Helgarpósturinn - 21.09.1995, Side 24
24
FIMIVmiDAGUR 23. SEPTEMBER1995
Bristol Cream breytir um búning
Á góðri leið með
að verða alþýðu-
drykkur á íslandi
Sérrí er það sem
kallað er fjölnota
drykkur. Sérríið hefur
ekki bara við stofuhita
yljað heilu sauma-
klúbbunum heldur er
það gjarnan notað til
matargerðar og ekki
síst sem kökudropar,
en mörgum sögum fer
af því þegar glaðnar
skyndilega yfir hús-
móðurinni í eldhús-
inu. Þá er sérrí þekkt-
ur sjúkrahúsdrykkur
og oftsinnis gefinn
á síðkvöldum
við svefnleysi.
Það er að
auki sagt
blóðauk-
andi og
stemmandi
fyrir magann. Erlendis,
einkum og sér í lagi í
Bretlandi og á Spáni, er
drykkja á stofuheitu sérr-
íi hluti af menningu sem
á sér afar djúpar rætur.
Þrátt fyrir það víla menn
ekki fyrir sér að kynna til
sögunnar nýja útfærslu
sérrídrykkju, sem bygg-
ist á því að drekka Brist-
ol Cream, vinsælasta
sérrí heims, á klaka með
appelsínusneið. Sá siður
þykir við hæfi á þotuöld
þegar allir vilja eitt-
hvað svalt og ferskt!
En það sem meira
er og síst ómerki-
legra: umbúðir
þessa rúmlega
aldar gamla
drykks hafa tek-
ið stökkbreytingum. í stað
brúnu ávölu flöskunnar er
Bristol Cream komið á stíl-
hreina Bristol-bláa flösku, en
hið vandmeðfarna Bristol-blá-
gler er eitt af sérkennum borg-
arinnar.
Hið nýja andlit Bristol Cre-
am hefur smátt og smátt verið
að síast inn i landsmenn og er
nú svo komið að allt helsta
þotulið landsins, einkum þotu-
konurnar, er farið að leggja sér
sérrí á klaka til munns. Þá má
leiða að því líkur að brátt verði
sérrí alþýðudrykkur á börum
bæjarins, því sjússinn kostar
innan við 200 krónur á meðan
kókglasið situr sem fastast í
150 krónum.
Söguleg mistök
David Pitt framkvæmdastjóri
er mikill áhugamaður um sérrí.
Ekki einasta er hann breskur í
aðra röndina (en íslenskur í
hina) heldur ættaður frá höf-
uðborg sérrisins, Bristol.
Hvaða skoðun hefur hann á
nýrri markaðssetningu á Brist-
ol Cream?
„Þó að mér finnist sérrí á ís
afar góður drykkur fær maður
ekki sömu tilfinninguna fyrir
honum og þegar maður dreyp-
ir á stofuheitu sérríi. Sérrí á
klaka minnir mig frekar á
Pimms, afar svalandi breskan
drykk, en hefðbundið sérrí,“
segir David Pitt, sem segist
gjarnan fá sér sérríglas, enda
sannfærður um hollustu
drykkjarins.
David er ekki bara venjuleg-
ur sérrídrekkandi Breti, því
fyrir 33 árum komst hann í
innsta hring er hann starfaði
hjá Harveys í Bristol, framleið-
anda Bristol Cream, en faðir
hans var lögfræðingur hjá Har-
veys. „Ég var sautján ára þegar
forstjóri Harveys bauð mér
vinnu eitt sumar. Ég ákvað að
slá til, svona til að sjá hvernig
mér líkaði í áfengisviðskipt-
um.“
David segir það stórkostlega
reynslu, enda hafi margt drifið
á daga hans það sumar. Auk
þess að smakka og skrifa um
vín vann hann sem þjónn á
kvöldin hjá veitingahúsi Har-
veys, sem rekið var í einum af
hinum mörgu hellum sem eru
undir borginni. Veitingahús
Harveys var þekkt fyrir að hafa
á lista sínum einar 2.300 mis-
munandi vín- og sérrítegundir.
„Kvöld eitt, þegar ég var að
þjóna manni nokkrum til
borðs, urðu mér á mistök sem
ég gat þó klórað mig út úr.
Maður þessi bað um „iced dry
sherry", en í stað þess færði ég
honum sérrí á klaka. Viðskipta-
vinur minn varð vægast sagt
hissa, enda hafði hann aldrei
séð annað eins og spurði
hneykslaður hverju þetta
sætti. Ég náði að snúa mig út
úr mistökunum með því að
segja að Harveys væri um
þessar mundir að gera tilraun
með sérrí á klaka. Mér til mik-
illar furðu varð maðurinn mjög
ánægður með drykkinn. Síðan
frétti ég ekkert af honum fyrr
en það birtist eftir hann grein í
vínblaði þar sem hann hældi
sérríi á klaka á hvert reipi.
Hann var vínsérfræðingur eftir
allt saman.“
Þegar öllu er á botninn
hvolft er sérrí á klaka því ekki
glæný hugmynd heldur að
minnsta kosti 33 ára gömul.
David Pitt er ættaður frá
Bristol og vann hjá Harveys
eitt sumar. Fyrir 33 árum
urðu honum á söguleg mis-
tök.
