Helgarpósturinn - 14.11.1994, Page 31
MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1994
MORGLINPÓSTURINN SPORT
31
Þýskaland
Papinloks
kominn á
biað
Staða efstu liða í þýsku Bund-
esiigunni breyttist lítið eftir leiki
helgarinnar. Borussia Dort-
mund, Werder Brenien og Bor-
ussia Mönchengladbach unnu
öll leiki sína og halda því þremur
efstu sætunum. Þá vann Bayern
Munchen góðan sigur á Schalke
og skoraði Jean-Pierre Papin
sitt fyrsta mark á tímabilinu fyrir
Bayern.
Franski landsliðsmaðurinn
Jean-Pierre Papin er kominn á
skrið á ný eftir að hafa verið
meiddur á hnc að undanförnu.
Hann átti góðan leik með Bay-
ern Munchen er liðið fékk
Schalke í heimsókn á iaugardag,
Jean Pierre Papin
og skoraði fyrra mark Bayern, en
brasilíumaðurinn Jorginho
gulltryggði sigur Bæjara undir
lok leiksins. Pórður Guðjóns-
son og félagar hans í Bochum
töpuðu cnn einum leiknum er
liðið tók á móti toppliði Boruss-
ia Dortmtind á föstudag. Gest-
irnir settu tvö niörk en Bochum
ekkert og er staða Bochum nú
orðin verulega slæm á botnin-
um. Þórður kom inn á sem vara-
maður í seinni hálfleik og stóð
sig með ágætum. Werder Bre-
nten tók Stuttgart í kennslu-
stund og sigraði með fjórurn
mörkum gegn engu. Marco Bo-
de skoraði sitt áttunda mark á
tímabilinu f>TÍr Bremen en hin
þrjú mörkin skoruðu þeir Bes-
chastnyklt, Basler og Eilts. Á
sama hátt bar Borussia Mönc-
hengladbach sigurorð af Kaisers-
lautern, og festi sig þar með í
sessi í þriðja sæti Bundesligunn-
ar. Loks tapaði Duisburg enn
einum ieiknum og ketnur það
fáunt á óvart. I þetta sinn var það
Köin sem lagði liðið að velli. Du-
isburg hefúr ekki enn unníð leik
og situr eitt á botninum með að-
eins þrjú stig úr þrettán leikjum.
Úrslit um helgina
Dynamo Dresden
- Bayer Uerdingen 1:2
Bayem Munchen - Schalke 2:0
Duisburg - Köln 1:3
Freiburg - Eintracht Frankfurt 2:0
Werder Bremen - VFB Stuttgart 4:0
Bayer Leverkusen - Karlsruhe 0:0
Bochum - Borussia Dortmund 0:2
B. Mönchengladbach
- Kaiserslautern 4:0
Hamburg -1860 Munchen 3:0
Staðan
B.Dortmund
Werder Bremen
B.Mönchengladb.
Hamborg
Bayer Leverkusen
Freiburg
Bayern Munchen
Kaiserslautern
VFB Stuttgart
Karlsruhe
Frankfurt
Schalke
Bayer Urdingen
Köln
Dynamo Dresden
1860 Munchen
Bochum
Duisburg
Markahæstir
10 - Rodolfo Cardoso (Freiburg)
9 - Andy Möller (Borussia Dortmund)
8 - Toni Polster (Köln). Stephane
Chapuisat (Borussia Dortmund),
Marco Bode (Werder Bremen)
7 - Heiko Herrlich (Borussia Mönc-
hengladbach).
13 31:10 22
13 25:14 19
13 28:14 18
13 25:14 16
13 25:16 16
13 27:20 16
13 25:18 16
13 22:19 16
13 27:25 15
13 21:19 15
13 14:21 12
13 14:17 11
13 13:18 10
13 22:30 10
13 14:23 8
13 12:25 6
13 12:32 5
13 9:31 3
Stórleikur tólítu umferðar
Svo létt, svo létt!
Grindvíkingarjörðuðu granna sína. ^
Það er hægt að fullyrða að stór-
leikur tólftu umferðar, leikur Kefla-
víkur og Grindavíkur sem allir
höfðu beðið eftir, var enginn stór-
leikur. Grindvíkingar skoruðu
fyrstu níu stigin og eftir það var
ljóst í hvað stefndi.
