Alþýðublaðið - 23.03.1976, Side 3
FRÉTTIR 3
bla^fð ‘ Þriðjudagur 23. marz 1976
tCZUN SKODAR
ÞÝZKA HRAfiBÁTA
Ólafur óskar
eftir svari fró
Washington
þegar í
— í dag var ritað bréf til ut-
anrikisráðuneytisins þar sem
það var beðið um að grennsl-
ast fyrir um það hjá yfirvöld-
um í Bandarikjunum hvort
möguleiki væri á að fá þessa
hraðbáta sem við höfum beðið
um. Ef svar berst ekki strax
iit ég svo á að það þýði synjun
á okkar málaleitan.
Á þessa leið mæltist Ólafi
Jóhannessyni dómsmálaráð-
herra þegar Aiþýðublaðið
hafði samband við hann sið-
degis i gær. Málefni Land-
helgisgæziunnar er i brenni-
dcpli um þessar mundir. Eig-
inkonur varðskipsmanna hafa
krafið dómsmálaráðherra
svara oim hvort skiptiáhafnir
verði á varðskipunum fram-
vegis eða ekki.
Alþýðubiaðið itrekaði þessa
ispurningu við ráðherrann i
stað
gær. ölafur sagði að þetta mál
væri i athugun. Hann var
spurður hversu lengi þcssi at-
hugun ætti að standa. Háð-
herra sagðist ekki geta sagt
um það, en þetta mál yrði
leyst i samráði við Landhelg-
isgæzluna.
Það kom fram i viðtali við
dómsmálaráðherra, að ekki
væri möguleiki á að öll áhöfn
varðskips gæti farið i fri i einu
heldur yrðu menn i vissum
sröðum að fara út með skipið
með nýrri ahöfn. Þá gat ráð-
herran þess einnig, aðspurð-
ur, að frumvarp til eflingar
Landhelgisgæzlunni kæmi
fram i þessari viku. Þrátt fyr-
ir fjárhagserfiðleika Gæzlunn-
ar hefur hún ekki safnað van-
skilaskuldum, samkvæmt þvi
sem ólafur Jóhannesson upp-
lýsti I samtali við blaðið.-SG.
i morgun fóru fiugleiðis utan
þeir Þröstur Sigtryggsson og
Gunnar Ólafsson, báðir starf-
andi skipherrar hjá Landhelgis-
gæzlunni. Leið þeirra lá til V-
Þýzkalands og erindið er að
skoða hraðbáta sem fyrirtæki
þar i landi hefur boðið Land-
heigisgæzlunni á leigu. Þessi för
var ákveðin i mjög miklum flýti
í gær og það var ckki fyrr en eft-
ir hádegi sem ljóst var að úr
ferðinni yrði.
Hraðbátar þeir sem hér um
ræðir ganga 28 milur og eru að
sögn kunnugra vel til þess falln-
ir að gegna störfum fyrir Land-
helgisgæzluna. Ekki hefur enn
verið leitað til stjórnvalda i V-
Þýzkalandi um leyfi til þess að
leigja þessa báta hingað til
lands. En ef til þess kemur að
þeir verði leigðir þá verða þeir
óvopnaðir og opinberlega munu
þeir ekki verða á vegum þar-
lendra stjórnvalda á nokkurn
hátt.
Bókun sex.
í næsta mánuði rennur út sá
frestur sem Þjóðverjar fengu
með fiskveiðisamningum til að
láta bókun sex við Efnahags-
bandalagið koma til fram-
kvæmda. Takist ekki samning-
ar við Breta á næstu vikum falla
allar undanþágur Þjóðverja Ur
gildi og skip þeirra verða rekin
Ut fyrir 200 milna mörkin. Með
þessar staðreyndir i huga verð-
ur að vega það og meta hvað
Þjóðverjum gengur til að láta
okkur i té hraðbáta til eflingar
Gæzlunni, ef að verður. Samn-
'ingarnir við Þjóðverja voru
harðlega gagnrýndir af
mörgum á sinum tima.
Duga bátarnir?
Eftir skoðunarferð skipherr-
anna til Þýzkalands fæst vænt-
anlega Ur þvi skorið hvort um-
ræddir bátar geta komið að not-
um hér eða ekki. Sem fyrr segir
er ganghraði þeirra 28 sjómilur,
en brezku freigáturnar komast
allt upp i 30 milna hraða. Hins
vegar er á það að lita, að með
þessum bátum verður hægt að
valsa inn um togaraflotann
brezka og gera þar mikinn usla
án þess að freigáturnar geti að
gert, þvi að undir þessum
kringumstæðum skiptir lipur-
leikinn öllu máli. —SG.
Er loks búið að gera við Úðin?
NU gera menn sér vonir um að
varðskipið Óðinn geti brátt komið
að fullum notum við gæzlustörf á
miðunum. Skipið hefur verið eins
og vængbrotinn fugl allt frá þvi að
það kom Ur 16 ára flokkunarviö-
gerð og gagngerum endurbótum i
byrjun desember. Ekki hefur
verið hægt að nýta vélarorku
skipsins nema að hálfu leyti og
það þvi ekki verið til stórræða i
átökum við Breta.
