Alþýðublaðið - 12.02.1976, Qupperneq 8
Sjaldan hefur komiö upp jafn
mikið hitamál á islandi og það,
hvort Ölafi Jóhannessyni hafi
orðið á mistök í embæt+isfærslu
sinni í sambandi við rannsókn til-
tekinna sakamála. Enginn hefur
haldið því fram, að Ölafur hafi
vísvitandi verið að ganga á snið
við réttlætið eða að hann hafi
beitt valdi, sem honum hafi ekki
borið lögum samkvæmt. Hins
vegar hefur verið sagt, að hann
hafi ekki farið sem heppilegast
að gagnvart aðila, sem flokkur
hans, Framsóknarf lokkurinn,
hefur átt mikil viðskipti við.
Sýnist sitt hverjum um það eins
og flest annað, en þó munu þeir
vera fleiri, sem telja að Olafi
hafi ekki fyllilega tekizt að rétt-
læta gerðir sínar og jafnvei enn
fleiri, sem álita að ýmis atriði
málsins mættu og ættu að upplýs-
ast betur. Þá hafa menn hnotið
um það, hversu einkennilega og
hversu seint ýmsar mikilvægar
upplýsingar í málinu hafa komið
fram. I sambandi við greinar-
gerð ráðuneytisins um málið
vakti það t.d. furðu manna, að
ekki skyldi vera birt álit það, sem
Saksóknari ríkisins sendi dóms-
málaráðuneytinu þar sem að-
gerðir þess voru harkalega gagn-
rýndar og þeim mótmælt mjög
eindregið. Þá hafa atvikin í sam-
bandi við f jármálaieg tengsl for-
ráðamanna Klúbbsins annars
vegar og Framsóknarflokksins
og stofnanir hans hins vegar
einnig vakið mikla undrun. Ölaf-
ur Jóhannesson lýsti því fyrst
yfir á Alþingi, að um engin slík
tengsl væri að ræða. Nokkru
siðar bárust fregnir um, að þetta
væri ekki allskostar rétt og voru
ýmsir, komnir á stað til þess að
grafast fyrir um ákveðnar áður
óþekktar upplýsingar í málinu.
Þeim tókst að ná þeim, fá þær
staðfestar og hugðust birta þær á
föstudagskvöldi en þá bar svo
undarlega við, að 24 klst. áður
barst fjölmiðlum fréttatil-
kynning frá sfjórn Hús-
byggingarsjóðs Framsóknar-
félagann,! í Reykjavík þar sem
upplýsf var, að sjóðurinn hefði
lánað aðstandanda Klúbbsins 2,5
milljónir króna gegn því að sá-
hinn sami félli frá 5 millj. kr.
skuldakröfu á hendur sjóðnum.
Þegar málið var athugað nánar
kom í Ijós, að frá þessum fjár-
málalegu samskiptum var
gengið þremur sólarhringum
eftir, að lokun veitingastaðarins
hafði komið til framkvæmda,
einum sólarhring áður, en við-
Þetta þarf
Olafur að gera
komandi veitingamaður óskaði
eftir því, að dómsmálaráðherra,
sem jafnframt er formaður
Framsóknarf lokksins, hnekkti
lokunarúrskurði lögreglustjóra
og þremur sólarhringum áður, en
veitingastaðurinn var opnaður að
nýju ,,að fyrirlagi dómsmála-
ráðuneytisins". Þessar upp-
lýsingar voru í algeru ósamræmi
við yfirlýsingu Ólafs Jóhannes-
sonar á alþingi um, að engin f jár-
málaleg tengsl væru á milli
flokksins og veitingastaðarins og
i algerri andstöðu við ummæli
Kristins Finnbogasonar i viðtali
við Morgunblaðið þriðjudaginn 3.
febrúar s.l. Þá hafa einnig
ýmsar fleiri bæði meiri- og
minniháttar upplýsingar borizt,
sem varpað hafa Ijósi á málið —
og enn f leiri, sem hafa f lækt það.
Virðist stöðugt stef na meira í þá
áttina og hafa dagblöð m.a. haft
orð á því, að erf itt sé nú orðið að
fá upplýsingar um ýmis atriði
þessara mála hjá embættis-
mönnum.
