Helgarpósturinn - 27.03.1995, Síða 10

Helgarpósturinn - 27.03.1995, Síða 10
 Sherilyn Fenn þykir afar LlK Taylor. _________Tvífari Elizaeth Taylor Bandaríska kvikmynda- leikkonan Sherilyn Fenn, sem þekkt er úrþátta- röðinni Twin Peaks, fer með hlutverk Elizabeth Taylor í sjónvarpsþátta- röð sem líklega verður frumsýnd í Bandaríkjun- um í maí. Elizabeth Ta- ylor kœrði sig ekki um að þœttirnir yrðu gerðir og höfðaði hún mál til að reyna að stöðva framleiðslu þeirra. Það mistókst en bókin byggir á umdeildri œvisögu hennar. Þykir með nokkrum ólíkindum hversu hin þrítuga Fenn er lík kvikmyndagyðj- SOPHIA LOREN OG MÓÐIR HENNAR ROMILDA. Loren af AÐALSÆTTUIVI Fundist hefur skjal frá síðustu öld sem staðfest- ir svo ekki verður um villst að kvikmyndagyðj- an stórvaxna Sophia Lor- en er af aðalsœttum frá Sikiley. Faðir hennar, Riccardo Scicolone mun geta gert tilkall til bar- ónstignar. Hann yfirgaf ijölskylduna þegar Sop- hia var barnung og mun það hafa sœrt leikkon- una djúpu sári. Sophia Loren gefur ekki mikið út á þessi tíðindi og seg- ir að skjalið, sem er frá 1828, komi sér alls ekki á óvartM Drottningin á sundbol í Suður-Afríku. Drottningin UNGA Elísabet H Bretadrottn- ing er nýkomin heim til sín eftir opinbera heim- sókn til Suður-Afríku. Er þetta í fyrsta sinn sem þjóðhöfðingi Bretaveldis kemur til landsins í háa herrans tíð, enda voru sltkar heimsóknir óhugsandi á tima að- skilnaðarstefnunnar. Af þessu tilefni hefur verið rifjað upp þegar drottn- ingin fór til Suður-Afr- íku fyrir nœstum fímm- tíu árum. Það var árið 1947, hún var ekki orðin drottning og hélt upp á tvítugsafmœli sitt í Suð- ur-AfríkuM Courtney Love í Evráputerð Leeson er •Helsta stööutákn sem nú er völ á í City, íjármálahverfi London, er nafnspjald fésýslu- mannsins alræmda, Nick Lee-i^-^ son. Paö þykir nefnilega svo' ^cs fínt aö hafa átt viðskipti viö Leeson - og lifað af. Falsað nafnspjald Nick Leeson. Ekki alls fyrir löngu birtist grein í Póstinum þar sem sagði frá hljómleikaferð Courtney Love og hljómsveitar hennar, Hole, um Ástralíu. Þar var vitnað í ástralskan blaðamann sem sagðist ekki eiga von á því að Courtney Love slyppi lifandi frá Ástralíu, slíkur væri lifnaðurinn á henni. Onnur hefur orðið raunin og nú er Courtney Love að leggja upp í hljómleikaferðalag um Evrópu sem hefst í París 31. mars. Þar mun Courtney Love sjálfsagt halda uppteknum hætti, veitast að áhorfendum með óbótaskömmum og fara hamförum á sviðinu. Sem þykir hin besta skemmtun. ■ Courtney leggur sig alla fram á tónleikum. Eftirspurnin eftir svona nafn- spjöldum er svo mikil að óprúttnir náungar hafa tekið slg til og falsað nafnspjöld Leeson. Á myndinni hér er falsað nafn- spjald og má greina það á því að þarna stendur að Leeson hafi unnið fyrir Baring Brothers. Hið rétta er að Leeson vann fyrir Baring Securities. Fleiri vilja græða á Leeson. Nú er hægt að kaupa skyrtuboli með mynd af Leeson en undir stendur „Natural Born Killer“. Búast má við að meira komi á markað af slíkum varningi.B •O.J. Simpson stundaði ekki einungis að beita Nicole, hina myrtu eiginkonu sína, ofbeldi. Hann mun einnig ganga reglulega í skrokk á nýrri unnustu sinni. Enn bætast við upplýsingar sem benda til þess að ruðn- ingsmaðurinn O.J. Simpson sé sekur um morðið á konu sinni, Nicole Brown og ástmanni hennar. Uppvíst hefur orðið að Simpson, sem er 47 ára, beitti konu sína ofbeldi reglulega og mátti oft sjá á henni eftir bar- smíðar Simpsons. Nú hefur komið fram að Simpson lét sér ekki einungis nægja að ganga í skrokk á konu sinni heldur hefur hann einnig stundað þann ljóta leik að berja núverandi unnustu sína, Paulu Barbieri. Sögur segja að Simpson þjá- ist af ólæknandi afbrýðissemi og hafi hann við eitt tækifæri tekið kverkatak á Paulu Barbi- eri og fleygt henni út úr bifreið sem var á ferð. Hafði hann ein- hvern ávæning af því að hún hefði verið að gefa öðrum karl- mönnum undir fótinn. Við svo búið lagði Paula Bar- bieri á flótta en þá ók Simpson á eftir henni í æðiskasti og hrópaði: „Komdu aftur inn í bílinn, helvítis nornin þín!