Alþýðublaðið - 22.12.1969, Blaðsíða 14
14 Alþýðu'blaðið 22. díesember 1969
Siutl framhaldssaga efiir Robert C. Berg.
Smáauglýsingar
Þegar öllu er
lokið...
3.
★
Maðurinn starði ringlaður út í bláinn, og það fóru
kippir um grannan líkama hans.
— Hvað er þetta. ...Hvar er ég?
Þegar Thomas Clausen hafði loksins tekizt að
vekja hann, rétti hann úr sér og gekk nokkur skref
frá rúminu.
— Nú skuluð þér bara taka lífinu með ró, sagði
ftann. — Nafn mitt er Thomas Clausen, og þetta er
Ellen, eiginkona mín.
Hún kinkaði kolli þar sem1 hún stóð frammi við
dyr. Hún hafði ekki hreyft sig úr sporunum, meðan
hún fylgdist með tilraunum eiginmanns hennar til
að vekja ókunna manninn.
— Það var einskær tilviljun, að við fórum hingað
til að líta eftir sumarbústaðnum okkar í dag, sagði
hún.
— Hvað....? Maðurinn settist ringlaður upp
og strauk hendinni þreytulega um höfuðið á sér. —
Er yður ekki sama, þótt þér talið svolítið -hærra?
— Heyrið þér ekki vel? Thomas Clausen hækk-
aði röddina og endurtók það, sem hann hafði verið
að segja.
— Svo. .. .þér eigið þennan sumarbústað hérna!
Hann stóð á fætur og stóð reikull og starði á þau.
— Jæja, svo að þér kærið mig þá líklega fyrir lög-
reglunni.
— Við höfðum nú ekki hugsað okkur það, sagði
Thomas Clausen rólega. —- Við höfðum ætlað okkur
að hlusta fyrst á útskýringar yðar. Heyrið þér það,
sem ég segi?
— Já, nú talið þér nógu greinilega.
— Ég held, að þér þurfið endilega að fá eitt-
hvað að borða! Læknirinn barrdaði með hendinni. —
Komið með mér fram í stofuna... .það er líka
hlýrra þar inni en hérna.
— Það er engu líkara en þér blátt áfram óskið
eftir að veita ræfli eins og mér? sagði maðurinn f
undrandi spurnarróm og gekk á eftir þeim innr að
borðinu, þar sem stóð skál með rjúkandi heitri súpu
með feiknmiklu af niðursoðnu grænmeti f. Hann
horfði á matinn í hrifningu; settist hikandi í stólinnr,
sem honum var ætlaður.
— Þetta er ákaflega elskulegt af yður....
— Fáið yður nú að borða, sagði frú Clausen upp
örvaftdi.
Hann leit snöggt upp:
— Þér megið ómögulega halda, að ég hafi brot-
izt inn til að stela — jæja, hvað annað ættuð þér
svo sem að halda?
— Við skulum nú byrja á því að snæða þessa
stórfenglegu súpu konunnar minnar, sagði Thomas
Clausen og brosti, — og síðan skulum við færa
okkur yfir að kamínunni og ræða málin í rólegheit-
um.
★
Það var enginn vafi á j/í, að hann var saddur og
honum leið afskaplega notalega, þegar þeir settust
í djúpa hægindastólarra fyrir framan kamínuna ti!
þess að gæða sér á sjóðheitu kaffi. Fyrir utan gnauð
aði vindurinn og gegnum gluggann, sem Thomas
hafði tekið hlerana frá, sást hríðarfjúkið dansa í
loftinu áður en það settist í stóra skafla.
— David Klint.... ? endurtók læknirinrr hugs-
andi, meðan hann tróð í pípuna sína eftir að hafa
boðið hinum1 óboðna gesti vindil, sem hann hafði að
vísu afþakkað kurteislega, þar sem hann hafði hætt
að reykja fyrir lörrgu. — Heyrið mig, það er eitt-
hvað kunnuglegt við það nafn?
Frú Clausen kinkaði kolli.
— Þér hljótið að vera tónskáldið og söngvarinn,
sem blöðin skrifuðu svo mikið um fyrir ári?
— Það er ég.... sagði hann, — en það er að
minnsta kosti hálft anrrað ár síðan þér hafið lesið
nokkuð um mig, frú Clausen. Tíminn líður svo hratt,
og hula gleymskunnar hefur fyrir svo löngu fallið
yfir nafn rrritt....
Læknirinn hallaði sér áfram í áttina til hans og
sagði undrandi og næstum fullur vantrúar:
— Já, en blöðin skrifuðu, að þér hefðuð fram-
ið sjálfsmorð?
— Ég ætlaði líka að fyrirfara mér — en þegar á
átti að herða, skorti mig kjark, sagði hann hljóð-
lega. — I bréfinu, sem ég skrifaði til konunnar
minnar, sagði ég; að ég ætlaði að fara í höfnina á
mótorhjólinu iwínu.... allt frá því ég var strákur
hef ég verið vitlaus í að aka á mótorhjóli... .bætti
hann við og brosti varrdræðalega.
— Þeir slæddu í höfninni en fundu ekki mótorhjól
ið, skaut Thomas Clausen inn f.
David Klint hallaði sér aftur á bak í stólnum og
starði hugsandi inn í eldinn.
-— Ég seldi það. mannL.l Norður-Svíþjóð, sem
|
!
i
i
i
i
i
i
i
s
i
I
TRÉSMÍÐAÞ J ÓNUSTA
Látið fagmann annast viðgerSir og viðhald á tréverki húseigna
yðar, ásamt breytingum á nýju og eldra húsnæði. —
Sími 41055
V OLKS WAGENEIGENDUR!
Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Hurðir — Vélarlok — Geymslu
lok á VcSkswagen í allflestum litum. Skiptum á einum degi
með dagsfyrirvara fyrir ákveðið verð. Reynið viðskiptin.
Bílasprautun Garðars Sigmundssonar,
Skipholti 25 — Símar 19099 og 20988.
PÍPULAGNIR . ,
Tek að mér viðgerðir og uppsetningu á hreinlætistækjum,
frárennslis- og vatnslögnum.
GUÐMUNDUR SIGURÐSSON
Sími 18 717
PÍPULAGNIR.
Skipti hitakerfum. Nýlagnir, viðgerðir, breytingar á vatns-
leiðslum og hitakerfum. Hitaveitutengingar. Þétti heita og
kalda krana. Geri við WC-kassa. — Sími 17041.
HILMAR J. H. LÚTHERSSON,
pipulagningameistari.
Jarðýtur - Traktorsgröfur
Höfum til leigu litlar og stórar jarðýtur og traktorsgröfur
cg bílkrana, til allra framkvæmda, innan og utan borgar-
innar.
Heimasímar 83882 33982.
Jarðvinnslan sf.
Síðumúla 15 — Símar 32480 — 31080.
Malur og Bensín ALLAN SÓLARHRINGINN . VEiTINGASKÁLINN, Geithál: íi