Látið hefur verið að því liggja,
jafnvel fullyrt, að hér sé um að
ræða ódrengilegar og ástæðu-
lausar pólitískar árásir á dóms-
málaráðherra. Það er f jarstæða.
Þá hefur hann sjálfur viljað
jaf na þessu við gömul mál af því
tagi, þar sem ráðist var á Her-
mann heitinn Jónasson og hann
ásakaður fyrir að virða ekki
fuglafriðunarlög og þar sem
ráðist var með svigurmælum að
öðrum látnum heiðursmanni,
Jónasi frá Hriflu, og honum
borið það á brýn, að hann væri
ekki heill á sönsum. Það er enn
meiri fjarstæða.
Málið er það, að rannsókn á
ákveðnu sakamáli, sem fullyrt
hefur verið að tengist öðrum
meiri, hefur dregist úr hömlu Að
áliti margra mætra manna hafa
afskipti dómsmálaráðuneytisins,
þótt lögleg séu, ekki orðið til þess
að bæta þar úr skák og ekki nægi-
leg áherzla verið á það lögð af
hálfu ráðuneytisins að meðferð
málsins yrði lokið fljótt og vel. I
þriðja lagi kemur það svo til, að í
hlut á aðili, sem hefur átt tals-
verð fjárhagsleg samskipti við
flokk dómsmálaráðherrans —
m.a. gert við hann samkomulag
f járhagslegs eölis um að skipta 5
milljón króna skuldakröfu á
flokkinn fyrir 2,5 milljón króna
lán á sama tima og dómsmála-
ráðuneytið hafði afskipti af
rannsókn sakamáls þar sem
þessi aðili átti hlut að. Allt þetta
liggur fyrir og er þá furða þótt
ýmsar spurningar vakni og menn
telji ástæðu til, að viðkomandi
aðilar geri hreint fyrir sinum
dyrum. Krafa um slikt er jafn
eðlileg og sjálfsögð og það væri
óeðfilegt og fráleitt að þykjast
engin missmiði sjá hér á.
Það, sem gera þarf, er þetta:
1. í fyrsta lagi þarf að hraða
mjög rannsókn þeirra meintu
sakamála, sem dregist hafa
mjög úr hömlu, og hvorki má
spara fé né fyrirhöfn til þess að
Ijúka henni bæði fljótt og vel. Ef
það ekki gerist hefur íslenzkt
réttarfar orðið fyrir áfalli, sem
vafasamt er að það geti undir
risið.
2. í öðru lagi þarf að kanna
sérstaklega hvort einhver
frekari fjárhagsleg samskipti
hafi verið milli flokks dóms-
málaráöherrans annars vegar og
forráðamanna Klúbbsins hins
vegar, en þegar eru komin fram.
Alþýðublaðið telur, að það eigi
að vera verk dómsmálaráðherra
sjálfs að fyrirskipa slika með-
höndlun mála. Þetta hvort
tveggja á hann að gera tafar-
laust. Verði hann ekki til þess, þá
verða aðrir að láta málið til sín
taka vegna þeirrar einföldu
staðreyndar, að grunsemdir og
getgátur, sem verða til vegna
þess, að staðreyndir liggja ekki
Ijósar fyrir, skaða bæði dóms-
kerfið í landinu og dómsmála-
ráðherra sjálfan meira, en
undanbragðalaus, skjót og öflug
rannsókn myndi nokkru sinni
gera — hvað svo sem slík rann-
sókn kynni að leiða í Ijós.
Kristján og Biarki standa fast á sinu
BflDIR ERU TIL f
DÓMSRANNSÓKN
Hvor hefur rétt fyrir sér? að leggja rannsókn tiltekins
Kristján Pétursson deildar- spiramáls, sem tengdist Geir-
stjóri á Keflavikurflugvelli, finnsmálinu svonefnda, sem
eða Bjarki Eliasson yfirlög- þeir fyrrnefndu voru að
regluþjónn i Reykjavik? rannsaka, i hendur
Er það rétt, sem Kristján rannsóknarlögreglunnar
spurningar brenna á vörum
almennings þessa dagana. En
hvernig verður komizt að hinu
sanna i málinu? Verður kraf-
ist dómsrannsóknar? Alþýðu-
blaðið leitaði álits hlutaðeig-
andi málsaðila, þ.e. Bjarka
og Kristjáns á mögulegri
dómsrannsókn vegna þessa
máls. Svör þeirra fara hér á
eftir:
Bjarki Eliasson yfirlög-
regluþjónn: ,,Ég er tilbúinn til
þess að standa frammi fyrir
dómsrannsókn. Ég er alveg
þremenninga. Hins vegar hafi yj þ>að er ekkert sem ég hef
hann komið að máli við þá að fela Ég hef einmitt allt
vegna annars máls og þar gæti mhhð h borðinu hjá mér núna,
misskilningur Kristjáns og það er elckert i þvi óljóst,
mögulega legið. _ hvað mér viðvikur.”