“ Paula, sem eitt sinn sat fyrir á ljósmyndum í tímaritinu Playboy, skýrði vinkonu sinni frá þessum atburðum. lVIun hún hafa sagt: „O.J. hefur erf- iða skapsmunni. Ég óttaðist um líf mitt þegar hann setti krumlurnar utan um hálsinn á mér og herti að.“ SLQÐARAUGA í BOÐI HJA MAGIC Hjónaleysin O.J. og Paula lentu í deilu þegar þeim var boðið í afmælisveislu hjá körfuboltaleikmanninum Mag- ic Johnson. Þegar kom á stað- PHOTOS O.J WANT •Nicole a mynd eftir barsmíðar Simpsons. •„Eg óttaðist um líf mitt þegar hann setti krumlurnar ut an um hálsinn á mér og herti að,“ segir unnusta O.J. Simpson. * ■ ■ ■-;. inn var Simpson orðinn blindur af reiði. Rifrildinu lauk með því að hann gaf Paulu glóðarauga að fjölda vitna aðsjáandi. Hún hafði gert það eitt af sér að tala við aðra karlmenn. Simpson hefur hins vegar orðið uppvís af því að daðra við aðrar konur og þegar Paula hefur kvartað yfir því hefur hann svarað með bar- smíðum. í eitt skiptið sagði Paula vin- konu sinni: „Hann sló mig þann- ig að við lá að ég missti meðvit- und. Á eftir fórum við upp í svefnherbergið og sváfum sam- an.“ Vinir þeirra munu hafa reynt að skerast í leikinn þegar ástandið hefur orðið hvað verst. Einn þeirra gefur svofellda lýs- ingu: „Ég gleymi því ekki þegar við vorum að fara út að skemmta okkur og O.J. var ékki ánægður með hvernig Paula var klædd. Honum fannst hún ekki nógu kynþokkafull. Ég reyndi að stilla til friðar en O.J. svaraði með því að sparka í mig. Mér tókst að komast undan en þá lenti sparkið með fullum krafti í sköflunginn á Paulu. Hún engd- ist sundur og saman af kvölum.“ €rúir á sakleysi o.j. Þrátt fyrir þetta háttarlag O.J. Simpson trúir Paula því að hann sé saklaus af því að hafa myrt konu sína og vin hennar. Hvern dag tala þau saman í síma og Paula tekur því ekki illa þegar O.J. fer á fjörurnar við hana. Munu þessi samtöl vera afar innileg. Fleira hefur þó verið að koma í ljós sem bendir til þess að Simp- son sé sekur. Brian „Kato“ Kaelin, náungi sem var gestur Simpsons morðkvöld- ið og er höfuðvitni í málinu, bar fyrir rétti í síðustu viku að hann hefði heyrt þrjú þung högg á vegg þetta kvöld. Saksóknarar halda því fram að þetta hafi ver- ið þegar Simpson rakst utan í loftræstibúnað og missti af sér hanska sem hann var með á höndunum eftir ódæðið. Síðan kom Simpson út og bar með sér ýmiss konar farangur. Þar á meðal var bakpoki sem hann vildi ekki leyfa Kaelin að snerta. Þennan dag ræddi Simpson við Kaelin um samband sitt við Nicole en þá hafði slitnað upp úr milli þeirra hjónanna. Simpson talaði um að hann vildi reyna að ná sáttum við Nicole. Kaelin seg- ist hafa tjáð vini sínum að sam- bandinu væri lokið og Simpson yrði að að snúa sér að öðrum hlutum.B Rachel Hunter og Renee, þriggja ára stelpa. Barnsmóöir Rods Það er alkunna að poppstjarn- an Rod Stewart hefur lengi haft auga fyrir ungum, ljóshærðum og hávöxnum fyrirsætum. Rod, sem er orðinn fimmtugur, hefur í nokkur ár verið kvæntur nýsjá- lensku fegurðardísinni Rachel Hunter, reyndar óvenju lengi á mælikvarða þessa mikla kvenna- manns. Hún hefur nú alið honum tvö börn, Renee sem er þriggja ára og Liam sem er ekki nema fimm mánaða.B

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.