Helgarpósturinn - 14.11.1994, Qupperneq 8
8
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1994
smaa
letriö
Kynslóðin sem man
allt sem engu skiptir
Þórarinn Eldjárn var að senáa frá sér
bók. Hún heitir „Ég man“ og hefur und-
irtitilinn „480 glefsur úr gamalli nútíð". (
eftirmála stefndur að bókin sé stolin
hugmynd frá franska rithöfundinum
Georges Peres. Hugmyndin gengur út
á að skrifa hjá sér fánýtt og ómerkilegt
smælki sem allir á svipuðu reki eigi
sameiginlegt.
Tíu dæmi af handahófi úr bók Þórarins:
„Ég man kjötbúðina á Sólvallagötu 9 og
spjald upp á vegg sem á stóð „Fíl-
hraust börnin borða ost“.
„Ég man Skoruvík á Langanesi."
„Ég man Þjóðvamarflokkinn og Frjálsa
Þióð.“
„Eg man umræðuþætti Sigurðar Magn-
ússonar í útvarpinu. Hétu þeir Spurt og
spjallað?“
„Ég man sokkaverksmiðjuna Evu á
Akranesi.“
„Ég man stöðurnar í fótboltanum:
Kantur, ving, senter, habbakk, haffsent,
fúllbakk. Víti hét stroffí og rangstaða að
vera á sæd.“
„Ég man Southern Comfort."
„Ég man tvistbeltin."
„Ég man Jón B. Gunnlaugsson."
„Ég man „Hrein torg, fögur borg“.“
Það eru 480 svona glefsur í bókinni.
Hún endar á „Ég man þegar ég eignað-
ist fyrst greiðu úr „plastiki“.“
Þórarinn Eldjárn er af sextíuogáttakyn-
slóðinni. Fyndnu kynslóðinni, sem ein-
hver kallaði svo. Þessi kynslóð hefur
helst sett mörk sín í listasöguna með
endalausum smásögum og smámynd-
um af sjálfum sér. Ekki sjáifum sér sem
einstaklingum heldur fyrst og fremst
sjálfum sérsem kynslóð. Hún er í enda-
lausri leit að identitíi, einhverjum sönn-
unum þess að hún sé til sem kynslóð
og eigi sér einhvem bakgrunn sem
sameinar hana. Þannig eru Ijóð og sög-
ur Þórarins, Einarana, Steinunnar og
allra hinna og þannig
eru myndir Hrafns og Friðriks. Við hin
sem annað hvort komum á undan eða
eftir þessari kynslóð kunnum orðið ut-
an að sjónvarpsdagskrána í Kananum
þegar þau voru ung, prógrömmin í bíó-
unum, auglýsingarnar sem héngu uppi
á veggjum, verslanirnar sem þá voru
opnar. Hvert um sig hefur þetta fólk
sagt okkur frá dauða Kennedys, jóla-
eplunum, fyrstu uppáferðunum og öll-
um dúfunum sem þau áttu. Bók Þórar-
ins er nokkurs konar endapunktur við
þesasa leit. Það er erfitt að sjá hvernig
henni getur haldið áfram. Að hverju er
hægt að komast þegar Ijóst er að Þór-
arinn man bæði eftir hrismjölsvelling,
sjónvarpsþætti The Monkees og tví-
bökum sem voru muldar út í sætsúpu. (
þessum staðreyndum kristallast sjálfs-
mynd þessarar kynslóðar. Þetta er kyn-
slóðin sem man svo margt vegna þess
að henni finnst svo merkilegt að hún
skuli muna.
En það má líka nota bókina hans Þórar-
ins til að átta sig á hverju þessi kynslóð
man ekki eftir. Og ef til vill liggur identí-
tet hennar einmitt i því frekar en öllu því
smáa sem hefur safnast í hausnum á
henni.
Þórarinn er svo Ijúflegur að hann hefur
nafna- og atriðaskrá aftast í bókinni.
