Helgarpósturinn - 14.11.1994, Page 14

Helgarpósturinn - 14.11.1994, Page 14
14 MORGUNPÓSTURINN SKOÐUN MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1994 Pásturihn Utgefandi Ritstjórar Fréttastjóri Framkvæmdastjóri Markaðsstjóri Setning og umbrot Filmuvinnsla og prentun Miðill hf. Páll Magnússon, ábm Gunnar Smári Egilsson Sigurður Már Jónsson Kristinn Albertsson Þórarinn Stefánsson Morgunpósturinn Prentsmiðjan Oddi hf. Verð í lausasölu kr. 195 á mánudögum og kr. 280 á fimmtudögum. Áskriftarverð er kr. 1.300 á mánuði fyrir tvö blöð í viku. Þeir sem greiða með greiðslukorti fá 100 króna afslátt. Tímamót Með þeirri ákvörðun fyrrverandi félagsmálaráðherra, að segja af sér í kjölfar umræðna og efasemda um þann siðferðislega grunn, sem ýmsir þættir í embættisfærslu hans byggðust á, hafa orðið umtalsverð tímamót í pólitískri umræðu á íslandi. Fáir ef- ast um, að Guðmundur Árni gerði rétt í að láta af embætti, og það endurspeglast í nýrri skoðanakönnun, sem Morgunpóstur- inn gerði um helgina og birtist í blaðinu í dag, þar sem um 95 prósent aðspurðra telja ákvörðun hans rétta. En það býr talsvert meira að baki siðferðisumræðu síðustu vikna og mánaða en mál Guðmundar Árna ein og sér. I víðasta skilningi snýst umræðan um það hvernig farið er með fjármuni almennings og með hvaða hugarfari opinberir valdsmenn, kjörnir eða ráðnir, rækja sín störf. Því verður að treysta, að stjórnmálamenn - sér í lagi ráðherr- ar - hafi lært sína lexíu af máli Guðmundar Árna. Sumt af því sem áður var tekið gott og gilt í embættisfærslu ráðherra verður einfaldlega ekki liðið lengur. Að gefnu þessu fordæmi félags- málaráðherrans fyrrverandi munu ráðherrar framvegis gjalda fyrir sambærilega háttsemi með starfi sínu. Jafnvel þótt þeir komist ekki að þeirri niðurstöðu sjálfir, þá mun almenningur hér eftir refsa þeim stjórnmálaflokkum grimmilega, sem líða ráðherrum sínum vinnubrögð af þessu tagi. Almenningsálitið hefur einfaldlega breyst, - kröfurnar hafa aukist og stjórnmálamönnum og flokkum er hollast að komast sem fyrst í takt við tíðarandann. Það er í raun lítil hætta á öðru, en að stjórnmálamenn muni hér eftir ganga hægar um gleðinnar dyr, því þeir eiga allt sitt undir því. Það er meiri hætta á því, að þaulsætnir og sjálfum- glaðir embættismenn í æðstu stöðum læri bæði seint og illa, enda virðast þeir ekki þurfa að standa einum eða neinum skil gerða sinna, - - jafnvel ekki ráðherrum. Guðmundur Árni sagði, að sumt af því sem þótti ámælisvert í framgöngu hans hafi í raun aldrei komið inn á hans borð, heldur verið afgreitt af til- teknum embættismönnum. Ráðherra getur auðvitað ekki vikist undan hinni pólitísku ábyrgð á gjörðum undirmanna sinna, en þeir eiga heldur ekki að komast undan hinni faglegu ábyrgð gagnvart honum. Sum þessara atriða eru þess eðlis, að hafi embættismenn tekið um þau ákvarðanir, án afskipta eða tilmæla ráðherra, hefði átt að víkja þeim úr starfi þegar í stað. Raunar er verulegur hluti skýrslu Ríkisendurskoðunar einn samfelldur áfellisdómur yfir því hvernig rekstri heilbrigðis- og tryggingaráðuneytisins er háttað. Einföldustu bókhaldsreglum er ekki fylgt, - uppáskriftum reikninga og eftirliti með ýmsum kostnaðarliðum er ábótavant og þar fram eftir götunum. Um utanlandsferðir á vegum ráðu- neytisins segir Ríkisendurskoðun meðal annars: „Mörg dæmi eru um að margir mánuðir líði frá lokum ferðar þar til uppgjöri hennar er