Helgarpósturinn - 21.09.1995, Blaðsíða 31
V. ii tlt\AMTS
RMMTUDAGUR 2L SEPTEMBER1995
«
Sverrir Stormsker hefur verið settur í
bann á nokkrum útvarpsstöðvum
„Hálfgerður sori“
I nóvember næstkomandi er
von á nýjum diski frá tónlistar-
manninum Sverri Stormskeri.
Sverrir, sem kallar sig Serði
Monster þessa dagana, hefur
þegar sent nokkur laganna af
diskinum til útvarpsstöðv-
anna, en svo hefur brugðið við
að hann hefur verið settur í
bann vegna þess að textar
hans þykja of dónalegir.
„Þetta er náttúrulega hálf-
gerður sori,“ segir Sverrir hóg-
vær í viðtali við Póstinn. „Það
er að segja bannið, ekki text-
arnir,“ bætir hann við.
. Saddam átti syni 7,
7 syni átti Saddam.
Saddam eðlaði sig með þeim,
þeir eðluðu sig með Saddam.
Hann sœddi, hann sæddi,
hann sœddi þá alla trekk í
trekk,
sem bakpokihann áþeim
hékk.
Stóðið fullnœgingu fékk
hring eftir hring.
Úr Saddam átti syni 7.
í þætti Fjalars Sigurðarsonar,
Til sjávar og sveita, á Rás 2 um
þarsíðustu helgi, var Sverrir
gestur og var lag hans Saddam
Serðir
Monster,
sem áður
hét Sverrir
Stormsker,
er of mikill
dóni fyrir
öldur ljós-
vakans.
átti syni 7 leikið þar. Lagið
hlaut litlar undirtektir útvarps-
manna og hefur nú verið bann-
að á Rás 2. Lagið er einnig í
banni á X-inu, en þar hafði það
verið leikið alloft og var orðið
mest umbeðna óskalagið þar á
bæ að sögn.
Hemmi Gunn vildi ekki Sverrí
„Fyrir alþingiskosningarnar
droppaði ég við hjá Hemma
Gunn með lag um þingmenn-
ina og þeirra heilastarfsemi.
Mjög stutt lag eins og gefur að
skilja," segir Sverrir. „En það
hlaut ekki náð fyrir augum
æðstupresta sjónvarpsins af
einhverjum ástæðum. Á þeim
bænum mega stjórnmálamenn
ljúga að okkur, en við ekki
syngja sannleikann um þá.
Textinn var ekki hvassyrtari
en margar greinar dagblað-
anna, en það er nú svo að það
má skrifa um hlutina, alls ekki
syngja um þá,“ segir Sverrir,
auðheyrilega langþreyttur á að
vera bannfærður.
Klepptækir geggjaðir aftur
haldsseggir þeir leggja hér
veggi um allt.
fari þeir asskotar allir f rass
gat sem vilja sig pass ’umfram
allt.
Þeir komast til valda en starf
in ’ei valda en spjöllum þeir
vald’útum allt.
Úr Gefum þeim ævilangt frí.
„Það er skiljanlegt að ríkis-
battarí vilji banna alla skapaða
og óskapaða hluti en mér
finnst sárt að hinar svokölluðu
„frjálsu útvarpsstöðvar“, sem
voru bannaðar fyrir nokkrum
árum, skuli nota nýfengið frelsi
sitt til að banna meinleysisleg-
ar afurðir manna," segir Sverr-
ir. Lagið Kyn-óður er bannað á
Aðalstöðinni:
ÉgerStína stuð
stinn og blaut og hott.
Karlmenn abbast uppá mig,
asskot’erða gott.
Ég er Rassmus Fel,
fer á bak við menn;
í djúpum skít ég skemmti
mér,
ískaufanum ég brenn.
Úr Kyn-óður.
„Það getur vel verið að þetta
djók særi velsæmiskennd heil-
agra manna, en þó að væmnir,
mærðarlegir hvolpástartextar
ýmissa siðprúðra tónlistar-
manna særi mína velsæmis-
kennd og fegurðartilfinningu
þá fer ég ekki að hringja í Þjóð-
arsálina, kófsveittur, og fara
fram á að þeir verði bannaðir.
Frelsi til að banna er eina
frelsið sem við íslendingar
þekkjum, en það er mál sem
snýr ekki endilega að mér
heldur miklu frekar geðlæknis-
fræðinni," segir Sverrir Storm-
sker.
Bubbi á skytteríi
Með hveijum vildirðu helst fara á gæs?
„Gæsin má
fljúga fyrir
mér ef hún
vill,“ segir
Bubbi Mort-
hens rjúpna-
s k y t t a .
