Helgarpósturinn - 14.11.1994, Síða 25
MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1994
MORGUNPÓSTURINN MENNING
25
Þórdís Alda opnaði athyglisverða skúlptúrsýningu í Norræna húsinu á laugardaginn
„Það er möguleiki að hið kvenlega og
það karlmannlega geti gengið saman“
Sýning Þórdísar Öldu Sigurð-
ardóttur, skúlptúrista, hófst á
laugardaginn í Norræna húsinu.
Þetta er fimmta einkasýning Þór-
dísar en hún útskrifaðist frá Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands 1984.
Verkin eru 25, allt skúlptúrar unnir
á þessu ári og flestir búnir til úr
járni og textílefnum ýmiss konar;
flaueli, satíni og fleiri efnum. „Ég
nota mikið gamla hluti sem ég hef
rambað á.“
Erþetta einhvers konar dadaismi?
„Ja, þessir gömlu fundnu hlutir
eru náttúrlega nytjahlutir og
mundu þá flokkast undir það að
vera „ready-made“, hafa þjónað
öðrum tilgangi og komnir í nýtt
samhengi hér. Ég tefli saman þess-
um mjúku efnum og kannski þess-
um hefðum kvenna í verklagi eins það sem kannski mundi flokkast
og í saumaskap og fleira og síðan undir karlmannlegri vinnubrögð
Þórdís Alda Sigurðardóttir mynd-
listarmaður.
eins og járnsuða og harðari efni.“
Er það einhveryfirlýsing?
„Ekki beinlinis, mér finnst bara
gaman að rannsaka hverju hægt er
að koma saman: í þannig heild að
hlutir renni saman í heild án þess
að missa sjálfstæði sitt.“
Og íyfirfcerðri merkingu: Að sam-
band karls og konu geti gengið upp?
„Já, hugsanlega.“ -JBG
Hálfur mánuður í opnun Þjóðarbókhlöðu
yitin
umskiptum
kenndum
Um þrjátíu fræðimannaherbergi,
hátt í sjöhundruð lessæti og á ann-
að hundrað einkatölvur verður
hluti þess sem Þjóðarbókhlaðan
hefur að geyma en hún verður
formlega opnuð þann 1. desember.
Bókhlaðan, sem á sér langa, langa
Tímritaáskriftir
Þjóðarbólchlöðunnar
Dýrustu
fræðiritiná
allt að hálfa
milljón á ári
Samkvæmt upplýsingum
MORGUNPÓSTSINS kosta
nokkur þau fræðirita sem Þjóðar-
bókhlaðan er áskrifandi að allt að
hálfa milljón á ári. Þessi dýru rit
er öll að finna á sviði heilbrigðis-
mála og raunvísinda. Einar Sig-
urðsson, landsbókavörður, segir
nokkur rit á þessu verði en þau
eru hins vegar afar fá. „Þau eru af-
ar sérhæfð þessi tímarit,'1 segir
Einar. Að sögn hans eru örfáir
tugir tímarita sem kosta yfir 100
þúsund á ári. En meðalverð tíma-
rita sem Þjóðarbókhlaðan er
áskifandi að er á bilinu 20-30
þúsund krónur á ári og koma þau
allt ffá fjórum til tólf sinnum út á
ári. ■
forsögu, en undirbúningur hennar
og bygging hefur staðið yfir í hálfan
þriðja áratug, mun sameina Lands-
bókasafnið og Háskólabókasafnið.
„Landsbókasafn Islands - Há-
skólabókasafn, eins og nýja bóka-
safnið á að heita, verður bókasafn
21. aldarinnar sem á að geta valdið
byltingarkenndum umskiptum til
hins betra, bæði hvað varðar starfs-
aðstöðu og umönnun þjóðarverð-
mæta,“ segir Einar Sigurðsson,
landsbókavörður. Að hans sögn er
nú verið að flytja yfir allan ritakost-
inn úr báðum söfttunum en hins
vegar er ekki búist við því að þjón-
ustan verði komin í endanlegt horf
þegar opnað verður.