Þannig standa málin i dag, Kristján Pétursson deildar-
segir, að Rjarki hafi sam- Reykjavik? Eða er frásögn orð ergegn orði. Hverjum á að stl'óri. ' Eg mæli með dóms
kvæmt fyrirmælum Birgis Bjarka rétt, að Kristján-sé að trúa, þegar tveir grandvarir rannsókn varðandi þessi mál.
Möllers ráðuneytisstjóra i rugla tveimur óskyldum mál- og heiðarlegir einstaklingar Eins og ég hef áður jýSt yfir,
dómsmálaráðuneytinu, skipað um saman? Hann (Bjarki) eiga i hlut. Eru þessar mót- þá er ég tilbúinn til þess að
Kristjáni Péturssyni, Hauki hafi aldrei flutt nein slik skila- sagnir byggðar á misskilningi, staðfesta fyrri framburð minn
Guðmundssyni og Rúnari boð frá Baldri Möller, varð- eða fer annar aðilinn visvit- fyrir dómi, ef til þess kemur.”
Sigurðssyni lögreglumönnum andi þetta smyglmál til þeirra andi með ósannindi? Þessar _ GAS.
Stórslas-
aðist
um borð
í togara
Ungur háseti, á togaranum
Aðalvik frá Keflavik, slasaðist
illa. er hann lenti með báða fæt-
ur i spili togarans s.l. föstudag.
Skipið var þá statt út af Vest-
fjörðum og var þegar haldið inn
til Patreksfjarðar. Þaðan var
maðurinn fluttur með sjúkra-
flugvél til Reykjavikur og íiggur
nú á gjörgæzíudeild Borgarspií-
alans.
Aðalvik kom til hafnar i gær
og voru þá haldin sjópróf vegna
þessa slyss. 1 samtali við Al-
þýðublaðið sagði Pétur Jó-
hannsson, sem var skipstjóri i
þessum túr, að maðurinn hefði
festst i togi með þeim afleiðing-
um að hann dróst inn á
tromluna. Verið var að taka
trollið inn og lenti hásetinn með
báða fætur i spilinu og fór með
þvi tvo eða þrjá hringi.
Þegar óhappið átti sér stað,
var togarinn staddur um 60 mil-
ur frá landi og var tekin stefna á
Patreksfjörð. Þangað var um
sjö tima sigling og hinum slas-
aða gefin deyfilyf á meðan. Frá
Patreksfirði flutti sjúkraflugvél
manninn til Reykjavikur eins og
fyrr segir. Pétur sagði, að blið-
skaparveður hefði verið, þegar
slysið varð og það orðið fyrir
einskæra óheppni.
Hjá Borgarspitalanum fékk
blaðið þær upplýsingar að liðan
mannsins væri sæmileg. Hann
hefði fótbrotnað illa á báðum
fótum og hægri fóturinn væri
nokkuð tættur að auki. Mun
hann þurfa að liggja enn um
hrið á gjörgæzludeild.
—SG.
Freyjur
sitt
hvoru
megin
múrsins
Þótt Þýzkaiand sé að stjórn-
arfari tvö riki — þá eiga stjórn-
endur beggja landshluta það
sameiginiegt, að þegar þeir
vilja leggja áherziu á að aug-
lýsa vörusýningar sin megin
landamæranna gripa þeir til
snoturra stúlkna, svona eins og
til að stöðva annars upptekin
augu væntanlegra viðskipta-
vina, rétt andartak, — meðan
boðskapnum um efni sýningar-
innar er komið til skila. Stúlkan,
á efri myndinni, er austan tjalds
og er sýningarfreyja á Leip-
zig-kaupstefnunni, sem islenzk
fyrirtæki hafa iðulega tekið þátt
i — en hin, á neðri myndinni, er
stalla hennar vestan múrsins.