lokið með ferðareikningi. Slíkar ferðir ber að gera upp innan mánaðar frá því að þeim lýkur skv. reglum nr.39/i992a. Skýrsla Ríkisendurskoðunar og raunar ýmislegt annað, sem fram hefur komið um rekstur þessa ráðuneytis undanfarnar vikur, gerir það óhjákvæmilegt, að starfshættir þess verði endur- skoðaðir frá grunni. Mönnum hrýs hugur við því, að fjárfrek- asta ráðuneyti ríkisins skuli vera rekið með þessum hætti. Aðalatriði málsins er þó það, að öll þessi umræða undanfarn- ar vikur og mánuði hefur verið til góðs, og hún mun bæta stjórnsýsluna í þessu landi. Og þótt einum kafla sé nú lokið má aðhaldinu með valds- mönnum aldrei linna. Páll Magnússon Posturmn Miðill hf., Vesturgötu 2, 101 Reykjavik, simi 2 22 11 Beinir símar eftir lokun skiptiborðs: Ritstjórn 24666, tæknideild 24777, auglýsingadeild 24888 og dreifing 24999 Símbréf ritstjórnar 22243 - Símbréf auglýsingadeildar 22241 - Símbréf afgreiðslu 22311 Ummæli Aþáað sf, Ad.% ) leggja niður L> dómstólana? W „Dœmið ekki j'vo að ^i í þér verðið ekki sjálfir dæmdir. “ &JL ' Guðmundur Árni sið- bótarábóti LA'J Er ráðherrann, Ríkisendur- skoðun eða qölmiðlamir óværa? „Með þessari ákvörðun sinni hjálpaði Guðmundur Alþýðuflokkn- um að reka þessa óvœru af sér... “ Jón Baldvin Hannibalsson varnarjaxl „Ég tel þess vegna að sú afstaða sem ég tók, að boða vantrauststillög- una, hafi sett þessa atburðarás í ákveðinn farveg sem hafi leittþetta til lykta. “ Ólafur Ragnar Gump Tíminn andsnúinn konum Það er hcegt að tína til ótal höf- unda, karla og konur, sem kannski hefði verið ástœða til aðfialla um í þættinum. Tíminn leyfði það því miður ekki. “ Jón Hallur Stefánsson karlrembusvín Að lýsa eða leysa Fastur liður í daglegum störfum mínum er að taka upp ókjör af pósti. Dágóður hluti hans eru viða- mikil rit sem útlista atvinnuleysi víða um heim. Þegar maður horfir á haugana sem hlaðast upp af skjalabunkum af þessu tagi þá kviknar auðveldlega sú hugmynd að full miklu púðri sé eytt í það í heiminum að útlista vanda at- vinnuieysisins og of litlu í að leysa hann. Útbreitt vandamál Þetta virðist eiga við á fleiri svið- unr. Um leið og menn fara að leita þekkingar um eitt eða annað og komið er á samband við sæmilegar uppsprettur upplýsinga þá gýs fram flaumur athugana og útlistana á hinum fjölbreytilegustu vandamál- um. Hugmyndir að lausnum eða raunverulegar lausnir eru á hinn bóginn oft hlutfallslega fáar. Mér segir svo hugur um að við búum við hefð mennta og rann- sókna sem gerir lýsingum of hátt undir höfði á sama tíma og lausnir og lausnarhyggja á stundum ógreiða leið upp á pallborðið. Þyki jafnvel óvirðulegt eða óraunsætt at- hæfí innan um og saman við allar athuganirnar. Þetta birtist meðal annars í því að innan menntakerfis- ins eru hvers kyns sagnaþulur, end- urtekning á hugsunum annars fólks eða útlistun ríkjandi ástands urn- svifamikil og yfirgnæfandi iðja en frumlegt, skapandi og sjálfstætt starf oft hlutfallslega rýrt. Jafnvel litið hornauga þar sem örlar á því. Ofkeyrðar endursagnir Skoðun mín er sú að það sé búið að ofgera svo endursögnum og eft- irhermum þessum að margar af- urðir menntakerfísins séu til lítils annars nýtilegar en að herma eftir virðulegum átóríterum. Helst framliðnum. Ellegar að gerast spor- göngumenn annarra sporgöngu- manna til þess eins að endurtaka eftir minni óg samkvæmt bestu samvisku utanaðbókarlærða hluti. Stundum gagnrýnislaust. Til þess að