Helgarpósturinn - 14.11.1994, Síða 13

Helgarpósturinn - 14.11.1994, Síða 13
r It' MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1994____________________________MORGUNPÓSTURINN ERLENT_______________________________________________________13 Evrópusambandið Svíarsegja já Fylgismenn Evmpusambandsaðildar unnu góðan sigur íþjóðaratkvæðagreiðslunni í Sviþjóð. Sænskir stjómmála- menn eru himinlifandi og kollegar þeirra í Evrópu fagna inngöngu Sviþjóðarí Evmpusambandið. Það fór eins og skoðanakannanir spáðu að mjótt var á mununum í þjóðaratkvæðagreiðslunni í Svíþjóð í gær. Evrópusambandssinnar höfðu þó ágætan sigur og fengu 52.2 af hundraði atkvæða gegn 46.9 atkvæða andstæðinga aðildar að Evrópusambandinu. Aðeins 0.9 prósent kjósenda skiluðu auðu. Kjörsókn var 82 af hundraði sem þykir nokkuð gott. Stjórnmálamenn í Svíþjóð sem hafa lagt allt undir til að koma landinu inn í Evrópusambandið voru að vonum mjög ánægðir. Ing- var Carlsson forsætisráðherra lýsti yfir sigri í kosningunum á tíunda tímanum í gær og sagði að þetta væri „gott fyrir Svíþjóð og gott fyrir Evrópu“. Carl Bildt, fyrrum forsætisráð- herra og helsti leiðtogi hægri- manna, tók í sama streng og sagði að þetta væri stór dagur fyrir Sví- þjóð. Líkt og búist hafði verið við kaus fólk til sveita og í norðurhéruðum Svíþjóðar flest gegn Evrópusam- bandinu. I borgunum Stokkhólmi og Málmey hafði Evrópusam- bandsaðild hins vegar nokkuð yfir- gnæfandi fylgi. Evrópskir stjórnmálamenn hafa verið mjög fagnandi yfir þessum úrslitum. Klaus Kinkel, utanríkis- ráðherra Þýskalands, hrósaði Svíum fyrir hugrekki. Franz Vran- itzky, kanslari Austurríkis, sagðist hæstánægður með að fara í sam- fylgd með Svíum inn í Evrópusam- bandið. Niels Helveg Petersen, ut- anríkisráðherra Danmerkur, óskaði þeim til hamingju og sagði að þetta væri tímamótaatburður, ekki bara fyrir Svía, heldur fyrir Norðurlönd og fyrir Evrópu. „Svíar verða góðir meðlimir í Evrópu og við Danir hlökkum til að starfa með þeim á þeim vettvangi.“ Jacques Delors, sem brátt lætur af störfum formanns framkvæmda- stjórnar Evrópusambandsins, leyndi heldur ekki ánægju sinni. Hann sagði að þetta væri í fyrsta lagi traustsyfirlýsing til Evrópu og í öðru lagi væri það ánægjulegt að auðga Evrópu með stefnu Svía í fé- lags- og umhverfismálum. Þetta þýðir að Svíþjóð mun ganga inn í Evrópusambandið í byrjun næsta- árs, 1. janúar 1995. Ásamt Svíum munu Finnar og Austurríkismenn ganga í bandalag- ið — og ef til vill Norðmenn. Þar hafa verið teikn á lofti um að lands- menn muni líklega hafna aðild að Evrópusambandinu í þjóðarat- kvæðagreiðslu 28. nóvember og til þess benda allar skoðanakannanir. Úrslitin í Svíþjóð eru talin geta breýtt miklu þar um. Norðmenn hafa mjög mænt yfir landamærin til Svíþjóðar og víst er að þessi sigur sænskra Evrópusambandssinna veldur andstæðingum Evrópusam Kosningaúrslitin í Svíþjóð fá Ingvar Carlsson greiðir atkvæði í gær: „Gott fyrir Svíþjóð og gott fyrir Evrópu.' blendnar viðtökur í Noregi. Stuðn- ingsmenn inngöngu Noregs í Evr- ópusambandið voru himinlifandi og fögnuðu Torbjörn Jagland, for- maður