Alþýðublaðið - 22.12.1969, Síða 16
RÚNÖLFUR MARTEINSSON
ÆVIiAGA
sáta óíts ISjalnasotial
70i
Lnnijia.fr
Höfundur þessarar merku og fróölegu ævisögu, séra Runólfur Mar-
teinsson, var Austfirðingur að ætt og uppruna, kominn af góðu
bænda- og prestafólki. Hann fluttist vestur um haf 11 ára gamall
með foreldrum sínum', gekk menntaveginn og útskrifaðist frá presta-
skóla í Chicago 1898 með lofsamlegum vitnisburði. Hann þjónaði
síðan sem prestur á ýmsum stöðum meðal íslendinga í Kanada,
jafnframt því, sem hann kenndi við mermtaskóla í Winnipeg, en gerð
ist skólastjóri við Jóns Bjarnasonar skólann í þeirri sömu borg við
stofnun hans 1913, og var það óslitið þar til skólinn hætti störfum
1940. — Hann var rráfrændi og uppeldissonur séra Jóns Bjarnasonar,
sem bók þessi fjallar um og honum sérstaklega handgenginn. hegar
séra Runólfur hætti prestsskap og kennslustörfum, hóf hann að rita
ævisögu séra Jóns, en inn í hana fléttaði hann svo ýmsum merkum
þáttum úr kirkju- og kristindómssögu landa okkar vestan hafs. Um
séra Jón Bjarnason hefur verið sagt, að hann hafi meira en nokkur
annar maður í Vesturheimi mótað trúarskoðarrir íslendinga vestra,
jafnt í Kanada sem í Bandaríkjunum, og hér heima var hann mjög
kunnur fyrir fyririlestra sína, ritgerðir og ræður, enda þjónaði hann
hér sem prestur um nokkurra ára skeið. Séra Jón Bjarnason var
fluggáfaður og mikill hugsjóna- og málafyigjumaður, sem hvarvetna
lagði góðum málum lið. Hann mun1 jafnan verða talinn í hópi hinna
merkustu íslenzku landnema í Vesturheimi.
Ævisaga séra Jóns Bjarnasonar er því safn til sögu íslendinga
Vestanhafs.
SVALBARÐSSTRANDARBOK
Þessi myndarlega og fróðlega bók segir í stórum
dráttum sögu Sivalbarðsstrandar við Eyjafjörð
allt frá landnámstíð til olkkar daga. Þetta er fá-
imenn sveit og var fyrrum bláfátæk, en er nú fyr-
ir dugnað fólksins ein mesta framfarasveit þessa
lands, endá er sagt, að þar búi a.m.k. 23 milljón-
erar. — Bókin er 340 bls., prentuð á góðan pappír
og prýdd 200 myndum af fólki og bændabýlum.
Verð í góðu bandi kr. 375,00, án söluskatts.
NU ER HÆGT AÐ SYNGJA
Skemmtilegar vísur fyrir bömin um jólin, bæði
um jólasveinana og Loðinbarða, því að út eru
komnar tvær bráðskemmtilegar barnabækur í
Ijóðum eftir Valdimar Hólm Hall'stað, með teiton-
ingum Örlygs Kristfinnssonar.
Bækurnar heita:
ÆVINTÝRIÐ AF LOÐINBARÐA og
HLUSTIÐ ÞIÐ KRAKKAR.
Hver bók kostar kr. 48,00.
Bókaútgáfan EDDA Akureyri