Helgarpósturinn - 02.01.1995, Blaðsíða 4
4
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 1995
V estmannaeyj ar
Glumdi í
Ijöllunum
Lögreglan í Vestmannaeyjum
segir að það hafi verið rólegt að
gera hjá sér yfir áramótin, einhverj-
ir smápústrar hafi orðið og einn
tekinn grunaður um ölvun við
akstur. Annars var rólegt yfir öllu
og í litlu að snúast. Vestmannaey-
ingar kvöddu gamla árið með brav-
úr og var mikið sprengt. .Svo mikið
að það glumdi í fjöllunum og var
gríðarlega mikill hávaði. „Alveg
stórglæsilegt,“ segir Ólafur varð-
stjóri hinn ánægðasti. -JBG
Reykjavík
70 manns
á slysadeild
„Það kom enginn lífshættulega
slasaður til okkar í nótt en bekkur-
inn var ansi þétt skipaður hjá okk-
ur,“ segir Ágúst Kárason, sérfræð-
ingur á slysadeild Borgafspítalans.
Að sögn Agústs komu um það bil
70 manns á slysadeildina frá mið-
nætti á nýársnótt frarri á morgun til
að fá gert að sárum sínum. Fimm
komu vegna brunasára en ekki var
um alvarlega áverka að ræða nema í
einu tilfelli. Barn hafði brennst illa,
líklega eftir að blys éða flugeldur
hafði komist undir föi þess. Barnið
var flutt með 3. stigs bruna á til-
tölulega afmörkuðu svæðí til frek-
ari meðferðar á Landspítalann.
Aðspurður segir Agúst að enginn
hafi komið á slysadeild vegna augn-
skaða og virðist sem fólk hafi tekið
áskoranir um að fara varlega með
flugelda til greina.
Að sögn Ágústs mátti rekja flest
óhöpp nýársnætur til ölvunar, fólk
hafi hrasað og meift sig eða lamið
hvert á öðru. Águst segir að rólegt
hafi verið fram eftir kvöldi en um
tvö-þrjú leytið hafi snarfýllst og þá
hafi erillinn á biðstofunni verið
mikill.
„Það var troðfullt af fólki, flestir
fullir og óánægðir með þjónustuna,
eins og er kannski við að búast þeg-
ar fólk er í þessu ásigkomulagi." ■
Tauskyggni yfir glugga Tösku- og
hanskabúðarinnar við Skólavörð-
ustig brann til ösku á nýársnótt.
Talið er að kviknað hafi í þegar
flugeldur lenti á skyggninu.
Kópavogur
Slökkti með
þvottahús-
slöngu
Klukkan rumlega eitt eftir mið-
nætti á nýársnótt kom upp eldur í
þvottahúsi kjallara einbýlishúss við
Sunnubraut í Kópavogi. Nágrannar
bentu húsráðendum á eldinn og
brást gestkomandi maður á heimil-
inu snöggt við, stormaði inn í
þvottahúsið í gegnum reykjarkófið,
náði í vatnsslöngu og réði niður-
lögum eldsins áður en slökkviliðið
kom á vettvang. Þessi frækilega
framganga kostaði manninn hins
vegar nótt á slysadeild þar sem
grunur lék á að hann hefði orðið
fyrir reykeitrun við slökkvistörfin.
Samkvæmt upplýsingum blaðsins
mun hann hafa náð sér skjótt og er
nú á góðum batavegi. Eldsupptök
eru ekki ljós en helst er hallast að
því að flugeldur eða glóð hafi borist
inn um glugga þvottahússins. ■
Ofbeldi í miðborginni
Varð fýrír árás og
fótforotnaði illa
Haildór Magnússon kvaddi
gamla árið með fremur óskemmti-
legum hætti svo ekki sé meira sagt.