lýsa því sem fyrir augum ber í stað þess að bregða upp myndum af því sem gæti verið. Til að endur- Þungavigtin " 1 JÓN Erlendsson ■ yfirverkfræðingur segja sögur fremur en að segja sög- ur. Til að útlista fortíðina í stað þess að skapa framtíðina. Til nærsýnnar nafiaskoðunar fremur en hugar- flugs. Þörf fyrir afrek í nútíðinni Ljóst er að meiri þörf er fyrir fólk sem vinnur afrek í samtímanum en þá sem lofsyngja dauða afreks- menn. Og þeir dauðu afreksmenn væru vart lofsungnir nú á dögum hefðu þeir sólundað miklum hluta tíma síns í eftiröpun eða andaktuga lofsöngva yfir framliðnum í stað þess að vinna sjálfir afrek. Engum manni ætti að geta dulist að meiri þörf er á lausnum en lýs- ingum. Lýsingar eru engan veginn óþarfar. En endalausar rannsóknir á hvers kyns ríkjandi ófremdar- ástandi fela alls ekki trygga leið til framfara eins og margir virðast halda. Lausn á vandamáli felst ekki alltaf í því að velta sér upp úr lýs- ingu vandans. Og aldrei í því einu og sér. Iðulega komast lýsingarnar ekki upp úr sporum úreltra hefða og nálgana. Gera því iðulega sáralítið gagn þegar á reynir þótt miklu fé hafi verið eytt í þær. Stundum er best að grípa til úrræða sem fela í sér svo gerbreyttar nálganir að allar fyrri lausnir og útlistanir ríkjandi ástands verða haldlitlar. Fallbyssur á rjúpnaskytterí Algengt fyrirbæri á sviði vísinda- rannsókna er það þegar flóknum, dýrum og fyrirhafnarsömum að- ferðum er beitt til að leysa léttvæg viðfangsefni. Viðfangsefni sem hver meðalgreindur maður getur séð á augabragði að muni litlu sem engu skipta að leysa. Þetta hafa margir frægir vísindamenn gagn- rýnt. Má í þessu sambandi nefna bandaríska félagsfræðinginn C. Wright Mills. Gagnrýni á athugan- ir sem virðast vera léttvægt stúss kemur því ekki bara utan frá. Al- vöruvísindamenn keppast margir við að gagnrýna koliegana fyrir slíkt. I þessu sambandi þarf þó að gæta varúðar og varast að treysta hlint á það sem virðist við fyrstu sýn. Oft er það sem innvígðum sýn- ist léttvægt grundvöllurinn að ein- hverju langtum merkilegra. Virkar lausnir Virkar lausnir byggja langoftast á því að skilja til fullnustu grundvöll hvers viðfangsefnis og láta ekki glepjast af óhóflegri og nærsýnni skoðun hefðgróinna nálgana. Þeir menn sem lengst hafa náð hafa iðu- lega byggt árangur sinn á því að reisa algerlega nýjan hugmyndaleg- an grunn til að starfa á og varpa á dyr ríkjandi aðferðum, sjónarhorn- um, hefðum og viðhorfum. Þetta hefur oft verið lykillinn að vel- gengni þeirra. Hér má nefna menn eins og Descartes, Buckminster Fuller. Og þetta á ekki bara við á sviði vísinda. Það sama gildir um stjórnmál, stjórnun, hagræðingu, viðskipti og fjölda annarra sviða mannlegrar þekkingar og athafna- semi. Bestu lausnirnar byggja oft á því að byrja frá grunni. ■ „Endalausar rannsóknir á hvers kyns ríkjandi ófremdarástandi fela alls ekki trygga leið tilframfara eins og margir virðast halda. Lausn á vandamáli felst ekki alltafí því að velta sér upp úr lýsingu vandans. Og aldrei í því einu og sér. “ ð C I ! Þungavigtarmenn eru meðal annars: Árni Sigfússon, Geir Haarde, Halldór Ásgrímsson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Jóhanna Sigurðardóttir, Jón Erlendsson, Jón Steinar Gunnlaugsson, Ólafur Ragnar Grímsson, Óskar Magnússon, Páll Kr. Pálsson, Svavar Gestsson, Ögmundur Jónasson, Óssur Skarphéðinsson.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.