Frjáls verslun - 01.11.1998, Síða 48
Tryggingamiðstöðin styrkti ímynd sína með auglýsingaherferð sem Ydda bjó til. Islensk náttúra, Steinn Steinarr, Gusgus og Ragna í
Subterranean lögðu öll sitt afmörkum við gerð auglýsingarinnar.
Okkur er ekki
til setunnar
bodid
J8,nré««l -
p.6 or tý6f»ö'»le* *h
R66h6(tasWpu6
uka hlut kvenna
nú, eftirminnilegustu verkefnum ársins
1998. Hún hafði ýmislegt að segja um
stöðu greinarinnar.
„Staða ársins 1998 segir mér hvað við
þurfum að gera.
Atvinnugreinin er að jafna sig eftir tíma-
bil sem fól í sér samdrátt og fjárfreka
tæknibyltingu samtímis. Nú þarf að nýta
betri stöðu viðskiptalífsins, aukna tækni og
nýja möguleika, til að efla okkur faglega. I
öllum hornum samfélagsins er vakning til
bættra vinnubragða. Við höfum mikilvægu
hlutverki að gegna við hlið atvinnulífsins
og í markaðssamskiptum almennt og við
eigum einnig óunnin lönd. HER & NU
auglýsingastofa hefúr
á síðastliðnu ári unnið fyrir erlenda aðila
með skemmtilegum árangri. Islensk hönn-
un er viðurkennd og það er alltaf markaður
íyrir góða þekkingu á markaðssamskipt-
um samfara sköpunargáfu.“
VEÐRMÆTIVORUMERKJA KEMUR
ÍUÓS
„Ég held að athyglin haíi beinst hér-
Iendis eins og erlendis að mikilvægi mark-
vissrar uppbyggingar á vörumerkjum.
Verðmæti góðra vörumerkja kom skýrt
fram þegar Hagkaup og Bónus voru
verðlögð. Óhætt
er að segja að þar
hafi tekist vel að
byggja upp sterk
vörumerki. Nú
nýverið var svo
stór hluti 10-11
seldur og matið
á fyrirtækinu
var margfalt
Skemmtileg-
asta verkefni
Hér & nú á
árinu var að
gera aug-
lýsingaherferð
um þátttöku
kvenna í
stjórnmál-
um. A mynd-
inni er
Guðný
Guðbjörns-
48
eigið fé þess, þar var í reynd íyrst og
fremst verið að kaupa dreifikerfi og sterkt
vörumerki sem var byggt upp á mjög
skömmum tíma,“ sagði Jónas Ólafsson,
framkvæmdastjóri Islensku auglýsinga-
stofunnar, sem er sú stærsta i greininni
þegar hann leit um öxl yfir árið sem er að
líða.
„Ef ég á að nefna eitthvað eitt sem hefur
einkennt auglýsingamarkaðinn sjálfan þá
eru þau fýrirtæki sem lagt hafa áherslu á
internetið farin að sjá tekjur af sölu á
netinu og um leið hefur aukin áhersla
verið lögð á að gera betur á þessu sviði.
Sú herferð sem er mér hvað minni-
stæðust á árinu er kynningin á Saga
Business Class. Flugleiðir hafa á undan-
förnum árum lagt mikla áherslu á að þróa
vöruna þannig að hún fullnægi kröfum
fólks í viðskiptaerindum. Grunnurinn er
markviss uppbygging á leiðakerfi félags-
ins til Evrópu og Bandaríkjanna. Okkar
hlutverk var að koma þeim skilaboðum til
fólks í viðskiptaerindum og einnig almenn-
ings að þeir sem ferðist á viðskiptafar-
gjöldum „vinni tíma og spari peninga“ því
þegar dæmið er reiknað rétt er SBC hag-
kvæmur valkostur.
Það er auðvitað alltaf gaman þegar
markaðsaðgerð gengur vel og í þessu
dæmi varð mikil aukning á sölu viðskipta-
fargjalda.
Einnig kom það okkur skemmtilega á
óvart að sjónvarpsauglýsing, sem við
gerðum fyrir Símann-GSM, „Brúðkaup“
komst í úrslit norrænu auglýsingasam-
keppninnar „Gullni Svanurinn" sem á
sjöunda hundrað sjónvarpsauglýsingar
kepptu sín á milli,“ sagði Jónas að lokum.