Helgarpósturinn - 11.05.1995, Qupperneq 27
27
Jim Smart/Portrett
PÁLÍNA JÓNSDÓTTIR LEIKKONA UM MYNDINA AF SJÁLFRI SÉRI „Þetta er prakkari, hamingjusamur prakk-
ari, sem finnst gaman að láta taka af sér myndir. Hún er svolítið austræn til augnanna, en það er líka það eina
sem er austrænt og kannski er þetta meira Ijósinu að kenna heldur en genunum. Hún samsvarar sér alveg ótrú-
lega illa, notar skó númer 45, en virðist nokkuð nett þar fyrir utan — hún er líklega tröll í aðra ættina og álfkona
í hina og getur þess vegna brugðið sér í allra kvikinda líki. Það er mikill leikur í henni, henni finnst ábyggilega
gaman að leika sér — sérstaklega í hulduheimum, þar sem ævintýrin gerast og hið ómögulega verður mögulegt.
Þar getur hún til dæmis orðið ósýnileg, og þar getur hún leyst sig upp í frumeindir sínar og safnast saman aftur
þegar henni hentar. í hulduheimunum ríkir glaumur og gleði og hún skartar sínu fegursta skarti. Stundum bregð-
ur hún sér líka í tröllabyggðir, er úfin og ófrýnileg ásýndum og fer þar hamförum hvað innra og ytra atgervi
snertir. Hún gerist hamhleypa til allra verka — arkar stórstíg um fjöll og firnindi og elskast með náttúrunni svo
jörðin nötrar.
En þegar hún er í mannheimum er hún áreiðanlega lítillát og Ijúf og kát, en þó alltaf með þetta óræða blik í aug-
um..."
Nýjung í veitingastaðaflóru borgarinnar
IHIOLLUR
SKYNDIBITI
„Við vissum að það væri stór kúnna-
hópur til staðar en viðtökurnar hafa far-
ið fram úr okkar björtustu vonum," segir
Hjördís Gísladóttir sem á og rekur
veitingastaðinn Grænan kost ásamt Sól-
veigu Eiríksdóttur. En Grænn kostur
er, eins og nafnið bendir til, veitinga-
staður sem býður upp á grænmetis- og
heilsurétti af ýmsu tagi.
„Það má segja að þetta sé svona
heilsuskyndibitastaður. Fólk getur borð-
að hér eða tekið rétti með sér heim. Við
notum ekki fisk eða kjöt í réttina, ekki
ger, hvítt hveiti, sykur eða mjólk og bæt-
um engum aukaefnum í matinn. Það er
auðvitað ákveðinn vandi að búa til góð-
an mat án þessa hráefnis en það hefur
tekist mjög vel," segir Hjördís og bendir
á að maturinn sem þær hafa á boðstól-
um sé því tilvalinn fyrir þá sem þjást af
geróþoli eða mjólkurofnæmi. Einnig
gæta þær stöllur þess að hafa alltaf ein-
hverja rétti fyrir fólk sem hefur glútenof-
næmi. Þrátt fyrir að Grænn kostur sé
góður kostur fyrir þá sem þurfa að forð-
ast ýmsar fæðutegundir er staðurinn
langt í frá eingöngu fyrir þá eða heilsu-
fríkin. Réttirnir á matseðli staðarins eru
hver öðrum gómsætari og ekki spillir fyr-
ir að verðið er sérstaklega hagstætt, eða
aðeins 350 krónur fyrir rétt dagsins.
Grænn kostur er til húsa á horni
Skóiavörðustígs og Bergstaðastrætis og
er gengið inn á staðinn Berstaðastrætis-
megin.
Hjördís Gísladóttir og Sólveig Eiríksdóttir, vertar á Grænum
kosti, aldeilis frábærum heilsuskyndibitastað á horni Berg-
staðastrætis og Skólavörðustígs.
Lóan hefur löngum verið kölluð „vorboðinn Ijúfi" og þegar krían byrjar að predika yfir hausamótunum á fólki er vorið endan-
lega komið og stutt í sumarið. En það eru ekki bara fuglar og skjálfandi skátar í skrúðgöngu sem vitna um vorkomuna.
