Fregnir - 01.11.1995, Page 10
íslenskar millisafnalánareglur
Millisafnalánahópur FBR hefur samið leiðbeiningar um
millisafnalán á Islandi fyrir NOSP I hópnum voru: Barbara
Nelson, Landsbókasafni Islands - Háskólabókasafni, Erna G.
Árnadóttir, Landspítala, Kristín Bragadóttir, Landsbókasafni
íslands - Háskólabókasafni, Ólafur Páll Jónsson, Landsbókasafni
íslands - Háskólabókasafni, Pálína Héðinsdóttir,
Náttúrufræðistofnun og Þóra Gylfadóttir, Hagstofú íslands.
Leiðbeiningarnar fara hér á eftir:
Leióbeiningar
1 Markmiðið með millisafnalánum er að veita hverju bókasafni
möguleika á að útvega notendum sínum efni sem það á ekki sjálft.
2. Millisafnalánabeiðnir má senda til allra bókasafna, stofnana og
fyrirtækja
3 Pöntun getur farið fram í tölvu, með tölvupósti eða bein-
tengingu, á símbréfi, símleiðis eða á þar til gerðum pöntunar-
eyðublöðum; íslenskum, frá IFLA eða British Library allt eftir því
sem við á.
4. Lánþegasafn skal útbúa pöntun eins nákvæmlega og mögulegt
er og senda hana til þess bókasafns sem mestar líkur eru á að eigi
efnið. Minni almenningsbókasöfn reyni fyrst miðsöfnin í sínu
héraði.
10 Fregnir 3-4/95