Aðstandendur Nautnar eru eins og sjá má af öllum stærðum og
gerðum og misdökkir á hörund. Það eru þeir Stefán og Sigurð-
ur í Kjól og Anderson (þeir stærstu og hvítustu) sem bera hit-
ann og þungann af stuttmyndinni.
Daníel Agúst og T-world suðu saman merkilega danstónlist.
T-world, Daníel Ágúst og hin séníin
Halda um
taumana á
ótemjunni
Nautn (nr. 1) heitir ný stutt-
mynd sem frumsýnd verður í
Sambíóunum í byrjun nóv-
ember, en tónlist úr myndinni
kemur einnig út á geisladiski.
Diskurinn, sem kemur út um
miðjan október, hefur að
geyma fjórtán lög, þar af tvö
sem eru í stuttmyndinni. Um
tónlistina sjá þeir T-World-gæj-
ar Maggi legó og Biggi ásamt
Daníel Agústi Haraldssyni: „Þetta
byrjaði þannig að snemmsum-
ars ætlaði hópur fólks að fara
að gera stuttmynd. Þegar við
sáum fram á að tökum yrði
frestað fram í ágúst ákváðum
við að gera eitthvað skemmti-
legt — gera plötu,“ segir Daní-
el Ágúst, en auk hans koma
þau Emilíana Torrini, Heiðrún
Anna Björnsdóttir, Hafdís Huld
og Magnús Jónsson fram í
myndinni og á diskinum.
Daníel segir þá félaga vera
að gera grunn að fjórtán smell-
um sem leikarar myndarinnar
(og söngvarar) ætla að syngja.
„Heiðrún Anna verður með co-
ver-lag,“ segir Daníel, „en svo
skiptast lögin á milli leikar-
anna. Samsuðan er teknó,
fönk, jungle og T-world, en ég
og strákarnir í T-world höldum
í taumana á þessari ótemju.“
Þessi tónlist ku vera um margt
öðruvísi en það sem Daníel
hefur gert með Nýdanskri. „Nú
er ég að fremja rafvædda tón-
list, fönkaða og samplaða, en
ekki endilega danstónlist.
Þetta er alls konar tónlist,“ út-
skýrir Daníel, ef til vill mest
fyrir sjálfum sér, því við hin
finnum bara taktinn og döns-
um.
„Ég hef aðeins
veriðég"
Örn Svavarsson, eigandi
Heilsuhússins, er þjóðþekkt-
ur sælkeri og gleðimaður.
Hvaða orð og setningar not-
arðu i óhófi?
„Mér leiðist þegar ég
stend sjálfan mig að því að
nota leiðinleg slanguryrði
eða erlendar slettur ómeð-
vitað, sem því miður er alltof
algengt."
Hver er bestur núlifandi rit-
höfunda?
„Hvaða fjall er faliegast,
hvaða foss er tignarlegastur,
hvaða kona er giæsilegust?
Má ekki finna hjá einum það
sem skortir hjá öðrum? Þurf-
um við sífellt að skilgreina
hvað er best, gefa öllu ein-
kunnir og stig?“
Hvað óttastu mest?
„Ég er enginn- sérstakur
djarfhugi, hins vegar er ekk-
ert sem ég get bent á í fljótu
bragði sem ég óttast öðru
fremur, nema að standa mig
að aulamistökum."
Hvert er mesta illmenni
mannkynssögunnar?
„lllmenni hafa verið mörg
og víða og eru enn. Mér
detta helst í hug Adam og
Eva, sem klúðruðu fyrir mér
Paradís. Værum við ekki
annars hvert undir eigin vín-
tré eða fíkjutré; ekkert bif-
reiðaeftirlit, enginn virðis-
aukaskattur og alltaf gott
veður?“
Hvað er það í eigin fari sem
þú vildir breyta?
„Sérgæskan, og þó.“
Hvað þolirðu ekki hjá öðr-
um?
„Það sem ég þoli enn verr
hjá sjálfum mér; aulaskap."
Hvar og hvenær varstu ham-
ingjusamastur?
„Mér líður alltaf vel með
börnunum mínum; það var
einstök upplifun þegar þau
fæddust."
Hvað kanntu best að meta í
fari karlmanna?
„Allar spurningar í efsta
stigi, ha? Kostur hjá öllu
fólki eru heiiindi.“
Hvað kanntu best að meta i
fari kvenmanna?
„Því er þegar svarað.“
Hvað eða hver er fyrsta ástin
í lífi þinu?
„Margt af því sem gerðist
fyrir tíu ára aldur er farið að
fyrnast."
Hvað telurðu þig hafa verið í
síðasta lífi?
„Ég hef aðeins verið ég og
það í þessu lífi.“
Hver er uppáhaldsvísinda-
greinin þín?
„Ég hef alltaf svolítinn
áhuga á grafólógíu.“
í hvaða íþrótt hefurðu kom-
ist næst metorðum?
„Það er með íþróttir eins
og sönginn; þeim mun minna
sem ég iðka þessar dáðir í fé-
lagsskap þeirra sem eru um-
hverfis mig þeim mun fegn-
ari verða þeir.“
Hvernig viltu deyja?
„Saddur lífdaga.“
Hver eru einkunnarorð þín?
„Meira umburðarlyndi."