Helgarpósturinn - 21.09.1995, Blaðsíða 32

Helgarpósturinn - 21.09.1995, Blaðsíða 32
TOMMA HAMBORGARAR LÆKJARTORGI Hagkaup sækir fram á Netinu Hagkaupsveldið hefur tekið höndum saman við Andrés Magnússon, fyrrverandi blaðamann á Morgunblaðinu og Helgar- póstinum, og þá Smekk- leysu-félaga Þór Eldon og Einar Örn Benediktsson í tengslum við Internetið margumrædda. Félagarnir þrír munu vera með í bí- gerð fyrirtæki sem sérhæfir sig í heimasíðna- og gagna- grunnagerð fyrir Netið og renna — einsog önnur tölvufyrirtæki — hýru auga til Japansmarkað- ar, markaðar sem býr yfir tækjum og framleiðslu- möguleikum en ekki þekkingu og tækni. Ástæðan fyrir því að Hag- kaup leggur fjármagn í þessa þróun mun vera sú, að fyrirtæk- ið hyggst fara útí umfangsmikla vörusölu á Netinu og þar liggur hagnaðarvonin: að nýta sér net- ið til að ná til nýs markaðar. Fjármagnið sem Hagkaup er reiðubúið að leggja í þróun Andrésar, Þórs og Einars Arnar ætti að tryggja lífslíkur fyrirtækisins umfram önnur slík hér á Iandi þarsem þekkingin er fyrir hendi en ekki fjár- magnið. Hver veit nema fljótlega berist fregnir af japönsk- um húsmæðrum í Hagkaupssloppunum frægu... Minna fé fyrir atvinnulausa Atvinnulausir Reykvíkingar fá kaldar kveðjur frá blönk- um atvinnuleysistryggingasjóði um þessar mundir. Undanfarin misseri hafa atvinnulausir getað sótt ýmis hagnýt námskeið sér að kostnaðarlausu, en atvinnuleysis- tryggingasjóður hefur greitt þátttökugjaldið. Nú þegar þeir fjármunir, sem sjóðurinn ætlaði til þessa málaflokks, er að klárast, hafa forsvarsmenn sjóðsins tilkynnt meðal annars forstöðumönnum Tölvuskóla Reykjavíkur að þeir verði að hætta að innrita atvinnuleysingja á kostnað sjóðsins. Tölvuskóli Reykjavíkur hefur haldið vinsæl og vel sótt námskeið fyrir atvinnulausa síðan í nóvember á síðasta ári og telur Guðmundur Árnason skólastjóri að um eitt þús- und atvinnuleysingjar hafi sótt samtals milli fjögur og fimm þúsund námskeið hjá skólanum síðan þá. Guðmund- ur segir að sjóðurinn hafi greitt um það bil hálfvirði mið- að við verð námskeiðanna á almennum markaði, eða um sjö þúsund krónur fyrir hvern einstakling á hvert sótt námskeið. Það er því ljóst að það eru ekki bara þeir at- vinnulausu sem tapa á þessum fjárhagskröggum at- vinnnuleysistryggingasjóðs, því samkvæmt áðurgreind- um upplýsingum Guðmundar má gera ráð fyrir að Tölvu- skóli Reykjavíkur hafi velt allt að 35 milljónum króna vegna námskeiðahalds fyrir atvinnulausa á innan við einu ári... Greiddu atkvæði! 39,90 kr. mínútan Sfðast var spurt: Hver á að verða nœsti landsliðsþjálfaif 1. Guðjón Þórðarson 2. Logi Ólafsson 3. Teitur Þórðarson f hverju tölublaði leggur Morgunpósturinn spurningu fyrir lesendur, sem þeir geta kosið um í síma 904 1516. Nú er spurt: Á forsetinn að njóta skattfríðinda umfram 31 aðra íslendinga? ARMULA 13 SÍMI: 568 1200 BEINN SÍMI: 553 1236 HYunoni ...til framtíðar Ath. aukabúnaður á mynd álfelgur og vindskeið. Nýja Elantran er gjörbreyttur. jafnt utan sem innan. Útlitið er orðið straumlinuiagaðra. sem gerir hann ekki aðeins sDortteari og faltegri. heldur minnkar það loftmótstöðu og sparar eldsnevti. Innréttinqin er nv oq qtæsitea. Mjög rúmt er um ökumann og farþega og öll stjórntæki innan seilingar. Hlióðeinanqrun er mun meiri og stvrktarbitar í hurðum ag önnur örvaaisatriði hafa verið aukin enn frekar. Verðs 1.395.000 kr. á götuna Nérerham ...enn betri Elantra Á R G E R Ð 1.8 l og 128 hestafla vél. Útvarp, segulband og fjórir hátatarar, vökva- og veltistýri. rafknúnar rúður og speglar. mmHelgar j \ Postunnn EFÞÚ VILT FYLGJAST MEÐ símanúmer frá 3. júní 90-4-15-16

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.