Einkatölvurnar voru keyptar í
senn fýrir starfsfólk og almenning
og að minnsta kosti nokkrir tugir
þeirra verða í notkun fyrir safn-
gesti. Þar með talin verða öll fræði-
mannaherbergin búin tölvum. En
haft er í huga að fúllnýta og leigja út
öll fræðimannaherbergin til lengri
eða skemmri tíma, ýmist til fræði-
manna eða þeirra sem langt eru
komnir i háskólanámi, þeim að
kostnaðarlausu.
„I Þjóðarbókhlöðu þar sem halda
á uppi fjölþættri upplýsingaþjón-
ustu á sviði vísinda og fræða,
stjórnsýslu og atvinnulífs, verður
samankominn á einn stað mun
meiri hefðbundinn ritakostur en er
að finna annars staðar hér á landi,
auk þess sem þjónustan verður
meiri en til þessa,“ segir Einar enn-
fremur. Þá segir hann að
þar verði að finna efni á
nýjum miðlum eins og
geisladiskum, örgögn-
um eins og filmum, og í
tónlistar- og mynda-
deild verða hljóðrit og
myndbönd. Stefnt er að
því í framtíðinni að fá
svo í bókhlöðuna marg-
miðlunarefni sem er
miðill þar sem saman
fara texti, hljóð og
mynd. En þess má geta
að safnið verður skyldu-
skilasafn sem innheimt-
ir samkvæmt lögum allt
það sem prentað er í
landinu og öll útgefin
hljóðrit, en um fimmtán
ár eru síðan Landsbóka-
safnið fór að innheimta
alla markaðsvöru hljóð-
rita. Segir Einar þetta
allt innheimt og geymt
sem þjóðarverðmæti.
Gegnir verður að telj-
ast með forvitnilegri
kostum safnsins, en það er bóka-
safnskerfi sem Háskólabókasafn og
Landsbókasafn tóku í notkun fyrir
nokkrum árum en Þjóðarbókhlað-
an mun nú styðjast við. Með Gegni
er hægt að komast í samband hvað-
anæva af landinu og erlendis frá
líka. Sími og mótald er allt sem
þarf. Einnig er hægt að leita í skrám
og gagnasöfnum erlendis. „Áhersl-
an verður ekki bara á aðföng, það
Einar Sigurðsson, landsbókavörður. „Áhersl-
an verður ekki bara á aðföng heldur á að-
gengi að upplýsingum um allan heim.“
er efni í safninu sjálfu, heldur á að-
gengi að upplýsingum, hvort sem
þeirra er að leita í safninu eða með
fjarskiptum."
Fimmtán hundruð tímaritshefti
munu liggja frammi í sérstökum
hillum, eða öll nýjustu tölublöðin.
Hinum eldri verður hins vegar
komið fýrir í venjulegum hillum
sem safngestir hafa beinan aðgang
að. -GK
Horfið á sjónvarp
með Dr. Gunna^
Látið Dr. Gunna leiða ykkur um frumskóg dagskrárinna
Ríkissjónvarpið Stöð 2
Mánudagur 14. nóvember
í‘
15.00 Alþingi
17.00 Fréttaskeyti
17.05 Leiðarljós
Guiding Light Bandarískur
framhaldsþáttur
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Þytur í laufi (7:65)
18.25 Frægðardraumar
(26:26)
19.00 Flauel
19.15 Dagsljós
20.00 Fréttir, fþróttir og veður
20.40 Vinir (7:7)
21.10 Furður Veraldar (4:4)
Höggmyndirnar i
Rushmore-fjalli.
22.00 Hold og andi (3:6)
23:00 Ellefufréttir, Evrópu-
boltinn og dagskrárlok
17:05 Nágrannar
17:30 Vesalingarnir
17:50 Ævintýraheimur Nin-
tendo
18:15 Táningarnir í Hæða-
garði
18:45 Sjónvarpsmarkaðurinn
19:19 19:19
20:20 Eiríkur
20:45 Matreiðslumeistarinn
21:25 Vegir ástarinnar (3:10)
Love Hurts III
22:20 Ellen (5:13)
22:45 Windsorættin (2:4)
Heimildarmynd um tilgangs-
lausustu fjölskyldu íheimi...