Það eru alltaf einhverjir
harðjaxlar sem halda það
út að hjóla árið um kring
þrátt fyrir klakabúnka,
saltaustur og norðanbál,
en þeir eru ekki ýkja
margir. Nú dusta borgar-
búar hins vegar rykið af
hjólhestum sínum hver af
öðrum og flengjast á þeim
út um allar trissur, þar á
meðal hann Steingrímur
fréttamaður Ólafsson,
sem hér sést á tali við
gamla skólasystur sína úr
Versló, hana Vaiborgu Sal-
óme Ólafsdóttur.
\kvf>i!iiiir. niýtliigiir ng mótorhjól
m
Rétt eins og krían, lóan, og
kýrnar sem sleppt er úr fjós-
inu, er skyndileg fjölgun þess-
ara vina vors og blóma á göt-
um bæjarins óbrigðul vísbend-
ing um vor í lofti og betri tíð
með blóm í haga á næsta leiti.
Ivort þeir voru að gera grín að þess-
um aumingjum sem eru enn húkandi
inní bílum í blíðunni eða að gera út
um stefnumót í Kapelluhrauninu er
ekki vitað, en það virðist altént fara
vel á með þessum riddurum götunnar
þar sem þeir snigluðust niður Lauga-
veginn.
Páll Banine kominn með amrísku löggu-
skyggnurnar á nefið í tilefni sumarsins
og greinilegt að Pétur Sæmundsen öf-
undar hann stórlega af þessum sérlega
sumarlega aukabúnaði eðaltöffarans.
■
Nátthrafninn Þórir Viðar felur viðkvæm augu sín fyr-
ir sólinni og gælir með löngutönginni við ósýnilega
mýflugu, en mýflugurnar eru auðvitað enn ein sönn-
un þess að sumarið er komið. Félagi hans, Stefán Már
Magnússon, virðist samt sem áður síður en svo kátur
yfir þeirri staðreynd.
bíó
BÍÓBORGIIU
Strákar til vara Boys on
the Side *★ Ó-óó stelpur.
Pólitískt rétt útgáfa af
Thelma & Louise.
Rikki ríki Richie Rich *
Culkin er kominn á aldur.
Afhjúpun Disdosure ★★
Douglas finnst tölvur meira
spennandi en Demi!
BÍÓHÖLLIIU
Algjör bömmer A Low
Down Dirty Shame 0 Töffar-
inn Shame leikur, skrifar
handrit og leikstýrir - og
skiptir hæfííeikaleysi sinu i
þrennt.
Slæmir félagar Bad
Company ★ Flott er tryll-
ingslega skakkt brosið á
gelTunni Ellen Barkin.
Banvænn leikur Just Ca-
use ★★★ Óvæntur loka-
kaflinn reddar þessu.
Táldreginn The Last
Seduction ★★★ Linda Fi-
orentino er æðislegt kven-
dýr.
HÁSKÓLABÍÓ
Orðlaus Speachless ★★★
Keaton og Geena eru snið-
ug og sæt.
Ein stór fjölskylda ★★
Reykjavíkurrealismi, oft
fyndinn.
Stökksvæðið Drop Zone
★ Hví fær Snipes ekki að
kyssa hvítu skvisuna?
Forrest Gump ★★★★★
Gump er vinalegur vitleys-
ingur.
Nell ★ Jodie Foster leikur
fágaða villistelpu.
LAUGARÁSBÍÓ
Heimskur, heimskari
Dumb, Durnber ★ Ef maður
hlær, þá hefur maður bara
þannig smekk.
Inn um ógnardyr In the
Mouth of Madness ★★ Rit-
höfundur rænir lesendur vit-
inu. Marx kunni þetta líka.
REGI\IBOGII\IIU
Leiöin til Wellville The
Road to Wellville 0 Mikil
læti, lítið vit.
Parísartískan Prét-á-port-
er ★★★★ Altman heillast
af fallega fólkinu í París.
Shawshank fangelsið
The Shawshank Redempti-
on ★★★★ Grátklökk
mynd en líka fyndin.
Himneskar verur Hea-
venly Creatures ★★★★★
Glæsilegt verk um fagra og
skelfilega vináttu.
SAGABÍÓ
í bráðri hættu Outbreak
★★★ Spennandi, en ekki
fyrir sótthrædda.
Konungur Ijónanna
The Lion King ★★★★ Þeir
fúska ekki hjá Disney.
STJÖRIUUBÍÓ
Ódauðleg ást Immortal
Beloved ★★ Brokkgengur
Beetnoven.
Vindar fortíðar Legends
of the Fall ★ Ofmetin kvik-
myndataka en lítilfjörlegur
Pitt.