Alþýðublaðið - 22.12.1969, Side 8
8 Alþýðublaðið 22. diesember 1969
ATVINNUÁSTAND HEFUR BATNAÐ
ÁGÚST H. PÉTURSSON,
PATREKSFIRÐI:
Þrír bátar hafa stundað línu-
veiðar héðan undanfarið, Vestri
Dofri og einnig Látraröst. —
Vestri byrjaði á línu um mán-
aðamótin október—nóvember
og hann hefur fiskað um 250
tonn á þessu tímabili, sem síð-
an er liðið. En hann
varð fyrir því óláni snemma
í desember, að hann lenti á :s-
jaka og brotnaði; hefur hann
verið í slipp í Stykkishólmi til
viðgerðar síðan og er ekki
væntanlegur aftur fyrr en milli
jóla og nýárs. Dofri byrjaði
veiðar með línu um mánaða-
mótin nóvember—desember,
afli hans hefur verið góður og
er Dofri enn á veiðum. Látra-
röst er einnig á veiðum með
línu og hefur hún landað bæði
hér heima og annars staðar.
SMÆRRI BÁTAR
HÆTTIR VEIÐUM
Helga Guðmundsdóttir hefur
verið á síldveiðum á fjarlæg-
um miðum — í Norðursjónum,
en afli hennar hefur verið mjög
rýr. Stærri bátarnir héðan
hafa verið á togveiðum. - —
Þrymur hefur farið tvær sölu-
ferðir til Bretlands og selt mjög
vel. Jón Þórðarson hefur einn-
ig farið tvær söluferðir til Bret
lands og fengið sömuleiðis góða
sölu. María Júlía hefur landað
hér heima. Þorri hefur stöðv-
azt þó nokkum hluta þessa
tímabils vegna bilunar, en hann
hefur lagt afla sinum upp hér
á Patreksfirði einnig. — Allir
smæi-ri bátar eru nú hættir
veiðum; þeir hættu um mán-
aðamótin október—nóvember.
NÆG ATVINNA í
FRYSTIHÚSUM
Nú, atvinna hjá hraðfrysti-
húsinu Skildi hefur verið góð:
þar hafa unnið milli 70 og 80
manns alla daga. — Hraðfrysti-
hús Patreksfjarðar hóf aftur
vinnslu eftir langa stöðvun nú
um miðjan mánuðinn.
HLÉÁ RÓÐRUM
UM JÓLIN
Segja má, að atvinnuástand
hafi batnað fyrir bætt afla-
brögð, en þó eru nokkrir aðil-
ar á atvinnuleysisskrá, og er
það aðallega aldrað fólk. Ég
held, að reikna megi með því,
að hlé verði á róðrum núna
kringum jólin vegna útbúnað-
ar bátanna til vetrarvertíðar.
En segja má, að búast megi við
batnandi atvinnuástandi eftir
áramótin, ef þeir bátar, sem
héðan eru gerðir út, afla sæmi
lega og leggja upp aflanum
heima.
NÝR AKVEGUR
MEÐ SJÓ FRAM
Það heyrir kannski til tíð-
inda, að vegavinna hófst að
nýjum miðjan nóvember við
veginn frá Eiði við Múlanes
um Mjóafjörð, Kálfafjörð og
Hjarðarnes í Vatnsfjörð — og
er nú þessi leið opin fyrir um-
ferð og þar með kominn ak-
Framhald bls. 11.
AUDVELDIÐ YÐUR
MATARUNDIR-
BÚNINGINN
(LÁTIÐ OKKUR UM ERFIÐIÐ)
JÓLASTEIKINA FÁIÐ ÞÉR HJÁ OKKUR
— TILBÚNA í OFNINN —
ÚRVALIÐ ER MEIRA EN YÐUR GRUNAR
Vanti yður eitthvað sérstakt, spyrjið þá verzluna rstjórann.
ATHUGIÐ, AÐ ÞJÓNA YÐUR, ER MARKMIÐ OKKAR!
