Fregnir - 01.11.1995, Síða 8
• Ef upp koma álitamál um hvernig bók skuli skráð, þá
ræður sá skráningarháttur sem viðhafður er í
gagnasafni Gegnis.
• Æskilegt er auk þess að bókasafn sem leggur til
samskrárupplýsingar í Gegni hafí aðstöðu til að
tengjast kerfinu.
•Samskrá um bækur er unnin í skráningardeild
Landsbókasafns íslands - Háskólabókasafns í umsjá Guðrúnar
Karlsdóttur (s. 5635708), forstöðumanns deildarinnar, og
Þórnýjar Perrot (s. 5635722), deildarbókavarðar
•Tímaritasamskrá er unnin í aðfangadeild safnsins í umsjá
Þorleifs Jónssonar (s. 5635739), forstöðumanns deildar, og Helgu
Kristínar Gunnarsdóttur (s. 5635755), sérfræðings í tímaritahaldi
•Söfn sem þegar hafa aðild að samskrám geta sent þessum
íjórum aðilum gögn vegna samskráningar. Söfn sem ekki hafa
samskráraðild en hyggja á þátttöku snúi sér til forstöðumanna
viðkomandi deilda til að fá frekari upplýsingar.
Guðrún Karlsdóttir, Landsbókasafni íslands - Háskólabókasafni.
90 ára afmæli
Bókasafn Suður-Þingeyinga á Húsavík verður 90 ára 1. nóvember.
í tilefni afmælisins verður haldið lestrarrall og bókmenntakynningar
verða í nóvembermánuði.
Jón S Baldvinsson, Bókasafni Suður-Þingeyinga.
8 Fregnir 3-4/95