Á hann var ráðist með þeim afleið-
ingum að hann fótbrotnaði mjög
illa og var allan gamlársdag í aðgerð
þar sem fóturinn á honum var
skrúfaður saman. Málsatvik voru
þau að hann stóð fyrir utan Veit-
ingastaðinn 22 ásamt unnustu
sinni, Jóhönnu Vigdísi Guð-
mundsdóttur, og félaga sínum,
Atla Geir Grétarssyni, og voru
þau að bíða eftir leigubíl. Jóhanna
vinnur á veitingastaðnum og var
þetta skömmu eftir lokun, rúmlega
þrjú. Þrjá menn bar að og fara þeir
að abbast upp á Jóhönnu og gott
betur því einn þeirra gerði sér lítið
fyrir og sló hana hnefahöggi í and-
litið. Hún er nú með mjög slæmt
mar og glóðarauga. Halldór vildi
ekki una þessu en áður en hann
fékk rönd við reist kom árásarmað-
urinn á hann höggi. „Ég var ein-
hvern veginn með fótinn skorðað-
an og dett með þeim afleiðingum
að hann brotnar. Þá var ég úr leik,
enda sperrileggurinn í sundur við
ökkla. Það þurfti að setja skrúfu í
mig og stálboga til að halda þessu
saman og ég verð frá um einhvern
tíma.“ Árásarmaðurinn lét ekki þar
við sitja heldur vatt sér með það
sama^að Atla, sló hann í andlitið
með þeim afleiðingum að hann
rotaðist og er með mikla áverka í
andliti, auk þess sem hann fékk
vægan heilahristing.
Aðspurður taldi Halldór ekki
geta tjáð sig um það hvort menn-
irnir væru á örvandi lyfjum en taldi
það ekki ólíklegt miðað við þann
ham sem þeir voru í. Hann segir
jafnframt að ekkert þeirra hafi
þekkt mennina og árásin hafi verið
alveg upp úr þurru og með engum
aðdraganda. Málið hefur verið kært
til lögreglunnar og mun rannsókn-
arlögreglan taka við málinu í dag.
JBG
Halldór Magnússon fótbrotnaði mjög illa vegna tilefnislausrar árásar
aðfaranótt laugardags: „Þá var ég úr leik, enda sperrileggurinn í sund-
ur við ökkla.“
Eldsvoði að Kambsvegi
Glerbrot
um rigndi
yfir svefri-
herfoergið
„Það var laust fyrir klukkan sex
sem okkur barst tilkynning um eld-
inn. Þegar að var komið logaði glatt
í sólstofunni og eldurinn var byrj-
aður að teygja sig inn í íbúðina
sjálfa,“ segir Bergsveinn Alfons-
son, aðalvarðstjóri hjá Slökkvilið-
inu í Reykjavík. Litlu mátti muna
að illa færi þegar eldur kom upp í
sólstofu í húsi við Kambsveg síðla
nýársnætur. Reykskynjari í íbúðinu
vakti upp húsmóðurina sem gat
Eldur kom upp í sólstofu í húsi
við Kambsveg síðla nýársnætur.
Litli mátti muna að illa færi en
vælið í reykskynjara vakti hús-
ráðendur áður en eidurinn náði
að teygja sig inn í svefnherbergi
þeirra.
vakið mann sinn, en hann hafði
verið sofandi í herbergi næst sól-
stofunni. Örstuttu síðar sprakk
rúða sem skilur sólstofuna frá her-
berginu og rigndi við það glerbrot-
um inn í herbergið, meðal annars
yfir rúmið sem maðurinn hafði
verið sofandi í. Hjónin voru komin
út úr húsinu þegar slökkviliðið
kom á staðinn en þar sem grunur
lék á að konan hefði orðið fyrir
reykeitrun var hún flutt á slysa-
deild.
