Helgarpósturinn - 11.05.1995, Side 28
DOMINO'S
PIZZA
VERO AÐ FÁ ÞAO
Segja má að líf Skot-
anna tveggja, sem í
fyrra sögðu frá ástum
sínum á tveimur kunnum
íslenskum konum í forsíðu-
viðtali við tímaritið
Heimsmynd, hafi tekið
stakkaskiptum. Viðtalið
var við félagana Alex
McGuillan og Leslie Robert-
son sem þá áttu í eldheit-
um ástarævintýrum með
Lindu Pétursdóttur fegurð-
ardrottningu og Filippíu Elís-
dóttur fatahönnuð og fóru
Skotarn-
ir fögrum
orðum um
þær í viðtalinu.
Við höfum þegar
greint frá því að sam-
band Lindu og Les sé runnið út í
sandinn, en það saman á líka við um
samband Alex og Filippíu. Það þýðir
með öðrum orðum að tvær af „eftir-
sóttustu kvenkostum11 íslands, eins
og blaðamaður Heimsmyndar orð-
aði það í viðtalinu, eru báðar á
lausu...
Fyrir skömmu varð ljóst hvapa átta nemendum var
hleypt inn í Leiklistarskóla íslands og hefja því nám
þar að.hausti komanda. Eins og venjulega sóttu tugir
manna um vistina. Spenna ríkir þó
jafnan ekki í hópnum fyrr en búið er
að skera hann niður i sextán manns.
Þá má vart heyra saumnál detta án
þess að einhver úr þeim hópi
hrökkvi í kút. En valið er semsé yfir-
staðið. Flestir sem valdir voru teljast
óbreyttir enda allavega fjögur ár í
það að þeir verði nöfn í leiklistar-
heiminum. Þó var ein undantekning
því inn í skólann í ár komst stúlka,
eða öllu heldur kona, að nafni Jó-
hanna Vigdís Arnardóttir. Sú vakti
verulega athygli þar sem hún söng fagurri óperuröddu í
söngleiknum Hárinu í Gamla bíói í fyrra og lék síðan í sama
söngleik, nokkuð eftirminniiegan ferðamann, en hún er ein-
mitt óperusöngkona að mennt. Þess má geta að Jóhanna er
mágkona Jóhanns Siguröarsonar leikara sem kvæntur er
systur hennar. Eiginnmaður Jóhönnu er svo Þorsteinn Gauti
Sigurðarson, píanóleikari og bróðir Jóhanns. Tveir aðrir,
strákar, sem fóru með öllu burðarminni hlutverk en Jó-
hanna í Hárinu, komust einnig í skólann í ár...
PÓRHALLUR Ölver Gunnlaugsson í Vatnsberanum var
dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir stórfelld skatt-
svik og eitt að auki ef hann greiðir ekki 20 milljóna
króna sekt innan fjögurra vikna. Að auki þarf hann að
greiða 40 milljónir í sekt óháð fangavistinni. Fullyrða má að
í raun hafi hann verið dæmdur í fjögurra ára fangelsi því
enginn heilvita maður færi að borga 20 milljónir fyrir að
sleppa við eins árs fangavist. Ef hann greiðir þessar 20
milljónir fyrir að sleppa við árs fangavist er hann í raun að
borga 1,7 milljónir fyrir mánuðinn, 385 þúsund krónur fyrir
vikuna eða 55 þúsund fyrir daginn. Svo má reikna með að
hann sitji aðeins inni helminginn af afplánunartímanum. Þá
væri hann að borga ríflega 3,3 milljónir króna fyrir mánuð-
Greiddu atkvæði!
99 15 1§
'"59.90 kronur mínútan
12.-16.
m
sæti
56,8%
Síðast var spurt:
í hvaða sceti
lertdir
ískmd á
HM 95 í
handholta? _____________
I hverju tölublaði leggur Morgunpósturinn spurningu fyrir lesendur,
sem þeirgeta kosið um I síma 99 15 16.
Nú er spurt:
Er rétt að Ólafur Þ. Þórðarson
fái aftur skólastjórastöðu sína?
inn, 770 þúsund krónur fyrir vikuna eða 110
þúsund krónur fyrir hvern dag. Það má því
segja að Þórhallur sé á ævintýralegu tíma-
kaupi ef hann kýs að borga ekki sektina en
sitjahana af sér...
Um næstu mánaðamót er BjÖRN Hall-
dórsson væntanlegur aftur til starfa
sem yfirmaður ávana- og fíkniefna-
deildar lögreglunnar eftir tæplega ársleyfi.
Þeir lögreglumenn sem hafa starfað innan
fíknó, eins og deildin er jafnan
kölluð, hafa löngum mátt sitja
undir fleiri limlestingar- og
líflátshótunum en kollegar
þeirra í öðrum deildum. Björn
var ekki þekktur fyrir annað
en að ganga fram af fyllstu
hörku við fíkniefnasmyglara
og sölumenn dauðans áður
en hann fór í leyfið og ekki er
annars að vænta en að hann
haldi uppteknum
hætti þegar hann hef-
ur störf að nýju. Und-
anfarna daga hefur
sést til Björns í glímu
við lóð í Ííkamsræktar-
stöðinni World Class
og er hann eflaust að
undirbúa sig undir
komandi átök...