Helgarpósturinn - 21.09.1995, Page 14
14
, sími 564 2141
Talaðu við okkur um
BÍ LARÉTTJ N GAR
BÍLASPRAUTUN
RMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER1995
Þess er minnst víða um heim á þessu ári að 100 ár eru
liðin frá fyrstu opinberu kvikmyndasýningunni sem
haldin var í París í desember 1895. í samstarfi ætla Há-
skólabíó og Hreyfimyndafélagið að fagna þessum tímamótum
á næstunni með því að sýna nýlegar kvikmyndir víðs vegar að
úr heiminum í bland við eldri myndir sem sumar eru sígildar
en aðrar kannski öllu fremur skrítnar. Er ætlunin að myndirn-
ar verði sýndar á samtals 100 sýningum, en fyrst myndanna
er Temptation ofa Monk sem verður í bíóinu um helgina. Af
öðrum myndum sem þykja eftirtektarverðar má nefna Burnt
by the Sun eftir Nikita Mikhailov sem hlaut Óskarsverðlaun
sem besta erlenda myndin í ár. Sýningarnar á gömlu myndun-
um verða spilaðar af fingrum fram eftir því hvernig stendur í
/úmið hjá þeim í Háskólabíói, en heyrst hefur að á dagskrá
verði meðal annars trílógían um Guðföðurinn og myndir með
kempunum Jerry Lewis og Dean Martin...
Sem kunnugt er standa
yfir ráðuneytisstjóra-
skipti í utanríkisráðu-
neytinu og tekur Helgi Ág-
ústsson sendiherra við af
Róbert Trausta Ámasyni.
Alþýðublaðið greindi frá því
fyrr í vikunni að Helgi, sem
nú snýr heim frá störfum í
London, hefði einmitt gengið
í Framsóknarflokkinn í vor, um það leyti
sem Halldór Ásgrímsson varð utanríkisráð-
herra. Annars telur blaðið að Helgi hafi ver-
ið orðaður við Alþýðuflokkinn...
Amiðvikudag birtist í Morgunblaðinu
heilsíðuauglýsing á vegum átaksins
„Karlar gegn ofbeldi“ og skrifa þar
125 málsmetandi karlmenn á öllum aldri
undir yfirlýsingu gegn ofbeldi. Það á greini-
lega ekkert að fara milli mála að enginn
þessara karlmanna beitir ofbeldi, eða er
það slys að í áskoruninni stendur berum
orðum: „Við undirritaðir skorum á aðra
karlmenn að axla ábyrgðina á ofbeldinu og
taka höndum saman um að vinna gegn því
hvar sem það birtist“...
'yrir nokkru var ákveðið
að halda áfram með
tísku- og dægurmála-
þáttinn Fisk án reiðhjóls og
verður hann á vetrardagskrá
Stöðvar 2. Sem fyrr eru það
Heiðar Jónsson snyrtir og
Kolfinna Baldvinsdóttir
sem eru andlit þáttanna, en
einhverjum sögum fór af því
eftir samstarf þeirra síðasta vetur að hug-
myndirjjeirra um þáttinn væru vægast sagt
ólíkar. Ákvörðun um hvort framhald verður
á samstarfi þeirra tveggja var ekki tekin fyrr
en seint í sumar, en Helgarpósturinn hefur
heimildir fyrir því að staða Kolfinnu hjá
Stöð 2 sé mun tvísýnni en Heiðars...
Verfð relkomin
I UMFERÐINNI
ERU ALLIR
í SAMA LIÐI
UMFERÐAR
RAÐ