Verkamannaflokksins, og Jan Petersen, formaður Hægri- flokksins, úrslitunum. Sá síðar- nefndi sagði að nú væri aðeins spurt um hvort Noregur vildi standa einn eða hvort hann vildi hafa áhrif á umhverfi sitt. Anne Enger Lahnstein, formað- ur Miðflokksins og einn helsti leið- togi Evrópusambandsandstæðinga, sagði að hún hefði ekki breytt þeirri skoðun sinni að Norðmenn myndu hafna aðild. Erik Solheim, leiðtogi sósíalista, sagði að hörð barátta yrði háð næstu vikurnar og hélt því fram að nú myndu Evrópusinnar ausa fé í gríðarlega auglýsingaher- ferð. „Við munum fá að horfa upp á aðferðir sem við þekkjum ekki nema frá Bandaríkjunum," sagði Solheim. Indónesía Clinton hítftir Asíuleiðtoga Gates kaupir Leonardo Upplýst hefur verið að það var Microsoft-kóngurinn, Bill Gates, sem keypti handrit eftir Leonardo da Vinci á uppboði á föstudag. Hand- ritið sem inniheldur teikningar og útlistanir eftir meistarann var boð- ið upp hjá Christie’s uppboðshúsinu, en áður var það í eigu auðkýf- ingsins Armand Hammer. Gates greiddi um tvo milljarða fyrir verkið. Bill Clinton Bandaríkjaforseti kom í gærkvöld til Djakarta í Ind- ónesíu. Þar á hann fund með helstu leiðtogum Asíuríkja og er umræðu- efnið bvernig hægt sé að brjóta nið- ur viðskiptamúra milli ríkjanna. Það eru fulltrúar átján ríkja sem sitja fundinn, meðal þeirra Jiang Zemin forsætisráðherra Kína og Tomichi Murayama forsætisráð- herra Japans. Clinton þarf nauðsynlega á því að halda að einhver árangur verði af fundinum eftir hroðalega útreið Demókrataflokksins í þingkosning- unum á þriðjudaginn. Auk efna- hagsmála verður rætt um Norður- Kóreu og kjarnorkuvæðinguna þar í landi. Heimsókn Clintons fer frapi í skugga atburða sem gerst hafa í bandaríska sendiráðinu í Djakarta. Þar hafa tuttugu og níu stúdentar frá Austur-Timor setið í tvær næt- ur. Þeir heimta að Bandaríkjamenn leggi þeim lið í baráttunni gegn Ind- ónesíumönnum. Austur-Timor var áður fyrr portúgölsk nýlenda, en Indónesíumenn lögðu landið undir sig eftir að því var veitt frelsi 1975.■ Clinton reynir að bjarga andlitinu. Mótmæli á Ítalíu Vinnið meira segir Berlusconi Einhver stærsta mótmælaganga fyrr og síðar var farin í Róm um helgina þegar rúmlega milljón ítalir flykktust út á götur að frumkvæði verkalýðsfélaga. Fólkið mótmælti áformum stjórnvalda um að skera niður í heilbrigðiskerfinu og lækka eftirlaun. Mótmælin þóttu fara mjög friðsamlega fram og minntu reyndar nokkuð á kjötkveðjuhátíð. Verkalýðsfélög vilja að fjárlagatil- lögur verði endurskoðaðar og saka Silvio Berlusconi forsætisráð- herra um að umgangast sig með fýrirlitningu. Berlusconi hafði svar á reiðum höndum. Skilaboð hans til göngu- manna voru: „Menn eiga að vinna, ekki leggja niður vinnu.