23:35 Die Hard I
01:45 Dagskrárlok
Þriðjudagur 15. nóvember
13.30 Alþingi
17:00 Fréttaskeyti
17.05 Leiðarljós
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Sumarið með Kobba
18.30 SPK(e)
18.55 Fréttaskeyti
19.00 Eldhúsið
19.15 Dagsljós
20.00 Fréttir, íþróttir og veður
20.35 Staupasteinn (21:26)
21.05 Uppljóstrarinn (2:5)
Það kom nokkuð á óvart, en
þessi sænski þriller um róna
sem finnur þýfi i kjötfarsi er
bara nokkuð góður.
21.50 Framtíð EES
22.20 Rækjuveiðará
Norður-Atlantshafi
23:00 Ellefufréttir og
dagskrárlok
17:05 Nágrannar
17:30 PéturPan
17:50 Ævintýri Villa og Tedda
18:15 Ráðagóðir krakkar
18:45 Sjónvarpsmarkaðurinn
19:19 19:19
20:20 Sjónarmið
Stefáns Jóns
20:45 Til heiðurs
Michael Jordan
21:50 Handlaginn
heimilisfaðir (3:30)
22:15 Þorpslöggan (3:10)
23:10 New York löggur (2:22)
00:00 Blind Judgement
01:30 Dagskrárlok
Miðvikudagur 16. nóvember
13.30 Alþingi
17:00 fréttaskeyti
17:05 Leiðarljós
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Myndasafnið (e)
18.30 Völundur (32:65)
18.55 Fréttaskeyti
19.00 Einn-X-tveir
19.15 Dagsljós
20.00 Fréttir, íþróttir og veður
20.40 í sannleika sagt
22.00 Finlay læknir (2:6)
23.00 Ellefufréttir
23:15 Einn-X-tveir (e)
23:30 Dagskrárlok
17:05 Nágrannar
17:30 Litla hafmeyjan
17:55 Skrifað í skýin
18:10 Heilbrigð sál í
hraustum likama
18:45 Sjónvarpsmarkaðurinn
19:19 19:19
20:20 Eiríkur
20:50 Melrose Place (16:32)
21:45 Stjóri
22:35 Lífið er list
Siðasti þátturinn með Bjarna
Hafþór. Bú hú.
23:00 Tiska
23:25 Heiður og hollusta
Glory Ágætis peppmynd fyrír
svertingja.
01:25 Dagskrárlok
Jörfagleði er kannski fýrsti full-
græni vísirinn í átt að íslenskri
dansflóru.
■ Lukkuð sýning fyrir áhuga-
menn um dansleikhús og
ódansandi menn með dans-
auga.
Hallgrímur Helgason
Frábœr sýning
Þiöðleikhúsið
Snædrottningin eftir
EvgenI Schwartz
Söguþráðurinn var skemmtOeg-
ur. í honum voru ýmsir erfiðleikar
sem krakkarnir lenda í í baráttunni
gegn Snædrottningunni. Það voru
mörg góð atriði í leikritinu. Það er
eiginlega ekkert hægt að segja hvað
var best. Boðskapurinn er um hlýja
vináttu og að maður eigi ætíð að
hafa hlýtt hjarta.
Álfrún Helga Örnólfsdóttir og
Gunnlaugur Egilsson léku mjög
vel í hlutverkum Kára og Gerðar.
Amman var eins og ömmur eru.
(Bryndís Pétursdóttir.) Sögu-
maðurinn var mjög vel leikinn.
(Hilmir Snær Guðnason.) Það var
ómissandi að hafa hann. Ræningja-
stelpan (Steinunn Ólína Þor-
steinsdóttir) og mamma hennar
ræningjaforinginn (Anna Kristín
Arngrímsdóttir) voru mjög snið-
ugar. Fulltrúinn (Jóhann Sigurð-
arson) og Snædrottningin (Edda
Arnljótsdóttir) voru ísköld. Prins-
essan (Elva Ósk Ólafsdóttirjog
prinsinn (Hilmar Jónsson) voru
ansi skondin. Krákurnar voru snið-
ugar. (Halldóra Björnsdóttir og
Hjálmar Hjálmarsson.)
Sýningunni var greinilega
mjög vel stjórnað. (Andrés Sig-
urvinsson.)Búningarnir (Þórunn
Elísabet Sveinsdóttir) voru vel
unnir. Þeir hæfðu leikurunum vel.
Sviðsmyndin var mjög vel gerð.
(Guðný B. Richards.) Það var
sniðugt hvernig hún breyttist alltaf.