„Gæsaskytt-
erí er slátrun
í mínum huga. Rjúpnaveiðin
er miklu erfiðari og maður
þarf að hafa miklu meira fyrir
því að ná í rjúpuna." Bubbi
átti ekki í vandræðum með að
finna fimm menn sem hann
langar til að fara með á rjúpu,
en rjúpnaveiðitímabilið hefst
15. október.
1. Þorleifi Guðjónssyni, æsku-
vini mínum og vinnufélaga til
margra ára.
2. Bróður mínum Þorláki
Kristinssyni. Mig langar að
koma honum á fjöll og það er
ágætt ef einhver í familíunni
slæst í hópinn til að sjá um
jólamatinn fyrir fjölskylduna.
3. Ég hefði áhuga á að taka
góðvin minn, Þorstein Kragh,
með mér. Ég hef grun um að
hann sé góður skotmaður.
4. Síðan hef ég mikinn
áhuga á að fara að skjóta með
Eiríki Beck lögreglumanni.
Hann er mikil skytta, veiði-
maður og kafari.
5. Síðast en ekki síst langar
mig að skjóta með Ásgeiri
Heiðari, en hann er landsfræg
atvinnuskytta. Það væri gam-
an að fá að fylgjast með og
læra af honum.
Sossi sexý, e'g sakna þín!
Á Stöð 2 um daginn var um-
fjöllun um „skallavandamál"
karlmanna. Fréttamaðurinn
sem sá um umfjöllunina var
sjálfur sköllóttur og hafði feng-
ið til sín í beina útsendingu
sköllóttan gest og svo vel
hærðan „skallabana“ sem ætl-
aði að redda lífi gestaskallans
á örfáum mínútum með því að
hæra hann upp á nýtt með svo-
kölluðu „viðbótarhári" eða
Satt að segja...
Huldar
Breiðgörð
„ektahári". „Skallabaninn"
gluðaði nokkrum límklessum á
gestaskallann, setti einskonar
£ 1 franskan rennilás ofan á og svo
heilt höfuðleður af öðrum
manni ofan á franska rennilás-
9 inn, klippti það til og gerði
»» hann þannig að instant stór
töffara á nokkrum mínútum.
Þegar fréttamaðurinn lagði sig
fram við að ná upp spennu í
þessa stórmerkilegu athöfn í
9 beinni og talaði um að „kollan
vææææri alveg að verða tilbú-
in“ varð „skallabaninn“ alltaf
hálffúll og margítrekaði með
stolti í röddinni að hann væri
ekki að setja „hárkollu" á
gestaskallann heldur „EKTA
VIÐBÓTARHÁR!"
Ég veit ekki með ykkur, en
mér finnst ekkert viðbjóðs-
legra en að hafa hár af ein-
hverjum öðrum á hausnum.
Hvaðan kemur það hár? Af
rokkurum sem voru síðhærðir
áður en þeir seldu makkann
0 fyrir næstu sprautu? Af dauðu
fólki sem hafði ánafnað líkama
sinn með öllu tilheyrandi ein-
# hverjum spítalanum? Eða er
þetta hár sem sérstakir hár-
safnarar tína í poka upp úr
sturtuniðurföllum í sundlaug-
um? Það hlýtur þá að vera
mjög freistandi sparnaðar-
0 möguleiki fyrir þannig gaura
að lauma með einni og einni
hundshárflygsu til að ná sér í
smáaukapening. ■
Skallabaninn talaði um að
það ætti ekki að vera neitt
feimnismál að fá sér „ektahár"
til að breiða yfir skallann.
Ókei. En svo hélt hann áfram
og sagði að þetta væri svona
svipað og þegar fólk fengi sér
nýjar tennur. Ef þú þyrftir að fá
þér nýjar tennur, hvort mynd-
irðu fá þér falskar tennur eða
„ektatennur'1 út úr einhverjum
öðrum? Og þar sem allt feik og
gervi er búið að vera myndi lík-
lega fylgja nýja ektatannsett-
inu sérstakur tannbursti með
„ektaskegghárum", svona til
að hafa þetta sem mest „natur-
el“ allt saman.
Já, heimur hársins er loðinn.
Það er til dæmis alls ekki sama
hvar það er staðsett. Um leið
og hár í fallegri greiðslu fellur
ofan á matardisk verður það
ógeðslegt, hár á tám þykir við-
bjóðslegt, hár út úr nefi er
skelfherfilegt, hár út úr eyra
herfbjóðslegt, hár á baki skelf-
bjóðslegt og hár undir hönd-
um kvenna þykir hreinn skelf-
herfbjóður. Og það er heldur
ekki sama hvenær og hvar hár-
ið er ekki til staðar. Ungbarn
þykir krúttlegt sköllótt en það
þykir lítið varið í ungan sköll-
óttan mann. Nema þegar hann
nær að klæða sig í stíl við skall-
ann og verða „svakaleg týpa“.