MATARBÚÐIR
SLÁTURFÉLAGS
SUÐURLANDS
Það er erfitt a
E-MIL HJARTARSON,
FLATEYRI; ,
Hér gerist nú aldrei margt á
skömmum tíma. Þó gerðust þau
tíðindi hér um daginn, að lokið
var við að tengja nýjan veg
um Gemlufahsheiði í Dýra-
fjörð, en framkvæ-mdum við
veginn varð að hætta í hau3t
vegna rigninganna, en nú tókst
sem sagt að tengja endana sam-
an. Það voru nokkur stór ræsi
á veginum, sem ekki tókst að
loka í haust. Gera má ráð fyr-
ir, að með tilkomu þessa nýja
vegar, verði allajafna fært f
Dýraf jörð. En eins og ég hef áð
ur sagt eru samgöngur okkar
á sjó í hinum mesta ólestri. Nú
er námsfólk héðan farið að
(streyma jheim í jóhJjtiii, em
þar sem samgöngur eru því sem
næst engar á sjó, verður það
jafnvel að reyna að fá far með
síldarbátum til að komast heim
fyrir jólin.
Tveir tankbílar mjólkur-
samlagsins skemmdir
DANÍEL ODDSSON,
BORGARNESI:
Það hefur verið fremur rysj-
ótt tíð undanfarið, gengið á
með skúrum og roki. Nú er ver-
ið að skreyta bæinn og fólk
er óðum að komast í jólaskap.
Mikið lif og fjör hefur verið
í viðskiptunum hér eins og
endranær fyrir jólin, en hér
eru starfandi fjórar verzlanir.
(Þegar hér var komið samtal-
inu, kom Gísli Sumarliðason,
deildarstjóri í kaupfélaginu í
símann, en jólabókasalan er á
hans snærum, og hann gaf mér
upplýsingar um bókasöluna og
sagði:) — Bókasalan hér hefur
verið mjög góð og jöfn undan-
farna daga; ég held, að hún ætii
bara að koma vel út í ár. Þó
er erfitt að gera sér fyllilega
grein fyrir bókasölunni enn,
þar sem fjórir stórir söludagar
eru eftir fyrir jól. — Sölu-
hæstu bækurnar hjá kaupfé-
laginu í Borgarnesi kvað Gísli
vera — Lífið er dásamlegt —
eftir Jónas lækni, — Vinur
minn og ég — eftir sr. Svein
Víking að ógleymdum Pétri
Ottesen, sem auðvitað væri
vinsæll í sínu eigin héraði.
Gísli sagði, að einnig seldust
talsvert af Mýramannaþáttum,
en í þeim er að finna staðarlýs-
ingar frá nágrenni Borgarness,
bók Alstairs MacLean — Hetj-
urnar frá Navarone —, bók
Skúla Guðjónssonar á Ljót-
unnarstöðum - Það, sem ég hef
skrifað — og íþróttamannabók-
in — Fram til orustu .
(Nú tók Daníel aftur við sím
anum).
BIFREIÐIN GERSAM-
LEGA ÓNÝT
Tveir mjólkurbilar mjólkur-
samlagsins hér, hvorttveggja
tankbílar, sem flutt hafa mjólk
til Reykjavíkur, urðu fyrir
slæmu óhappi fyrir nokkrum
dögum. Óhöppin urðu aðeins
með tveggja daga millibili.
Hið fyrra varð hjá Grímastöð-
um, en þar rann önnur bifreið-
in út af veginum i hálku. Er
þessi bifreið talin gersamlega
ónýt. Síðara óhappið varð hjá
Brautarholti í Borgarhreppi —
hérna rétt fyrir ofan. Þar hljóp
hestur fyrir bílinn með þeim
afleiðingum, að bíllinn lenti út
af veginum og skemmdist mikið.
NÝJAR MJÓLKUR-
UMRÚÐIR
Nú hafa verið teknar í notk-
un nýjar mjólkur- og rjóma-
pökkunarvélar hjá mjólkursam
laginu; hér er um að ræða V2
lítra fernur fyrir rjóma og 2
lítra fernur fyrir mjóik.
RJÚKANDI RÁÐ
SÝNT
Ungmennafélagið Skallagrím ]
Flh. á 15. siðu.