þroska tíl að
takast á við virkilega erfið vandamál.
Hann sé fyrst og fremst talnaglöggur,
skarpur og sjarmerandi piltur sem var í
réttri atvinnugrein á réttum tfma og hafi
alls ekki þau tengsl við íslenskt atvinnu-
líf og samfélag sem nauðsynlegt hljóti
að teljast í starfi eins og þessu.
Þannig sé hann fyrst og fremst te-
oristi. Þessu til mótvægis er bent á að að
hann sé fyrst og fremst fagmaður sem
glöggir yfirmenn hafi séð að bjó yfir
miklum hæfileikum og hafi tekist að
örva hann tíl dáða. Hann hafi sameinað
reynslu af raunverulegum markaði og
vönduðustu menntun sem völ var á og
slíkir menn séu einmitt nauðsynlegir til
að færa íslenskt fjármálalíf alla leið inn í
nútímann. 35
HROKIEÐA HOGVÆRÐ?
Sumum þykir gæta hroka í fari Bjarna en það er oft sagt um mjög greint fólk sem á
að sama skapi litla þolinmæði gagnvart þeim sem ekki fylgi því eftir á
fluginu. Aðrir segja að hann sé þvert á móti fremur hæverskur og
sjái ekkert athugavert við að skipta um skoðun þegar gild rök koma gegn áliti hans.
30