Þá nær ungi maðurinn, í hug-
um kvenna, að tengja sköllótt
höfuðið við kónginn á neðri
hæðinni og minna á risastóra
standpínu.
Eftir að hafa horft á skalla-
banann í sjónvarpinu fór ég að
velta því fyrir mér hvort hár-
greiðslufólk væri kannski pínu-
lítið öðruvísi en flestir aðrir.
Fyrir utan að líta út eins og það
sé alltaf nýkomið frá London,
Ibiza eða bara úr ljósum er það
einhvern veginn snyrtilegra en
annað fólk. Ekki bara með
snyrtilegra hár, heldur hreint
og beint hárgreiðslu, líka þótt
það sé statt á Torginu klukkan
hálffjögur að nóttu í geðbilaðri
snjókomu. Svo heitir hár-
greiðslufólk líka nöfnum eins
og: Krulli, Dúddý, Krúsi, Gidda,
Bibbi, Dalli, Madda, Snúlli,
Úlla, Malli, Babbý, Dussi, Hab-
bi, Dúlley, Bimbó, Addý, Bússa
eða Ommi. Alveg svakalega
hljómfögur og lifandi nöfn, sér-
staklega ef þau eru borin fram
með ítölskum hreim. Þetta eru
auðvitað bara listamannsnöfn,
en hárgreiðslukennurunum í
Iðnskólanum hlýtur að líða dá-
lítið furðulega þegar þeir lesa
upp í tímum.
Én það virðist vera þannig
að fólk í hárgreiðslubransan-
um hafi einhvernveginn
„smartara" tak á tungumálinu
en við hin. Fyrir utan það að
bera svona skemmtileg nöfn,
þá heita vinnustaðirnir líka al-
gjörum heimsborgarnöfnum:
Bardó, Cortex, Hár Tískan, Lót-
us, Primadonna, Art, Bistý, Hár
Class, Papilla, Venus, Hár-
hönnun, Salon VEH, Möggurn-
ar og Carter.
Ég veit ekki hvort það að
hafa hendur í hári annarra alla
daga mýkir fólk. Að minnsta
kosti hef ég aldrei séð reiðan
hárgreiðslumann og hef ein-
hvern veginn á tilfinningunni
að þegar hárgreiðslumaður
verður alveg brjálæðislega
reiður þá öskri hann ekki,
heldur gráti. Ég efast meira að
segja um að hárgreiðslumaður
verði nokkurn tíma beinlínis
reiður, heldur frekar „sár“ eða
í mesta lagi „gasalega skúffað-
ur“.
Hjá hárgreiðslufólkinu er
einmitt allt svo „gasalegt“. Þeg-
ar maður labbar inn á stofuna
hjá því lítur maður svo „gasa-
lega vel út“. Maður er í svo
„gasalega lekkerum" fötum,
með svo „gasalega smart" úr
og það er alltaf svo „æææðis-
Iegt“ að sjá mann. Svo biður
maður um klippingu og fær
gæsahúð og unaðshroll við að
heyra syngjandi svarið: „Je-
dúddamía elskan mín, klippa
þig!! Nú gerum við sko eitthvað
gasalega dúlló, kannski perma
aðeins, krulla nett, bylgja
toppinn, ná smályftingu, strípa
doldið og setja skol. Það er lín-
an núna. Svona elegant lúkk!!!“
Hugsanlega ólst hárgreiðslu-
fólkið bara upp við að tala við
ömmu sína allan daginn, alla
daga, og varð svona mjúkt á
endanum. Það er einmitt ann-
að ömmuelement í hár-
greiðslufólkinu; þegar maður
er á stofunni hjá því fær maður
á tilfinninguna að líf þess snú-
ist um mann sjálfan. Maður er
svo „spes“.
Það er kannski eðlilegt að
fólk verði dálítið öðruvísi með
tímanum á því að eiga sam-
skipti við sérríkerlingar með
fjólublátt hár sem koma í lagn-
ingu fyrir og eftir hádegi. Eða
þá þessar týpur sem koma
með útklippta mynd af kyn-
táknum og biðja taugaveiklað-
ar um „alveg eins“. Já, heimur
hársins er loðinn. Og það virð-
ist sérstaklega auðvelt að
flækjast í honum, festast,
verða eins og allir kollegarnir.