Sú var freyja á bilasýningu i
Frankfurt.
Óbjörgulegt útlit um sölu
loðnumjöls og lýsis
„Nei, það er ekki
björgulegt útlitið á sölu
loðnumjöls og lýsis”,
sagði Jónas Jónsson,
framkvæmdastjóri
verksmiðjunnar á
Kletti, i samtali við
blaðið.
,,Um mjölverð er það að segja,
að það hefur verið frá 4,15 doll-
arar til 4,60 dollarar á protein-
einingu. Alltaf reytist þó eitthvað
út. Ég hygg, aðnú sé búið aðselja
um 23 þúsund tonn eins og er, en
þetta er i smáslöttum, og það
viröist ekki vera nein hreyfing
eða áhugi á stórkaupum.
Stærsti slattinn hefur verið
seldur til Póllands, eða um 7000
tonn á 4,50 dollara proteineining-
in. Það er reyndar hærra verð en
þeir vildu hlusta á hér heima,
þegar sendinefndin kom til að
semja. Krafa þeirra er að fá
mjölið afskipað i þessum mánuði,
og kann það að valda einhverjum
óþægindum.
Mér er ekki kunnugt um neina
verulega sölu á lýsi „hélt Jónas
Jónsson framkvæmdastjóri
áfram.” 1 fyrra var lýsisverð um
og yfir 500 dollarar tonnið, en nú
mættum við vist teljast góðir að
geta selt lýsistonnið á 300-320 doll-
ara. Af þvi leiðir, að við höldum
að okkur höndum i von um betri
tima, þó máske til einskis komi.
Það kann að vera, að búið sé að
mingra út svona 500 tonnum.
Aðspurður um framhaldið af
loðnuvinnslu, sagði fram-
kvæmdastjórinn þetta helzt: ,,Ég
hefi, satt að segja, miklar
áhyggjur af þvi, þegar fer að liða
á og loðnan horast, t.d. þegar
kemur fram i marz. Mér sýnist,
að verðið svari ekki til meira en
vinnslukostnaðar á afurðunum.
Þá er hráefnisverðið eftir. Mér og
okkur er lika ljóst, að útgerð og
áhöfnum veitir ekki af sinu. En
hvernig þetta bil verður brúað,er
mér ráðgáta,” sagði Jónas Jóns-
son framkvæmdastjóri að lokum.
Beint tap en
ekki sjóðvöntun
1 frétt á forsiðu blaðsins i gær stóð
þessi málsgrein m.a.
,,í ofanálag hefur svo
heyrzt, að eigendur Visis telji
Svein eiga með einhverjum
hætti eftir að gera grein fyrir
þrem til fimin milljónum
króna sem vanti i sjóði blaös-
* ins.”
Þarna var rangt með fariö. Sú
upphæð, sem nefnd er, hefur
heyrzt sem áætlað tap Blaða-
prents af viðskiptum við Dag-
blaðið. Þetta leiðréttist hér með.
...Og Markús
leiðréttir...
1 frétt, sem birtist i Alþýðublað-
inu þann 3. febrúar siðastliðinn,
slæddist inn meinleg villa, i við-
tali við Markús Þorgeirsson fyrr-
um skipverja á Mánafossi. 1 við-
talinu er haft eftir Markúsi, að
spiramagnið, sem um var að
ræða i tilteknu smyglmáli, hafi
verið 900 litrar. Þessi tala er
röng. Hið rétta er, að magnið var
300 litrar.
Þetta leiðréttist hér með, og eru
hlutaðeigandi aðilar beðnir vel-
virðingar á þessum mistökum.
IM!Bf!KI/íTHIil1
Sigfinnur ráðinn að boði æðstu valdamanna Sjálfstæðisflokks
SJ.: ,,Já, já, ég held það. Það
yrði að minu mati heppilegt, að
allir bæjarfulltrúarnir gætu stað-
ið saman um slikan mann. Það er
alltaf nóg til að þrasa um fyrir
þvi, þó að hann lendi ekki inn i
deilunum.”