“ Hann seg- ir að það séu einfaldlega ekki til meiri peningar. Vinstri menn segja að ummæli Berlusconis minni skuggalega á tíma Mussolinis. í göngunni voru borðar þar sem stóð að hann væri nýr duce. Vinstri flokkar þjarma nú nokkuð að ríkisstjórn Berlusconis og í dag þarf hann að verjast van- trausti í þinginu. Ekki bætir það úr skák að samstarfsmenn Berlusconis í ríkisstjórn, Gianfranco Fini for- maður nýfasista og Umberto Bossi formaður Norðurfylkingar- innar, sækja líka að honum. Þeir Berlusconi: Nýr duce? hyggjast að vísu styðja Berlusconi í þinginu í dag, en Bossi lýsti því þó yfir að hann væri fullur skilnings á áhyggjum eftirlaunaþega.B Taslima Nasrin „Kóraninn er sögubók" Taslima Nasrin, rithöfundur- inn frá Bangladesh sem íslamskir bókstafstrúarmenn hafa dæmt til dauða, ætlar ekki að láta kúga sig. Um helgina var hún í Ástralíu og lýsti því yfir í sjónvarpsviðtaii að Kóraninn, trúarrit múslima, sé sögulegt rit. Hún sagði að öll trúar- brögð stuðluðu að kúgun kvenna, þau væru því tímaskekkja. Aðspurð hvort hún óttaðist ekki að tala svona sagði hún að bókstafstrúar- menn væru vissulega óðir og stór- hættulegir. „En,“ bætti hún við, „ég er manneskja og hef fullan rétt til að segja hug minn allan.“ ■ Taslima Nasrin: „Ég er mann- eskja og hef fullan rétt til að segja hug minn allan." hommal Kaþólskur prestur, 67 ára að aldri, fannst látinn í hommabaðinu Incognito í miðborg Dublin í gær. Að sögn starfsmanna baðhússins var hann fastagestur. Það var lán prestsins að þarna voru líka staddir tveir starfsbræður hans sem gátu veitt honum síðustu smurningu. ■ Ræningjar Kínverjar sýna afbrotamönnum enga linkínd frekar en fyrri daginn og á laugardag var skýrt frá því að átta lestarræningjar hefðu verið teknir af lífi. Glæpaflokkurinn hafði rænt lestir í Mið-Kína 47 sinnum síðasta árið og hafði haft sem nemur þremur og hálfri millj- ón íslenskra króna upp úr krafsinu. Aftökur í Kína fara fram með því að skjóta byssukúlu af stuttu færi í höfuð dauðadæmdra.H Zhírínovskjj nóg boðið Rússneski þjóðernissinninn kjaftfori, Vladimir Zhírínovskíj, segist vera orðinn leiður á að vera eilíflega spurður hvort hann sé gyð- ingahatari, aðdáandi Hitlers og hvort hann vilji að Rússland eignist Alaska og Finnland á nýjan leik. Zhírínovskíj dvaldi hjá Sameinuðu þjóðunum í New York um helgina og sagði á fundi með blaðamönn- um að oftar en ekki hefði verið snú- ið út úr ummælum sínum. ■ BushogGor- batsjov vinir George Bush fyrrverandi Bandaríkjaforseti og Mikhail Gor- batsjov fýrrum Sovétleiðtogi stálu senunni á fundi stjórnmálahugsuða og gamalla pólitíkusa sem haldinn var í Rimini á Ítalíu í gær. Bush tal- aði fallega um mótherjann sinn gamla og sagði að það hefði verið ánægjulegt að starfa með honum. Hvemig kusu Kanar? Rebúblikanar unnu sem kunn- ugt er stórsigur í bandarísku þing- kosningunum á þriðjudag. En það er ekki sama hverjir kjósa. Eins og sést á meðfylgjandi töflum er gríðarlegur munur á stuðningi re- búblikana og demókrata eftir því hvort fólk er gyðingar, kaþólikkar, menntafólk, karlar eða konur. llKyn D R Karlar 57% 43% Konur 47% 53% R Hvítir 42% 58% Svartir 91% 9% . Spænskættaðir 61% 39% | Aldur D R 18-29 50% 50% 30-44 46% 54% 45-59 48% 52% 60 og eldri 49% 51% 1 Menntun D R Grunnskólapróf 61% 39% Framhaldspróf 48% 52% Háskólanám 41% 59% Háskólapróf 45% 55% 1 1 Trú D R Mótmælendur 40% 60% Kaþólikkar 50% 50% Aðrir kristnir 49% 51% Gyðingar 81% 19% Trúleysingjar 60% 40% t

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.