Frjáls verslun - 01.08.1997, Qupperneq 54
Þórný Jónsdóttir, deildarstjóri hjá Halldóri H. Jónssyni,
stjórnar sölu og innkaupum á snyrtivörum en fer í göngu-
ferðir sér tíl heilsubótar.
FV-mynd: Kristín Bogadóttír.
og á sama tíma keypti Hall-
dór Jónsson ehf. heildversl-
unina Klassík sem var um-
svifamikil í innflutningi á
snyrtivörum. Þá hafa bæst
við ilmvötn og snyrtivörur
frá mörgum heimsþekktum
framleiðendum, s.s Yves
Saint-Laurent, Jean-Paul
Gaultier, Donnu Karan, Ver-
sace og fleirum sem of langt
mál yrði upp að telja.
Þórný var áður starfs-
maður hjá Klassík en hefur
gegnt núverandi starfi sínu
frá 1994.
„Við erum tvær sem
skiptum með okkur umsjón
með merkjunum en yfirum-
sjón deildarinnar er í mínum
höndum. Hér vinna alls 30
manns og hver deild íyrir
sig vinnur saman sem einn
hópur að því að auka sölu og
markaðshlutdeild okkar í
harðri samkeppni."
Að sögn Þórnýjar út-
heimtir starfið mjög vökula
markaðssetningu og mark-
vissar aðgerðir. Hún fer til
útlanda 4-5 sinnum á ári og
fundar með birgjunum þar
sem gerðar eru mjög ná-
ÞORNY J0NSD0TTIR,
HALLDÓRI JÓNSSYNI
□ að má segja að starf-
semi Halldórs Jóns-
sonar skiptist í
þrennt. I fyrsta lagi eru það
hárvörur, sem seldar eru til
fagmanna á hárgreiðslustof-
um, í öðru lagi hár- og hrein-
lætisvörur sem seldar eru í
verslunum og stórmörkuð-
um og í þriðja lagi snyrtivör-
ur og ilmvötn sem eru mitt
TEXTI: PÁLL ÁSGEIR ÁSGEIRSSON
starfssvið,“ segir Þórný
Jónsdóttir deildarstjóri hjá
Halldóri Jónssyni ehf.
Halldór Jónsson ehf. var
stofiiað 1955 og var lengst af
þekktast fyrir innflutning á
hárvörum frá Wella. Segja
má að þáttaskil hafi orðið í
rekstrinum 1994 þegar Hall-
dórjónsson ehf. ogSebast-
ian umboðið sameinuðust
kvæmar söluáætlanir langt
fram í tímann. Þannig er ný-
lega búið að skila áætlunum
um sölu á einstökum vöru-
tegundum til ársloka 1998.
Það er síðan starfsmönnun-
um kappsmál að þær stand-
ist.
„Þetta er afskaplega
skemmtilegt starf sem er
laust við þann glamúr sem
margir virðast halda að fylgi
þessu, þótt slíkar stundir
komi upp. Þetta er fyrst og
fremst mikil vinna.
Islendingar eru nýjunga-
gjarnir og fylgjast vel með
því sem er í gangi hveiju
sinni. Hins vegar óskar
maður þess stundum að líf-
tími ilmvatna væri aðeins
lengri en hann er því það
kostar geysilega mikið að
setja nýtt ilmvatn á markað-
inn, bæði í vinnu og pening-
um.“
Þórný varð stúdent frá
MS 1980 og fór síðan í Há-
skólann í viðskiptafræði en
fannst námið ekki nógu
spennandi og hætti því og
fór að vinna. 1986 fór hún til
náms í Parsons School of
Design í New York og lauk
þar BBA í markaðsfræðum.
Þetta nám er sérstaklega
byggt upp með það í huga
að tengja markaðsfræði við
hönnun, enda er Parsons
einn helsti hönnunar- og
listaskóli Bandaríkjanna.
Nemendur voru hvattir til
þess að virkja sköpunargáfu
og hugarflug. Þórný segir
námið hafa nýst sér mjög
vel en hún kom heim 1991
eftir að hafa starfað um hríð
hjá Álafossi í Ameríku og á
auglýsingastofu á Manhatt-
an.
Þórný er einhleyp og
barnlaus og segist vinna
mjög mikið en í frístundum
er það aðallega útivistin
sem kallar.
„Mér finnst það góð
helgi ef ég kemst í langa
gönguferð og helst ef ég
dríf mig í fjallgöngu upp á
Esju. Eg hef farið í ferðir inn
á hálendið og finnst það
heillandi. Islensk náttúra er
heillandi fögur og gefur
mér orku. Eg er fædd og
uppalin á Húsavík og þar
býr öll mín fjölskylda,
þannig að það er mér mikils
virði að komast þangað
nokkrum sinnum á ári.“ BO
54