Blm.: „Var um einhverjar póli-
tiskár ofsóknir að ræða gegn Sig-
finni, eins og hann hefur sjálfur
haldið fram?”
SJ.: „Nei, alls ekki. Það er alv-
eg klárt að Sigfinnur féll á eigin
gjörðum en ekki annarra.”
Blm.: „Sigfinnur heldur þvi
fram að fjármálaleg óreiða hafi
verið á málunum hjá fyrrverandi
meirihluta. Hvert er þitt álit á
þvi?”
SJ.: „Við eigum ýmislegt óupp-
gert við fyrrverandi meirihluta.
T.d. eru allir reikningar bæjarins,
allt frá þvi 1968 ósamþykktir enn.
Sigfinnur getur þó ekki afsakað
gjörðir sinar með þvi. Einnig.ber '
að hafa i huga, að mikiil munur er
á þvi hvort um er að ræða al-
menna óreiðu eða fjármálabrot.
Reikningarnir voru ekkj sam-
þykktir vegna þess,- að' kjörnir.
endurskoðendur leystu ekki sín
verk, sem nú skipum mejrihlutá,
og reyndar bæjarstjómarinnar. i
heild, að fá alla fyrrvérandi
reikninga samþykkta og 'það
verður gert. Þvi miður hefur.allt
of mikið af timanum hjá okkur
farið iallskonar vesen i sambandi
■ við Sigfinn, frá þvi hann kom
■ hingað,að leysa úr og berjast við
bans'einkámál.” __
.Blm: „Þú varst einn þeirra,
. sem fékkst þvi ráðið, að Magnúsi
- Mágnússyni, frv. bæjarstjóra var
. 'sagt upp og Sigfinnur var ráðinn.
Það hefur þó heyrzt, að sumir
þéirra, s.s. Sigurgeir Kristjáns-
son, forseti bæjarstjórnar, hafi
ekki verið allskostar ánægðir
með, að ráða Sigfinn.”
SJ.: „Jú, það er rétt, en það
sem réði þvi að ég greiddi honum
atkvæði voru meðmæli frá æðstu
mönnum Sjálfstæðisflokksins.”
Blm.: „Hvenær fór ykkur fyrst
að gruna Sigfinn um græsku?”
SJ.: „Strax i haust sl. fer að
bera á þessu þegar gagnrýni kom
fram hjá núverandi minnihluta
um reikninga vegna dvalarkostn-
aðar og ýmissa verka, sem hann
framkvæmdi i óleyfi. Þá fór, i það
minnsta mér, ekki að litast á blik-
una. Ég vildi þá strax stokka upp
málin, en lenti hins végar'i minni-
hluta með þá skoðun innan
llokksins. Sumir af samstarfs-
mönnum minum vildu ekki gera
eins mikið úr þessu og efni stóðu
til.”
Blm.: „Hefur ástandið þá eitt-
hvað batnað hjá ykkur við stjórn
bæjárins?”
SJ.: „Þvi er ekki að neita, að
það var enginn starfsgrundvöllur
orðinn i bæjarstjórninni til að
koma góðum málum áleiðis og ég
er sannfærður um, að það verður
þegar breyting á og er reyndar
þegar orðin.”
BJ.
l’taff&IMK llf
PLASTPOKAVERKSMIOJA
Sfmar 82639-82455
Grensásvegi 7.
Bo* 4064 — Roykjevfk
Pípulagnir
Tökum að okkur alla
pipulagningavinnu
löggildur
pipulagningameistari
74717 og 82209.
Hafnarfjaröar Apatek
Afgreiðsluttmi:
Virka daga kl. 9-18.30
Laugardaga kl. 10-12.30.
Helgidaga kl. 11-12
Eftir lokun:
Upplýsingasimi 51600.
bausí pla&s
tfRSSBgljffll Innrettmgar
VIV husbyggingar
BREIÐÁS
Vesturgötu 3 simi 25144
KOSTABOÐ
á kjarapöllum
KJÖT & FISKUR
B reiðholti
Sillli 74200
74201
DUDfl
Sfðumiila 23
/íffli 04900
Heimiliseldavélar,
6 litir - 5 gerðir
Yfir 40 ára reynsla
Rafha við Óðinstorg
Símar 25322 og 10322