Það var greinilegt að Keflvíkingar
voru í allt annarri vídd þegar leik-
urinn hófst. Einbeiting leikmanna
var engin, þeir töpuðu boltanum í
gríð og erg og hittu illa. Því er
óhætt að segja að fyrir Keflvíking-
um hafi þetta verið leikur hinna
nriklu mistaka. Hjá keppinautun-
um, Grindvíkingum, gekk allt upp.
Þeir náðu fljótt tíu stiga forskoti og
leiddu með 24 stigum í hálfleik, 48-
24. Fyrir þeim fór Bandaríkjamað-
urinn, Franc Booker, sem stýrði
leik sinna manna listavel. „Booker
er það sem okkur vantaði," sagði
Friðrik I. Rúnarsson, þjálfari
Grindavíkur, kampakátur í leiks-
iok. „Effir að Hjörtur Harðarson
fór til Bandaríkjanna vantaði okkur
tilfinnanlega leikstjórnanda og fyll-
ir Booker vel upp í skarð hans.“
Miðherjinn, Guðmundur
Bragason, gerði Lenear Burns hjá
ÍBK lífið leitt með hraða sínum og
fyrrum leikmaður Keflavíkur, Guð-
jón Skúlason, hitti vel úr lang-
skotunum. Annars er óhætt að
segja að breidd liðsins hafi gert úts-
lagið. Hvorki fleiri né færri en sex
leikmenn UMFG náðu tveggja stafa
tölu í stigaskorun en það er harla
fátítt í íslenskum körfuknattleik.
í upphafi seinni hálfleiks komu
Keflvíkingar grimmir til leiks,
ákveðnir að bæta sig. Einar Ein-
arsson skoraði fyrstu átta stig liðs-
ins en Grindvíkingar héldu haus,
svöruðu jafnharðan og unnu sætan
sigur.
Eins og áður sagði var enginn
einn sem stóð upp úr liði Grinda-
víkur. Booker, Guðmundur, og
Helgi Guðfinnsson áttu allir góð-
an leik sem og félagar þeirra Guð-
jón, Marel Guðlaugsson og Pétur
Guðmundsson.
Hjá Keflvíkingum var Lenear
Burns (28 stig og 11 fráköst) allt í |
öllu. Án hans væri liðið fúlasti %
brandarinn á Suðurnesjum. Einar g
Einarsson lék einnig ágætlega. Eitt- 'í
hvað virðist liðið eiga í erfiðleikum w
með Grindvíkinga því þetta var .g
annar tapleikurinn í vetur gegn f
þeim. Hinn tapaðist einnig stórt. £
Liðinu hefur ekki gengið vel að
undanförnu og spyr maður sig
hvort það sé að missa dampinn. í
þessurn leik eyddi Keflavíkurliðið
öllu sínu púðrij dómara og upp-
skar eftir því. -eþa
Valsmenn voru óhressir með eigin frammistöðu gegn ÍR-ingum í
gærkvöldi. Eins og sést á myndinni er Jonathan Bow allt annað en
glaður.
FH-ingar komnir í 8 liða úrslit Evrópukeppninnar
Mikill dsaraðardans á
lokamínútunum
FH-ingar mega eiga það að þeir
kunna að skemmta áhorfendum.
Þeir eru nú komnir í átta liða úrslit
1 Evrópukeppninni eftir sigur á
tékkneska liðinu Novesta Zlín í
gærkvöldi í Kaplakrika. Fyrri leikn-
um, sem leikinn var á laugardag,
ivktaði með jafhtefli, 20:20, eftir að
FH-ingar höfðu misst sex marka
forskot niður í jafntefli. Seinni leik-
urinn í gærkvöld, heimaleikur
Tékkanna, þróaðist svipað framan
af en Hafnfirðingar sýndu mikinn
karakter í lokin og sigu fram úr.
FH-ingar komu grimmir til leiks
í gærkvöld, skoruðu fyrstu tvö
mörkin í leiknum, og leiddu allan
fyrri hálfleikinn. Mest varð forskot-
ið ijögur mörk, 6:10 og 10:14, en það
voru hálfleikstölur. FH-ingar náðu
síðan fimm marka forskoti í upp-
hafi seinni hálfleiks, 11:16. Þá var
eins og þeir héldu að björninn væri
unninn og Tékkarnir gengu á lagið.
