Alþýðublaðið - 22.12.1969, Síða 5
Alþýðublaðið 22. desember 1969 5
Alþýðu
blaélð
Úígefandi: Nýja útgáfufélagið
Framkvæmdastjóri: Þórir SæmuncTsson
Ritstjórar: Kristján Bersi Ólafsson
Sighvctur Björgvinsson (áb.)
Rrtstjór larfulltrúi: Sigurjón Jóhannsson
Fréltastjóri: Vilhelm G. Kristinsson
Auglýsingastjóri: Sigurjón Ari Sigurjónsson
Prcntsmiðja Alhýðublaðsins
ERLEND MÁLEFNI
Stjórn Brandts
I Stjóm jafnaðarma'nna og frjálslyndra í Þýzkalandi I
'hefur þegar getið sér mikillar viðurkenningar innan ■
Þýzkalands og utan. Enda þótt aðeins séu fáar vikur 1
frá því að stjórn þessi tók við völdum eftir mikinn 1
kosningasigur jafnaðarmanna, hefur hún þegar stað
ið við mörg þýðingarmestu loforðin, sem jafnaðar- 1
menn gáfu í kosningabaráttunni.
Á þeim tíma, sem liðið hefur- frá því, að stjórn ■
Brandts tók við völdum í Þýzkalandi, hefur honum i
tékizt með þrautSeigju og staðfestu að skapa Þýzka- I
landi sess sem forysturíki á meginlandi Evrópu. B
Hann hefur jafnframt staðið við það loforð sitt, að i
bæta sambúð landsins við kommúnistaríkin í austri, *
en samskipti Vestur-Þýzkalands við Rússland og I
önnur Austur-Evrópuríki hafa aldrei verið með betra |
móti en nú.
Jafnframt hefur Wi'lly Brandt þegar undirritað I
Bamkomulagið um bann við útbreiðslu kjarnorku- |
vopna, en lengi hafði verið deilt um það í Þýzka- |
landi, 'hvort lanldlið ætti að undirrita þann sáttmála fi
eða ékki. Með undirritun þeirri, er gerð var skömmu ■
eftir að Brandt tók við kanslaraembætti, tekur rík-1
isstjórn hans það ótvírætt fram, að hún vilji stuðla I
að friði í Evrópu eftir megni og treystir á það, að
vinsamlegri samskipti við nágrannaríki Þýzkalands I
verði því betri og máttugri vörn en atómvöpn og |
kjarnasprengjur. Þessi ákvörðun þýzku ríkisstjórn- ■
arinnar á enda drýgstan þátt í bættri sambúð lands E
ins við nágrannaríkin í austri nú á síðustu mánuðum. I
Flensan útbreidd
um alla Evrópu
□ Alþjóða heilbrigðismála-
stofnunin skýrði frá því í gær,
að Asíu-inflúensan hefði nú bor
izt til allra Evrópulanda og-
sums staðar orðið mjög út-
breidd. í skýrslu frá stofnun-
inni um útbreiðslu veikinnar
kemur þetta meðal annars
fram;
í Frakklandi hefur veikin nú
breiðzt út um allt landið.
í Vestur-Þýzkalandi hefur
veikinnar orðið vart í öllum
landshlutum, en hennar gætir
þó meira í suðurhéruðunum en
í Norður-Þýzkalandi.
í Bretlandi fjölgaði sjúk-
dómstilfellum mjög fram til 12.
desember; einkum var veikin
útbreidd í London og Suður-
Englandi.
í Sviss voru skráð 1534 ný
inflúensutilfelli í síðustu viku,
þar áf var heimingur í Gehf.
Á Spáni er sjúkdómurinn nú
á undanhaldi, eftir að hafa náð
hámarki í nóvember.
í júgóslavíu hefur veikin nú
breiðzt út um allt landið frá
Króatíu og Slóveníu, þar sem
hún kom fyrst. 35 þúsund hafa
veikzt í Belgrad einni.
í Austurríki breiðist veikin
nú ört út í sunnanverðu land-
inu, héruðunum við landamæri
Júgóslaviu.
í Ungverjalandi er veikin
ekki mjög útbreidd enn.
í Tékkóslóvakíu hefur veik-
innar orðið vart í Suður-Bæ-
heimi. ' ’/
í Danmörku voru skráð 138ö
inflúensutilfelli í Kaupmanna
höfn einni, en vikuna áðuí voru
þau aðeins 669. —
afötin
Vönduð svört og dökkröndótt
karlmannaföt
Karlmannaföt
Terylenefrakkar
Drengja- eg ung-
lingajakkar
á kr. 3.990,t-
frá kr. 1.990,-
frá kr. 1.760,-
á kr. 875,-
Terytenebuxur, allar stærðir.
Alls konar herra- og
unglingavörur.
GOÐ
BÍLASTÆÐI
ARMULA 5.
Árnagarður
I í gær var hið glæsilega hús Handritastofnunar ís- ■
lands og Háskólans, Árnagarður, formlega tekið 1 F
notkun, en kennsla er þó þegar hafin í húsinu fyrir |
nokkrum vikum. Með tilkómu þessa nýja kennslu-
húsnæðis er dregið verulega úr húsnæðisvandræð- I
um Háskólans, en því fer þó íjarri, að þau séu þar §
imeð úr sögunni. Eigi Háskólinn að geta tekið við .
þeim síaukna nemendafjölda, sem til hans streym-1
ir, verður að byggja mikið á næstu árum, eins og 1
'greinilega kemur fram í niðurstöðum háskólanefnd- |
arinnar, sem 'birtar voru í haust.
Handritastofnun íslands fær til umráða um þriðj- ■
' ung hins nýja húss, iog þar er vel séð fyrir þörfum I
stofnunarinnar í náinni framtíð. Með byggingu húss-1
ins hefur verið skapaður verðugur samastaður fyrir
handritin, sem væntanlega munu koma hingað úr B
útlegð sinni í Danmörku innan langs tíma. En það er |
auðvitað ekki nóg að haf a skapað aðstöðu til þess að ■
geyma handritin á tryggan hátt; uonhverfis þau verð I
ur að fara fram þróttmikið vísinldla- og rannsókna- B
starf; handritin mega ekki verða dauður safngripur, |
heldur verða þau að vera lifandi og snar þáttur ís- B
lenzkrar menningar, eins og þau hafa verið til þessa.
Einbeifni Husaks
bieroeði Dubcek
. □ Það hefur vakið nokkra
furðu í Tékkóslóvakíu og víðar
að Alexander Dubcek skuli hafa
fengið ambassadorsstöðu í Tyrk
landi, sem er eitt af NATO-
ríkjunum. Talið er að Husak,
sem er Slóvaki, eins cvg Dubcek,
yrði leiddur fyrir rétt og stal-
inísk vinnubrögð kvaðst Husak
ekki þola. Enrafremur er talið að
Husak hafi fengið grænt Ijós i
Moskva til að reyna að vinna
aftur hylli almennings í Tékkó-
slóvakíu.
SAGA SAUÐÁRKRÓKS
eftir Kristmund Bjarnason.
Stórfróðleg og skemmtileg bók.
, I
„Sagan úr verstöð og verzlunarhöfn lausa-
kaupmanna uppí fullvaxta viðskiptamið'st|öð
og útgerðarbæ.“ ;
• >
Umboð á Sauðárkróki: i
Gunnar Helgason, sími 5233.
Umboð í Reykjavík:
Sigurjón Björnsson, sími 81946.