Þar kemur fram að hann man eftir Allan
Delon en ekki Davið Oddssyni. Hann
man eftir Dögum víns og rósa en ekki
Degi Sigurðarsyni. Hann man eftir
Hjalta litla en ekki Hrafni Gunnlaugs-
syni. Hann man eftir Nínu og Friðriki en
ekki Nixon. Hann man eftir KRON við
Skólavörðustíginn en ekki Kastró.
Hann man eftir Valdimari Örnólfssyni
en ekki Víetnam. Hann man eftir Sigurði
A. Magnússyni en ekki Sartre. Hann
man eftir Dýrlingnum en ekki Bob Dyl-
an. Hann man eftir DBS-hjólum en ekki
Dieter Roth. ■
Alþýðubandalagið á Norðurlandi vestra hafnaði Unni
Kristjánsdóttur á framboðslista. I framhaldi af því sagði hún
sig úr miðstjórn og framkvæmdastjórn flokksins
„Alþýðubandalags-
konur tolla skemur
á framboðslistum“
Unnur Kristjánsdóttir hlaut ekki náð fyrir augum uppstillingarnefndar
hjá Alþýðubandalaginu í norðurlandskjördæmi vestra. „Alþýðubanda-
lagið hefur lengi gefið sig út fyrir að vera flokkur sem leggur áherslu á
jafnrétti kynjanna en samt er það undantekning ef konur sitja í launuð-
um nefndum og ráðum.
„Alþýðubandalagskonur tolla
skemur á framboðslistum en konur
í öðrum flokkum,“ segir Unnur
Kristjánsdóttir frá Blönduósi sem
var hafnað af uppstillingarnefnd í
4. eða 5 sæti, sem hún sóttist eftir á
framboðslista Alþýðubandalagsins
á Norðurlandi vestra fyrir komandi
alþingiskosningar. Ekki er ljóst
hver mun skipa sætið.
„Ég gaf kost á mér því það var
búið að margkalla eftir tillögu í
þessi sæti. I uppstiilingarnefnd sitja
eintómir karlmenn, formenn Al-
þýðubandalagsfélaganna. Ég hafði
stuðning um tíu kvenna úr Húna-
vatnssýslu en það hafði ekkert að
segja.
Alþýðubandalagið hefur lengi
gefið sig út fýrir að vera flokkur
sem leggur áherslu á jafnrétti kynj-
anna en samt er það undantekning
ef konur sitja í launuðum nefndum
og ráðum fyrir flokkinn."
Tilgáta Unnar er sú að konur sitji
að meðaltali skemur í efstu sætum
framboðslistanna hjá Alþýðu-
bandalaginu en konur hjá Sjálf-
stæðisflokki og Alþýðuflokki. Hún
segir að færri konur sitji ofarlega á
listum þessara tveggja flokka í sam-
anburði við hennar flokk en þær
hafi hins vegar tækifæri til að sitja
lengur.
„Ein skýringin er vafalaust sú að
lengi hafa verið starfandi kvenfélög
Guðrún Ágústsdóttir forseti
borgarstjórnar. „Það er nokkuð til
í því að ef farið er út fyrir þing-
mannahópinn þá sitji karlmenn
frekar í nefndum og ráðum fyrir
flokkinn en konur.“
innan Alþýðuflokks og Sjálfstæðis-
flokks en fyrir nokkrum mánuðum
var fyrst sett á fót félag Alþýðu-
bandalagskvenna. Ég hygg að hjá
Framsóknarflokknum séu fram-
boðsmál kvenna í svipuðum farvegi
og hjá okkur í Alþýðubandalag-
inu.“
Unnur hyggst ekki starfa frekar í
framkvæmda- og miðstjórn Al-
þýðubandalagsins vegna þessa máls
en hún ætlar ekki að segja sig úr
flokknum. Hún skipaði 3. sæti á
lista flokksins fyrir kosningarnar
1987 en var í því 10. fyrir síðustu
kosningar. í fimm ár var hún gjald-
keri flokksins.