Hvar eru gömlu bartskerarn-
ir í hvítu sloppunum sem
greiddu sér með þvottapoka
bleyttum í hárvatni og blístr-
uðu heilu hljómplöturnar með-
an þeir klipptu kúnnana, á milli
þess að sjússa sig á rakspíran-
um? Eða Burt Reynoldsarnir
með hnausþykka yfirvara-
skeggið og elegant bylgjuper-
manent-greiðslurnar sem hægt
var að fela páskaegg í. Klæddir
silkiskyrtum með gullkeðjur
flæktar í brjálæðislegum
bringuhárunum. Útlitið virkaði
á mann eins og kröftug yfirlýs-
ing: „Ég er trendí, lifi til að
dansa.“
Þannig töffari var Sossi, kall-
aður „Sossi sexý“ eða „Sossi á
Smart". Algjört megahönk sem
endaði allar setningar á „elsk-
an“, alltaf með gulan Sorbits,
og tónlistina úr „Shaft" í græj-
unum á stofunni. En svo þegar
tímarnir breyttust flutti hann
til „Friskó" og gerðist fyrst
dansari, síðan melludólgur.
Gömlu þvottapokameistar-
arnir þurftu að víkja fyrir tísk-
unni, svo og permanent-týp-
urnar eins og Sossi. Fyrr eða
síðar mun „gasalega" fólkið
líka drukkna í straumum tísk-
unnar. Hvað kemur þá?
Kannski rokkaðar hárgreiðslu-
stofur sem heita nöfnum eins
og „Eldingin" eða „Hártöff". Þá
verður loksins hægt að láta
klippa sig sítt og bera sig eins
og sannur karlmaður á stof-
unni. Þar biður maður ekki um
„greitt í píku“-klippingu heldur
„wildcut með grimmu pussu-
töddsi". Þetta er kannski eitt-
hvað fyrir Bubba. Hann hefur
að minnsta kosti nafnið. Bubbi
á Hártöff. Hmm.
Lucky People Center
er nýjasta útflutningsvaran frá
Svíþjóð. Þessi margverðlaun-
aða heimsósómasveit leikur
fyrir tvítuga og eldri í Tungl-
inu.
Gleðigjafarnir
André Bachmann og co. sjá
um að ná upp stemmningunni
í Súlnasal Hótels Sögu.
Ragnar Bjarnason
og Stefán Jökulsson
eru með því besta sem gerist í
dúettbransanum. Þeir verða á
Mímisbar Hótels Sögu.
Karma, Magnús og Jóhann,
Pétur Hjaltested og stórsýning
Björgvins Halldórssonar
allt sama kvöldið á Hótel ís-
landi, allur pakkinn = enginn
aðgangseyrir.
Jón Ingólfsson
er að segja má langlegusjúk-
lingur á Fógetanum.
Langbrók
aftur á Gauki á Stöng.
Hafrót
heldur uppi reglulega
skemmtilegu laugardagsstuði
á Kaffi Reykjavík.
Karaoke
er klassískt á Tveimur vinum.
Það stendur öllum opið eftir
miðnætti.
SUNNUDAGUR
Dúett Eddu Borg
sem hún og einhver minni spá-
maður í bransanum skipa. Þau
loka helginni á Jazzbarnum.
Bjarni Tryggva
tekur alla hina trúbadorana í
nefið á Fógetanum.
Sprakk
endar helgina með látum á
Gauki á Stöng.
SVEITABÖLL
Gjáin, Selfossi
Mikið fjör verður alla helgina á
Selfossi því á fimmtudags- og
föstudagskvöld spilar eðal-
bandið Jet Black Joe en á laug-
ardag Núnó og Milljónamær-
ingarnir. Hinir í milljónaband-
inu eru Ástvaldur Traustason,
Birgir Bragason, Jóel Pálsson
og Steingrímur höfuðpaur
Guðmundsson.
Hótel Stykkishólmur
Sixties bregða undir sig betri
fætinum og skemmta við ræt-
ur Snæfellsjökuls um helgina.
Ásakaffi, Grundarfirði
Árlegt réttarball Grundfirðinga
verður nú með rokksveitinni
KOL sem þar breiðir út djúp-
hugsaða texta sína.
Sjallinn, Akureyri
Hljómsveitin Bylting spilar fyr-
ir dansi á föstudagskvöld að
undangengnum skemmtiatrið-
um í þágu kvenna, enda sér-
stakt kvennakvöld á Akureyri
þar sem Heiðar Jónsson snyrt-
ir kemur fram, Alex strippari
dansar erótískan dans og
glæsipíur sýna föt. Á laugar-
dagskvöldið leikur svo í Sjall-
anum Stjórnin ásamt Siggu
Beinteins.
Góði dátinn, Akureyri
Á fimmtudags- og föstudags-
kvöld leikur hljómsveitin 66 en
Karakter á laugardagskvöld.