Markvörður þeirra, Josef Kuc-
erka, b)Tjaði þá að verja í gríð og
erg og varði alls ellefu skot, níu
þeirra í seinni hálfleik. Þeir náðu að
jafna, 19:19, en í þetta sinn náði FH
hraðlestin að síga fram úr á loka-
sprettinum og sigra með þriggja
marka mun, 23:26. Magnús Áma-
son varði þá á nokkrum mikilvæg-
um augnablikum eftir að hann
kom aftur inn á, en hann náði sér
ekki á strik í fyrri hálfleik og var
skipt út af. Hann varði víti í stöð-
unni 21:24 þegar fjórar mínútur
voru eftir og FH-ingar spiluðu
skynsamlega það sem eftir var
leiksins. Það var síðan Hans Guð-
mundsson sem skoraði síðasta
mark leiksins úr víti þegar 23 sek-
úndur voru eftir. Reyndar var
seinni hálfleikur hreinn skrípaleik-
ur á köflum og finnsku dómararnir
þurftu að stöðva leikinn ótal sinn-
um meðan gert var að „meiðslum“
Tékkanna. Þeir voru þvílíkt brot-
hættir og kveinkuðu sér í hvert ein-
asta sinn sem þeim var dæmt au-
kakast. Þetta orsakaði miklar tafir,
sem hefur án efa komið niður á
gæðum handboltans. Það kom að
því að dómararnir fengu nóg og
spjölduðu einn þeirra fyrir leikara-
skap, og eftir það voru menn nán-
ast fullfrískir það sem eftir var
leiksins.
Sigur FH-inga var óþarflega tæp-
ur og þeir hefðu átt að vera löngu
búnir að hrista andstæðingana af
sér. Þeir duttu ótrúlega niður á
köflum en þess á milli fóru þeir á
kostum með frábærri vörn og vel
útfærðum hraðaupphlaupum.
Hans Guðmundsson var marka-
hæstur þeirra með sjö mörk en
Gunnar Beinteinsson skoraði
fimm og var að öðrum ólöstuðum
besti maður vallarins. Hjá Tékkun-
um var Karel Hracha allt í öllu og
skoraði tíu mörk í öllum regnbog-
ans litum. Leikmenn liðsins fá seint
fegurðarverðlaun fyrir þann hand-
bolta sem þeir spila og eru ótrúlega
stirðbusalegir. Þeir spila samt mjög
árangursríkan handbolta og virðast
komast langt á hinni sálfræðilegu
hlið íþróttarinnar. -RM
Sagt eftir leikinn
Guðmundur Karlsson, þjálfari
FH:
„Þessir Tékkar eru ótrúlega seigir
og leika skynsamlega. Þeir léku al-
veg ágætlega í þessum leik og nýttu
færin mjög vel. Þeir skynja eigin
getu og Iéku samkvæmt því. Við
vanmátum þá alltaf og misstum
gott forskot niður í jafnt, en kom-
um svo aftur sterkir í lok leiks og
höfðum betur. Þetta var náttúrlega
annar leikurinn á tveimur dögum
og þriðji leikurinn á fimm dögum,
og miðað við það er ég þokkalega
sáttur við hann. Allavega erum við
komnir í átta liða úrslit og það er
það sem skiptir máli.“
Gunnar Beinteinsson:
„Það er mjög erfitt að spila við
þessa leikmenn. Þeir tefja leikinn
og kasta sér í gólfið. Það er alltaf
verið að stoppa leikinn og maður
fer alltaf niður á hælana. Þeir vita
sín takmörk og hleypa okkur aldrei
langt frá sér. Þeir spila rólega og
skjóta aldrei nema í hundrað pró-
sent færum. Þannig ná þeir að æsa
okkur upp og við förum að skjóta
ótímabærum skotum. Við erum
með miklu betra lið en þeir en samt
er alveg ótrúlega erfitt að hrista þá
af sér og vinna þá. Þetta er lélegt lið
handboltalega séð en spilar skyn-
samlega og nýtir færin. Það er ekk-
ert lið á Islandi sem spilar svona
handbolta.“
Áhorfandi vikunnar er Ingvi Örn Ingvason körfuboltamaður úr yngri
flokkum Vals. Hann mætir á eins marga heimaleiki og honum er auðið
enda er þjálfarinn hans leikmaður í meistaraflokknum. Faðir Ingva er
Bingó-Lottó sjarmörinn Ingvi Hrafn Jónsson sem var ekki síður
áhugasamur en sonurinn og lét oft vel í sér heyra. Ingvi Örn var þó í því
hlutverki að uppfræða föðurinn um helstu leyndardóma körfuboltans
en ekki er okkur Ijóst hvernig til tókst.