Guðrún Ágústsdóttir, forseti
borgarstjórnar, segir að Alþýðu-
bandalagið sé með kynjakvóta þeg-
ar um er að ræða trúnaðarstörf í
miðstjórn og framkvæmdastjórn
og væri þá miðað við 40 prósent
hlutfall kvenna. Sú regla gildi hins
vegar ekki ennþá um framboðslist-
ana. „Ég hef ekki kannað hvort
konur sitji skemur á framboðslist-
um okkar en í öðrum flokkum og
treysti mér ekki til að fullyrða um
það. En það er nokkuð til í því að ef
farið er út fyrir þingmannahópinn
þá sitji karlmenn frekar í nefndum
og ráðum fyrir flokkinn en konur,"
segir Guðrún.
„Konur í öllum flokkum hafa átt
undir högg að sækja í stjórnmálum.
Ólafur Ragnar Grímsson for-
maður Alþýðubandalagsins.
„Konur hafa lengi verið á fram-
boðslistum okkar og verið áber-
andi. Þessi mál þarf hins vegar að
bæta hjá okkur eins og hjá öðrum
flokkum."
1 öðrum flokkum hefur konum far-
ið fjölgandi að undanförnu en hjá
okkur hefúr þróunin staðið í stað.“
MORGUNPÓSTURINN bar tilgátu
Unnar undir Ólaf Ragnar Gríms-
son, formann Alþýðubandalagsins.
„Fljótt á litið held ég að þessi tilgáta
sé ekki rétt þó ég hafi ekki séð neina
sérstaka athugun á því. Konur hafa
lengi verið á framboðslistum okkar
og verið áberandi. Þessi mál þarf
hins vegar að bæta hjá okkur eins
og hjá öðrum flokkum.“
-HM
Bætifláki
Sviksemi hefur aukist í sölu á notuðum bílum
í Tímanum í síðustu viku greinir
Runólfur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Félags ís
lenskra bifreiðaeigenda, frá
því að mikil aukning hafi
orðið hjá tæknimanni og
lögmanni félagsins vegna
mála sem tengjast ákveð-
inni sviksemi í sölu á not-
uðum bílum og nefnir hann
bæði sölu bíla í gegnum dag-
blaðaauglýsingar og á bílasölum.
Það hefur löngum loðað fremur
við stétt bílasala en aðrar stéttir að
þar væri að finna rnenn sem víluðu
ekki allt fýrir sér í viðskiptum. Orð
Runólfs og þau dæmi sem hann
nefnir til sögunnar, benda til þess
að það álit sé ekki alfarið úr lausu
lofti gripið, en hann segir meðal
annars í Timanum að það hafi
færst í vöxt að logið sé til
um ástand bíla þar sem
vísvitandi eru gefnar upp
1 rangar upplýsingar um
I ástanda ökutækjanna. Að
sögn Runólfs er þetta
vandmaál sífellt að verða
umfangsmeira eftir því sem
harnað hefur í ári á bílamark-
aðinum.
Viktor Urbancic bílasali
„Það er alltaf verið að klína
svona málum á bílasalana. Ef
einhver kaupir bíl af bílasala
sem bilar viku seinna er sagt
að að helvítis bílasalinn hafi
platað ónýtum bíl inn á viðkom-
andi. Það eru rúmlega 60.000
bílar sem skipta um eigendur á
hverju árí og ég held að þessi
dæmi, kannski 200-300 kærur
hjá FÍB á ári, séu fá miðað við
þann fjölda af bílum sem skipta
um eigendur. Ég held að það sé
áreiðanlega minna um svik-
semi i bílaviðskiptum en í ýms-
um öðrum viðskiptum, sjáðu til
dæmis kjötiðnaðarmennina
sem bæta kindakjöti í nauta-
hakkið. Það eru fleiri hundruð
manns sem vinna við þetta fag,
það eru um það bil 30 bílasölur
í Reykjavík og 3-5 sölumenn á
hverri, og auðvitað eru ein-
hverjir glæpamenn í hópnum
eins og er í öllum greinum.
