Fregnir - 01.11.1995, Blaðsíða 13
aðgang að íslenska menntanetinu eða Internet, hafa X.25 samband
eða mótald geta leitað í Gegni og DOBIS/LIBIS. Hægt er að leita
endurgjaldslaust í Gegni, en það þarf aðgang að SKYRR til þess
að leita í DOBIS/LIBIS og önnur söfn en aðildarsöfnin greiða fast
mánaðargjald
3. Útlánssöfn
Beiðnir um millisafnalán skal afgreiða eins fljótt og auðið er.
Meginreglan er að senda ljósrit ef pantaðar eru greinar. Efni sem
pantað er í millisafnaláni skal senda beint til lánþegasafns en ekki
lánþega þótt hann sé þekktur. Lánþegar mega taka efni sem fengið
er í millisafnaláni heim með sér ef annað er ekki tekið fram.
4. Erlend milUsafnalán
Ætíð skal ganga úr skugga um að rit finnist ekki á Islandi áður en
beiðni um millisafnalán er send til útlanda. Beiðnir til útlanda
skulu allajafna sendar á IFLA pöntunarseðlum. Þó er hægt að nota
íslenska, staðlaða pöntunarseðla til Norðurlandanna, enda eru þeir
á íslensku og einhverju Norðurlandamáli. Til British Library
verður að senda pantanir á þeirra eigin pöntunarseðlum og nota
þar til gerða limmiða sem gjaldmiðil. Að öðru leyti er vísað í
reglur IFLA um millisafnalán.
5. Skýrslugeró
Öll bókasöfn skulu halda saman tölulegum upplýsingum um
millisafnalán sín. Mikilvægt er að samræmis sé gætt við talningu
þ.e. að einungis það sem lánað er milli safna teljist millisafnalán, en
ekki ljósrit afgreidd á safni, eða send til einstaklinga.
Fregnir 3-4/95 13