Það má ekki segja meira um sýn-
inguna svo fólk hafi eitthvað tO að
forvitnast um þegar það fer að sjá
hana. Ég gef henni fjórar stjörnur
og mæli með henni!
■ Ég var aldrei hrædd en yngri
systir mín var svolítið hrædd
við púðurskotin.
Hallgerður Guðrún, 10 ára
Klám og ofbeldi og Logi Bergmann
KASTLJÓS
RÚV
★★★
Rannsóknarfréttaþátturinn
Kastljós hefur verið á dagskrá RÚV
síðan elstu menn muna, og rifið
upp hin ýmsustu fréttakaun. í ár
sjá fréttamenn stöðvarinnar um
þætti til skiptis og er það fínt fýrir-
komulag: þættirnir verða íjöl-
breyttir og margslungnir fýrir vik-
ið, og hægt er að dænta frétta-
mennina persónulega eftir því
hvernig þeim tekst tU.
Hægt hefur verið að glápa á ým-
islegt í ár: vandræðaungmcnni,
geðsjúka afbrotamenn og eitthvað
fleira sem ég man ekki eftir, en það
skeinmtilegasta var þegar hinn
snaggaralegi Logi Bergmann tók
sig til og fjallaði um Internetið, eða
öllu heldur klám og ofbeidi sem
Internetið skaffar.
Sem persónulegur áhugamaður
um þetta net þótti mér svalt að
Kastljós ætlaði að fjalla um málið.
Netið er stærsta fjarskiptabylting
sem hefur átt sér stað síðan síminn
var tengdur og útbreiðsla þess er
eins og góð farsótt. Nú verða hin
ýmsu mál könnuð niður í kjölinn
þegar Dr. Logi fer á flug í vitrænni
umræðu, hugsaði ég spenntur. En
Adam var ekki lengi í tölvuparadís.
Þegar Logi birtist á skjánum með
þetta prakkaralega glott sem hann
er alltaf með, og fór að sýna okkur
klámmyndir og brot af Doom var
ljóst að hann ætlaði að taka efnið
sárgrætilegu sorpfjöimiðlataki.
„Netið er stórkostlegt samskipta-
tæki,“ minnir mig að Logi hafi
sagt, en síðan fór hann að bulla um
klám og ofbeldi, hluti sem engu
máli skipta í hinu stóra samhengi
InterneLsins, og var eins og haus-
laus hæna í æðubunugangi sorp-
pennans, með „Við sýnum ekki
það versta“ og fleiri slagara á tak-
teinum.
Logi, hvernig væri að gera Kast-
Ijós næst um símkerfið, taka upp
nokkur dónaleg símtöl og blása
það síðan út af heilögunt sperringi
á skrifstofu símamálastjóra og
spurja: „Hvernig getur þú látið
svona óátalið?!“
Eða: hörkuþátt um flutnings-
getu Eimskips, þefa upp klámblað í
káetu háseta — eða ennþá betra:
Svissneskan vasahníf (mannskætt)
— þvælast svo með fenginn heim
til Harðar Sigurgestssonar,
sturta úr pokanum á lóðinni hjá
honum og spurja ásakandi þegar
Hörður kemur í gáttina: Hörður,
er þér ljóst hvílíkan sora flutninga-
skip þín flytja til landsins? Með
þessu sýnir þú auðvitað helling af
yfirstrikuðu klámi og þá er ég viss
um að þú fáir aftur endursýningu.
Annars ætti maður kannski að
vera Loga þakklátur. Betri auglýs-
ingu hefur Internetið ekki fengið.
Nú hafa allir rúnkarar landsins
fyllst gríðarlegum áhuga. Bara
verst að þeir fara í rosalega fýlu —
og jafnvel í mál við Loga — þegar
það kemur í ljós að eftiið á netinu
er engan veginn 1/10 klám — OG
OFTAST AFBRIGÐILEGT KLÁM!
— eins og Logi fullyrti.
En þrátt fýrir þennan grunna og
sorplega þátt Loga hef ég fúlla trú á
honum sem fréttamanni. Hann er
offast frekar svalur. Kastljós er op-
ið fýrir öllu, hefði maður haldið,
og því hlýtur að vera næsta skref
hjá Loga að gera alvöruþátt um