Þetta eru kannski tveir til þrír
aðilar sem allir vita að eru
óheiðarlegir en það er bara ör-
litið prósent af hópnum. Það er
fullt af góðum drengjum sem
vinna við þetta. Mér finnst ekki
ólíklegt að þessi aukna svik-
semi sé fyrst og fremst í milli-
liðalausri sölu bíla í gegnum
smáauglýsingar. Núna eru
komin ný lög um að menn verði
að þreyta ákveðin próf til að fá
löggildingu sem bíiasalar á
sama hátt og fasteignasalar og
verðbréfasalar, þessi lög kveða
einnig á um það að bílasalar
beri ábyrgð á samningsgerð-
inni og fyrir 1. mars á næsta ári
eiga allir bílasalar að vera bún-
ir að leggja fram ákveðna
tryggingu. Eftir að þessi lög
taka gildi verður verra að
versla bíl í gegnum dagblöð þar
sem engin ábyrgð er, en á bíla-
sölu, þvf ábyrgð bílasala vegna
samningsgerðarinnar er mjög
skýr.“ ■
Grindavík
Kona kærir
nauðgun
Um hálfátta-leytið að morgni
sunnudagsins kærði kona á fertugs-
aldri karlmann á þrítugsaldri fýrir
nauðgun. Hin meinta nauðgun átti
sér stað á heimili konunnar og voru
ekki aðrir en þau á heimilinu. Hinn
grunaði var handtekinn og færður til
yfirheyrslu hjá lögreglunni í Kefla-
vík. ■
Reykjavík
Brotist inn
ítónlistar-
skóla
Aðfaranótt laugardags var brotist
inn í tónlistarskóla í Skeifunni. Litlu
var stolið en töluverðar skemmdir
unnar á húsnæðinu. Ekki er ljóst
hver eða hverjir voru þarna á ferð en
málið er í rannsókn. ■
Hafnarfjörður
Brotistinn
íTilveruna
Óvelkomnir gestir gerðu sig
heimakomna í veitingastaðnum Til-
verunni í Hafnarfirði aðfaranótt
laugardagsins. Einhverju áfengi var
stolið en litlar skemmdir unnar á
staðnum. Þjófarnir eru enn ófundn-
ir. ■
Vestmannaeyjar
Ólæti eftir
SSSól-ball
Mikill gleðskapur var í Vest-
mannaeyjum aðfaranótt sunnudags-
ins í kjölfar tónleika SSSól í Höfðan-
um. Einn var tekinn fýrir ölvunar-
akstur, annar gisti fangageymslur
lögreglunnar fýrir ölvunaróspektir
og miklar skemmdir voru unnar á
bíl, meðal annars var stungið á öfl
dekk bílsins. Fram eftir morgni var
talsverður erill hjá lögreglunni, ekki
síst vegna ólæta í heimahúsum. ■
Selfoss
Þriár veltur
vio Mókeldu
Þrír bílar ultu á sama hálkublett-
inum um helgina. Lögreglan á Sel-
fossi segir orsökina ísingu sem
myndaðist á Suðurlandsvegi í Flóan-
um til móts við Mókeldu. Nýr BMW
og Wolksvagen Jetta ultu á laugar-
deginum og á sunnudeginum valt
jeppi með þrjá hesta í kerru á sama
stað. I kjölfar þriðju veltunnar var
sandur settur á ísingakaflann. ■
Akureyri
Rúðubrot
ÍKEA
Aðfaranótt laugardagsins var
nokkuð erilsöm á Akureyri. Ölvaður
karlmaður braut rúðu í vörugeymslu
KEA og gisti fangageymslu lögregl-
unnar og kona braut rúðu í verslun-
inni Hjá Hönnu. Þrír voru teknir
fyrir ölvunarakstur og drukkinn
maður gekk fýrir bíl við ráðhústorg-
ið. Hann var fluttur á sjúkrahús en
meiðsl hans voru ekki alvarleg. ■
Borgarnes
TværveHur
við Grafarkot
Um þrjúleytið á föstudaginn fóru
tveir biíar útaf á þjóðveginum við
Borgarnes hjá eyðibýlinu Grafarkot.
Tæp klukkustund leið mifli bílvelt-
anna en hálka hafði myndast á vegin-
um. Bílarnir voru nokkuð skemmdir
en engin slys urðu á fólki. ■