Frjáls verslun - 01.08.1997, Blaðsíða 38
FERÐAMATI
Iilja Hauksdóttír, eigandi Cosmo: „Ég held að fólk taki
yfirleitt allt of mikinn farangur með sér.“
FY-mynd: Geir Ólafsson.
Hún segist yfirleitt pakka
fimm mínútum áður en hún
fer í háttinn, kvöldið áður en
hún fer út. „Ég fer alltaf með
ákveðna snyrtitösku sem í
er krem, bursti og tann-
bursti og annað slíkt og svo
tek ég alltaf með mér hár-
næringu því hana er yfirleitt
aldrei að finna á hótelum.
Ég er með ljóst, litað hár
sem er ómögulegt ef ég tek
ekki hárnæringuna mína
með,” sagði Lilja sem notar
Aveda eða Redken næringu.
Oftar en ekki er farangur
hennar einungis lítil hand-
taska úr leðri sem hún getur
haft á öxlinni. „Fyrir utan
fötin sem ég stend í tek ég í
mesta lagi með mér eitt
dress til skiptanna fyrir tveg-
gja daga ferð. Ég fer e.t.v. í
klassískum jakka og svona
millifínum fötum og hef svo
eitthvað til skiptana. Stund-
um tek ég líka aukaskó.
Fataefnin skipta miklu máli,
þ.e. að það sé ekki mikið vis-
SEFIFLUGVÉLUM
ilja Hauksdóttir, eig-
andi tískuvöruversl-
unarinnar Cosmo,
er ein þeirra sem eingöngu
ferðast með handfarangur.
Hún fer u.þ.b. mánaðarlega í
1-3 daga ferðir og segist
frekar vilja fara oftar og vera
styttri tíma í einu.
Hrein nærföt og tann-
bursti, það má ekki klikka. í
raun og veru skiptir ekki
öllu máli þó eitthvað
ur er lentur er hægt
að kaupa hvað
sem er. Það kemur sér helst
illa að gleyma einhverjum
pappírum sem þú þarft á að
halda í ferðinni og svo verð-
ur vegabréfið og farseðillinn
auðvitað að vera með. Á tíu
árum hef ég einu sinni
gleymt vegabréfinu heima.
Þá var maðurinn minn
heima og ég sendi leigubíl á
móti honum svo það redd-
aðist,” sagði Lilja.
cose í fötunum. Sé eitthvað
polyester í þeim eða jafnvel
ull er það mjög gott.“
Ástæðu þess að hún ferð-
ast einungis með handfar-
angur segir Lilja aðallega
vera þá að hún losni við
biðraðir á flugvöllum og svo
sé hún búin að læra það að
maður þurfi ekki að taka
með sér fleiri föt. „Ég held
að fólk sé yfirleitt alltaf að
taka alltof mikið með
sér. Ef
eitthvað slys gerist er ég
líka í þannig business að
maður er innan um föt allan
daginn og á auðvelt með að
bjarga sér. Það er líka oft
þannig þegar maður sér
svona margt fallegt að mað-
ur freistast til að kaupa sér
eitthvað svo handfarangur-
inn er nú yfirleitt meiri á
heimleiðinni." Hún benti
jafnframt á að yfirleitt væri
svo góð þjónusta á hótelun-
um að það tæki ekki nema
u.þ.b. hálfan sólarhring að
láta hreinsa fatnað ef eitt-
hvað kæmi uppá.
Lilja er alltaf með nál og
tvinna meðferðis og skó-
bursta. „Það er líka voða
gott að taka með sér tímarit
því í þeim eru oft stuttar
greinar. Annars sef ég alltaf
í flugvélum og næ þannig
að slaka á og hvíla mig. Ég
tek teppi og breiði yfir haus
og er sofiiuð áður en langt
um líður. Mér finnst best að
sitja við glugga því ég vil
síður enda í fanginu á
næsta manni. Ég þigg
hvorki vott né þurrt, nema
e.t.v. vatn, og er sofnuð
áður en vélin er komin í loft-
ið. Þannig nýti ég tímann til
hvíldar því oft sefur maður
lítið nóttina áður en maður
fer, það bara æxlast þannig,
og svo getur maður verið
ansi þreyttur ef maður er
mikið á þeytingi á milli
landa.”
Staðsetning hótelsins
skiptir öllu máli hjá Lilju.
„Ég vel mér millifint hótel
sem er þannig staðsett að ég
sé fljót í förum. Ég er frekar
vanaföst á hótel og finnst
gott að vita að hveiju ég
geng í þeim efnum.” [ffl