Þetta hefur orðið til þess að
mun meira hefur mætt á Þór, sem
er minnsta og hæggengasta varð-
skipið af þeim sem unnt hefur
verið að nota gegn Bretum.
Óspart hefur verið látið kenna
aflsmunar af hálfu freigátanna
þegar Þór á i hlut og það hlýtur að
vera spurning hvort það sé rétt-
lætanlegt að beita skipinu svona
mikið eins og það er Utleikið. Þór
getur ekki fyllt skarð Óðins.
Hvers vegna
Hvers vegna hefur ekki verið
hægt að nota óðin við gæzlu-
störf? Margir hafa spurt
þessarar spurningar. Alþýðu-
blaðið hefur leitað eftir upp-
lýsingum hjá Landhelgisgæzlunni
og það oftar en einu sinni.
Blaðinu hefur verið tjáð, að i ljós
hafi komið slit á sérstökum bolta-
festingum i vélarrúmi, hér sé um
að ræða 16 ára gamlar vélar og
eins og forstjóri Gæzlunnar
sagði eitt sinn við undirritaðan:
„Það hefur alltaf eitthvaö nýtt
verið að koma i ljós.”
Hér gæti þvi verið um fullkom-
lega eðlilegar orsakir að ræða, ef
ekki kæmi til nýafstaðin
flokkunarviðgerð.
„Athugaðar og endurbættar”
Varðskipið Óðinn fór til endur-
byggingar og flokkunarviðgerðar
Ut til Danmerkur þann 30. jUli i
fyrra. Skipið kom aftur heim
þann 6. desember.
1 frétt frá Landhelgisgæzlunni
þann dag segir m.a. svo: „Aðal-
vélar skipsins hafa verið
athugaðar og endurbættar eftir
þörfum og sják'irkni þeirra
aukin.” Auk þess er t.d. tekið
fram, að fjarstýring á aðalvélum
sé nU beint Ur brU og að vélarrUmi
hafi verið skipt i tvennt með
vatnsþéttuskiirUmi. Þáereinnig
skýrt frá margháttuðum endur-
bótum á skipinu og að öllu
samanlýgðu ætti Óðinn nú að vera
að flestu eða öllu leyti sambæri-
legt skip og Ægir og Týr.
Heilöarkostnaður við þessar fram
kvæmdir var Um 140 milljónir
króna.
Viðgerð lokið?
A fjórða mánuð hefur verið
reynt að koma vélum Óöins i lag.
Hann hefur sézt hökta með
ströndum fram á annarri vélinni
og sjómenn hafa haft á orði, að
skipið væri sent á sjó Ut til þess
aðeins að það sæist ekki við
bryggju. En vafalaust hafa verið
gerðar ýmsar prófanir til að
reyna að komast fyrir um orsakir
bilananna.
Það kemur i ljós á næstu dögum
hvortnUséalltkomiðilag. En þó
reyndin verði sU, hlýtur Land-
helgisgæzlan að verða að gefa
haldbæra skýringu á hvað farið
hefur Urskeiðis. Voru aðalvélar
skipsins athugaðar og endur-
bættar eða ekki? —SG
Tékkamál fyrirtækja
ekki fyrr jafn góð
— kæruleysi orðið algengasta orsök gúmmítékka
Að kvöldi hins 19. marz fói
fram skyndikönnun innstæðu-
lausra tékka á vegum Seðla-
banka tsiands. Könnunin náði
m.a. til innlánsstofnana i
Reykjavik, Kópavogi, Hafnar-
firði, Keflavik og Selfossi.
t könnuninni komu fram alls
842 tékkar án fullnægjandi inn-
stæðu, að fjárhæð samtals kr.
12,2 millj., sem reyndist vera
0,37% af veltu föstudagsins, sem
nam 3.299 millj. kr. Til saman-
burðar ber þess að geta, að við
könnun hinn 12. desember s.l.
komu fram 1328 tékkar að fjár-
hæð 35,8 millj. kr„ sem ónóg
innstæða var fyrir og námu þeir
1.03% af veltu dagsins.
Reiknistofa bankanna vinnur
nú sem næst alla tékka sem ber-
ast bönkum á Reykjavikur-
svæðinu og næsta nágrenni, og
er fjöldi tékkareikninga, sem
Reiknistofan annast vinnslu á
nU um 82 þUs. Voru hreyfingar
hjá henni aðfararnótt s.l. laug-
ardags nálæg 80.000, þar af
tékkar tæplega 60.000 talsins, og
nam heildarfjárhæð Utborgana
6.544 millj. kr.
HeildarUtkoma þessarar
skyndikönnunar er sU bezta
miðað við undanfarin 10 ár. Hef-
ur greinilega gætt meira að-
halds um sinn i meðferð tékka-
mála gagnvart fyrirtækjum.
Hitt er verra hve tið er misnotk-
un eða kæruleysi sem sýnd er i
notkun persónulegra tékka-
reikninga. Kemur þetta fram i
þvi, að yfir 640 tékkar, eða 78%.
eruaðfjárhæökr. 10 þúsund eða
lægri fjárhæðar.