Frjáls verslun - 01.08.1997, Page 24
habitat
KRINGLUNNI
gildum rökum hækka um 15-20 millj-
arða þótt það sé ekki gert hér.
Sé 200 milljörðum deilt á alla lands-
menn koma ca. 740 þúsund í hlut
hvers og eins. Samkvæmt því á hver
kvótakónganna fjögurra jafn mikið og
364 þegnar en það eru næstum jafn
margir og búa á Þingeyri. Samanlagt
eiga þessir íjórir því jafn mikið og
1.456 þegnar en það er um það bil
íbúafjöldinn á Dalvík.
AÐRIR HIRÐMENN, PRINSAR
0G PRINSESSUR
Sé litið á skiptingu kvótaverðmæta
með þessum hættí kemur skýr mynd
í ljós. Mjög fáir eiga mjög mikið en
hópur þeirra, sem eiga umtalsvert
verðmæti í kvóta, er nokkuð stór. Rétt
er að taka fram að hér er einungis
horft á verðmæti úthlutaðs kvóta mið-
að við markaðsverð en ekkert tillit
tekið til annarra eigna fyrirtækjanna.
Skyggnumst aðeins nánar inn í hóp
kvótaeigenda í stærstu fyrirtækjunum.
Einstaklingarnir, sem eiga stærst-
an hlut í Granda, eru helstir þeir Árni
Vilhjálmsson stjórnarformaður,
Ágúst Einarsson alþingismaður og
Kristján Loftsson sem oft er kenndur
við Hval hf.
Haf hf., sem er fyrirtæki Ágústs
Einarssonar, á 12.7% í Granda og sýn-
ist óhætt að meta kvótaeign hans á
650-700 milljónir. Hann er þess vegna
ótvírætt kvótakóngur Granda.
Hve hlutur þeirra Kristjáns og Árna
er stór liggur ekki alveg í augum uppi.
Vogun hf. á um fjórðung í Granda.
Hvalur hf. á Vogun og Kristján og Árni
munu eiga saman 30% í Hval hf. Hval-
ur á auk þess frystitogarann Venus
HE Samanlagt verðmæti kvótaeignar
Hvals er því rúmir tveir milljarðar og
gæti því hlutur Árna og Kristjáns
numið 700 milljónum samanlagt eða
350 milljónum á hvorn þeirra.
Bækistöðvar Hvals hf. eru í Hafnar-
firði og í Hafnarfirði er einnig að finna
Stálskip hf. en það fyrirtæki á kvóta að
andvirði 1.600 milljónir króna og er í
einkaeign hjónanna Guðrúnar Lárus-
dóttur og Agústs Sigurðssonar og
barna þeirra. Hlutur hjónanna er 50%
og því eiga þau saman kvóta fyrir 800
milljónir.
24