Bergsveinn segir að þrátt fyrir að
eldurinn hafi verið orðinn tölu-
verður hafi gengið greiðlega að
slökkva hann. Hann segir enn
fremur að ekki sé ljóst hver elds-
upptök hafi verið en líklegt þykir að
jólaskreyting hafi komið þar við
sögu. ■
Lögreglan í
Reykjavík
Mjögskyn-
sömára-
mótanótft
„Þetta var ekki svo slæmt miðað
við margar aðrar áramótanætur,"
segir Jónas Hallsson, aðstoðaryf-
irlögregluþjónn hjá Lögreglunni í
Reykjavík.
„Ölvunarlætin upphófust um
hálftvö-leytið og rénuðu út um
hálfhíu. Á því tímabili voru liðlega
100 tilfelli skráð hjá okkur, 20
manns voru settir í fangageymslur
og sex teknir grunaðir um ölvun
við akstur. En allt gekk þetta þó
stóráfallalaust fyrir sig og það má
segja að þetta haff vérið mjög skyn-
söm áramótanóít lijáökkur.“B
Spellvirki í
Breiðholti
14 rúður
brotnar
Töluvert var um það að rúður
væru brotnar fyrstu nótt ársins.
Spellvirkjar voru á ferð víða um
bæinn en stórtækastir voru þeir í
Hólmaseli í Breiðholti þar sem
voru brotnar fjórtán rúður í auðu
verslunarhúsnæði. Skemmdarvarg-
arnir í Hólmaseli létu sér hins vegar
ekki nægja að mölva rúðurnar
heldur fóru þeir einnig inn í hús-
næðið, helltu niður málningu sem
var þar að finna og frömdu ýmis
önnur spellvirki á innanstokks-
munum.B
Mikill áhugi útlendinga á íslenskum áramótunum
Gamlárskvöld minna spenn
andi í Bandaríkjunum
John Harrington frá Washing-
ton í Bandaríkjunum var einn
þeirra 1200 ferðamanna sem komu
sérstaklega til íslands til að upplifa
áramótin.
„Þetta er búið að vera ótrúleg
upplifun og ennþá ævintýralegri
en ég hafði ímyndað mér. í mínu
heimalandi er gamlárskvöld ólíkt
minna spennandi en hér á landi.
Brennur eru yfirleitt bannaðar og
allar flugeldasýningar skipulagðar
út í ystu æsar. Vonandi verður
þetta ekki í síðasta sinn sem ég
kem hingað til lands,“ sagði John í
samtali við MORGUNPÓSTINN.
Um það bil 60 Jap-
anir fögnuðu nýju ári
hér á landi. Að sögn
Ragnars Baldursson-
ar, eiganda veitinga-
staðarins Samurai, er
nýárshátíðin stærsta
hátíð Japana en þá eru
lögbundnir frídagar yf-
irleitt þrír. Ragnar segir
Japani yfirleitt vera
ánægða á íslandi og
það sem laði þá að sé
fámennið og hin
ósnorta náttúra lands-
ins. -HM
John Harrinton og Debra Harrinton frá
Bandaríkjunum hrifust af skipulagsleysi ára-
mótanna hér.
Ennósamið
við sjúkraliða
íGarai
Samkomulag náðist síðdegis á
gamlársdag við sjúkraliða á Nátt-
úrulækningaheimilinu í Hvera-
gerði og á Skjólvangi á Höfn í
Hornafirði. Að sögn Kristínar Á.
Guðmundsdóttur, formanns
Sjúkraliðafélagsins er um sams
konar kjarasamning að ræða og
gerður var fyrir helgi, að því und-
anskildu að þessum sjúkraliðum er
raðað í hærri launaflokka en
sjúkraliðum í Reykjavík. Það er því
um töluverða launahækkun að
ræða sem er í samræmi við laun
annarra sjúkraliða á landsbyggð-
inni.
Enn er ósamið við sjúkraliða á
Garðvangi í Garði en þeir hafa
hingað tií verið með um 15 prósent
hærri laun en aðrir sjúkraliðar.
Fundur er boðaður hjá ríkissátta-
semjara í dag og gerir Kristín sér
vonir um að samningar náist á
þeim fundi. -HM