Körfubolti
12. umferð
KR-TindastóU 85-73
KR-ingar sýndu klærnar á
Nesinu og virðast til alls líklegir.
Tindastóll á enn eftir að sýna að
þeir séu til einhvers annars en
botnbaráttunnar brúklegir.
Haukar-ÍA 85-65
lón Arnar Ingvarsson og Ósk-
ar Pétursson gengu fyrir Hauka-
liðinu og skoruðu 21 stig hvor í
öruggum sigri heimamanna.
Skallagrímur
-Snæfell 98-68
Snæfellingar börðust vel í
byrjun en hægt og bítandi náðu
heimamenn afgerandi forskoti
og 30 stiga sigur varð raunin.
Stigahæstir heimamanna voru
Gunnar Þorsteinsson (27 stig) og
Alexander Ermolinskíj (24 stig).
Njarðvík-Þór 108-95
Sigur Njarðvikinga kemur fá-
um á óvart enda hafa þeir sýnt
bestan leik allra liða í vetur.
Þórsarar eiga framtíðina fyrir sér
og mun vaxa ásmegin á næstu
árum.
Valur-ÍR 81-86
ÍR-ingar, sem ekki nutu þjón-
ustu Jóns Arnar Guðmundsson-
ar, sýndti glæsilega baráttu gegn
Valsmönnum í gærkvöld. Hcr-
bert Arnarson sýndi frábæra
takta og skoraði 45 stig. Bárður
Eyþörsson var stigahæstur Vals-
ara með 25 stig en hann gerði út
um allar vonir sinna manna með
að fá tæknivillu í blálokin, ÍR-
ingar gulltryggðu svo sigurinn
mcð vítaskotunum.
Keflavík-Gríndavík
74-102
ÍBK: Lenear Bums 28, Einar Einars-
son 15, Kristján Guðlaugsson 8,
Jón Kr. Gislason 7, Davíð Grissom
5, Sigurður Ingimundarson 5,
Sverrir Sverrisson 4, Albert Óskars-
son 2.
UMFG: Guðmundur Bragason 19,
Guðjón Skúlason 16, Franc Booker
15, Helgi Guðfinnsson 15, Marel
Guðlaugsson 14, Pétur Guðmunds-
son 12, Unndór Sigurðsson 5,
Bergur Hinriksson 2, Ingi Karl Ing-
ólfsson 2, Nökkvi M. Jónsson 2.
Dómarar: Helgi Bragason og Jón
Bender.
Staðan í úrvalsdeildinni
eftir 12 umferðir:
A-riðlll
Njarðvík 22 stig
Skallagrimur 12stlg
Haukar 10 stig
Pór 10 stlg
ÍA 8 stig
Snæfell 0 stig
B-riðill
Grindavík 20 stig
fR 16 stig
Keflavik 16 stig
KR 16 stig
Valur 8 stig
Tindastóli 6 stig
Handbolti
Novesta Zlín - FH 23:26
Mörk Novesta: Hracha 10, Linek 4,
Basny 3, Hejthanek 2, Pazdera 1,
Vitek 1, Kolaz 1, Stekl 1
Varin skot: Josef Kucerka 11.
Mörk FH: Hans G. 7, Gunnar 5,
Guðjón 4, Sigurður 4, Stefán 3,
Knútur 2, Hálfdán 1
Varin skot: Magnús Árnason 9/1,
Jónas Stefánsson 5.
Brottvisanin Novesta 10 mfnútur
og FH 6 mfnútur.
Dómarar: Björklund og Sundell frá
Finnlandi. Dæmdu þokkalega en
voru við það að missa öll tök á
leiknum undir lokin.