Frjáls verslun - 01.08.1997, Blaðsíða 65
Bættur hagur fjölgar störfum
Með bættum hag fyrirtækja dró
úr atvinnuleysi. Störfum fjölgaði um
1.959 hjá þeim 250 fyrirtækjum á
listanum sem gáfu upp ijölda starfs-
manna bæði árin. Hjá 195 fyrirtækj-
um fjölgaði starfsfólki um 2.369 en
fækkaði um 410 hjá 55 fyrirtækjum.
Þetta kemur heim og saman við
opinberar tölur sem sýna að at-
vinnuleysi minnkaði á síðasta ári.
Það var þá um 4,3% af vinnuaflinu í
heild.
Hlutfall hagnaðar af
veltu stígur upp
Bæði velta og hagnaður stærstu
fyrirtækjanna jukust á síðasta ári.
Hjá þeim, sem gáfu upp afkomu,
jókst hagnaður fyrir skatta sem hlut-
fall af veltu úr 4,3% í 5,6%.
Aukin velta upp á um
51 milljarð
Velta hundrað stærstu fyrirtækja
landsins jókst um 13,5% á síðasta ári.
Svo mikil veltuaukning hefur ekki
mælst um árabil á meðal stærstu
fyrirtækja landsins. Hundrað
stærstu fyrirtækin veltu 430 millj-
örðum á síðasta ári en 379 milljörð-
um árið á undan. Veltuaukningin
nemur 51 milljarði.
HELSTU NIÐURSTÖDUR
ÞEIM STÓRU GENGURVEL
Árið 1996 reyndist hundrað stærstu fyrirtækjum landsins gott.
Hagnaður þeirra jókst stórlega í krónum talið frá árinu áður, eða um
6,2 milljarða króna. Um hagnað fyrir skatta er að ræða. Sömuleiðis
jókst hagnaður sem hlutfall af veltu, eða úr 4,3% í 5,6%. Þess má geta
að nýlega birti Þjóðhagsstofnun yfirlit úr ársreikningum rúmlega
þúsund fyrir tækja - af öllum stærðum og gerðum, og úr öllum atvinnu-
greinum - sem sýndi að hagnaður þeirra sem hlutfall af veltu minnk-
aði; fór úr 4,6% árið ‘95 í 4,2% í fyrra. Þetta gefur vísbendingu um að af-
koma stærstu fyrirtækja landsins sé hlutfallslega betri en heildarinn-
ar.
STÓRGRÓÐIORKUFYRIRTÆKJA
Af 100 stærstu fyrirtækjum landsins gáfu 76 þeirra upp tölur um af-
komu árin '95 og ‘96. Hagnaður þeirra var 19,8 milljarðar á síðasta ári
en var 13,6 milljarðar árið áður. í úrtaki Þjóðhagsstofnunar nam hagn-
aðurinn hins vegar um 13,5 milljörðum bæði árin. Úrtak Þjóðhags-
stofnunar náði ekki til orkufyrirtækja en þau högnuðst flest stórlega á
síðasta ári. Hagnaður Landsvirkjunar var um 1,7 milljarðar, Rafmagns-
veitu Reykjavíkur um 1,1 milljarður, Hitaveitu Suðurnesja um 434
milljónir og Hitaveitu Reykjavíkur um 385 milljónir. Rafmagnsveitur
ríkisins töpuðu hins vegar um 120 milljónum á síðasta ári.
FJÖGUR AF HVERJUM FIMM MEÐ HAGNAÐ
Alls 332 fyrirtæki af 411 fyrirtækjum, sem birta afkomutölur á lista
Fijálsrar verslunar, skiluðu hagnaði á síðasta ári; eða um fjögur af
hverjum fimm. Á listanum í fyrra skiluðu 292 fyrirtæki hagnaði og 231
árið áður. Þetta gefur vísbendingu um að fyrirtækjum, sem skila hagn-
aði, hafi fjölgað á undanförnum árum; fleiri hagnast. Sömuleiðis sýnir
listinn að tap fyrirtækja reynist minna en á undanförnum árum. Mesta
tapið á listanum er 230 milljónir miðað við 629 milljóna tap á listanum
í fyrra.
ÁTVR AF LISTANUM
í fyrsta sinn í sögu listans er Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins,
ÁTVR, ekki á listanum yfir stærstu fyrirtæki landsins. Ritstjórn telur
fyrirtækið svo gjörólíkt öðrum fyrirtækjum að eðli að bæði velta þess
og hagnaður séu ekki samanburðarhæf við önnur fyrirtæki. Um
hreint og klárt skattheimtufyrirtæki er að ræða - og líkist það frekar
stofnunum eins og Gjaldheimtunni og Tollstjóranum en fyrirtækjum
á markaði í harðri samkeppni.
Meðallaun 158 þús. á mán.
tMeðallaun um 42 þúsund starfs-
manna í 410 fyrirtækjum voru að
jafnaði um 1.900 þús. krónur á síð-
asta ári, eða um 158 þús. á mánuði.
Fyrir ári voru þau 152 þús. og 146
þús. fyrir tveimur árum.
230 FYRIRTÆKIA AÐALLISTA
Þótt listi Frjálsrar verslunar gangi undir heitinu 100 stærstu nær
aðallistinn til 535 fyrirtækja. Um helmingur hans, eða 230 fyrirtæki, er
birtur. Hins vegar koma þau öll við sögu á sérgreinalistum í bókinni.
Auk þess eru birtar tölur frá útflytjendum, eins og þær birtast í Hag-
tiðindum, sem og frá sveitarfélögum og lífeyrissjóðum.
ÖLL „MILLJARÐAMÆRINGAR”
Alls 124 fyrirtæki voru með yfir 1 milljarð í veltu á síðasta ári. Það
þýðir að 100 stærstu fyrirtækin eru öll „milljarðamæringar” hvað
veltu snertir.