Alþýðublaðið - 23.03.1976, Blaðsíða 4
4 VmHORF
Þriðjudagur 23. marz 1976 {JlaSfd1'
GREINARGERD ARKITEKTAFÉLAGSINS UM ÍTAKSMÁLIÐ:
fTAK ER ÖÞARFUR MILLILIDUR OC
f EDLI SfNU VERZLUHARFVRIRTÆKI
Hér fer á eftir greinargerð frá
stjórn Arkitektafélags tslands
varðandi samninga um hönnun
Seljaskóla.
Greinargerðin er birt óstytt,
en allar millifyrirsagnir erú á
ábyrgð blaðsins, svo og fyrir-
sögn:
t framhaldi af álýktun félags-
fundar Arkitektafélags tslands
frá 9. marz s.l. sem send var
dagblöðum borgarinnar til
birtingar, þykir rétt að gera
nokkuð nánari grein fyrir af-
stöðu félagsins og þeim forsend-
um, sem fyrir þessari samþykkt
eru.
Fyrirtæki að nafni
ítak h.f.
hafa nú um hálfsannars árs
skeið staðið i samningum við
fyrirtæki að nafni ttak h.f., um
hönnun Seljaskóla i Breiðholts-
hverfi og jafnframt hefur fyrir-
tækinu verið falin frumvinna
verksins án þess að um það væri
gerður sérstakur samningur.
Fyrirtækið ttak h.f., er
stofnað i nóvembermánuði 1974,
að þvi er virðist til þess að taka
að sér þetta verkefni fyrir
Reykjavikurborg. Enginn stofn-
enda þess eða fyrirsvarsmanna
hafði þá menntun eða réttindi á
nokkru sviði, sem skilyrðislaust
er krafizt hér á landi af þeim
aðilum, sem standa fyrir hönn-
un mannvirkja, stórra sem
smárra.
Stofnendur fyrirtækisins eru 5
talsins :
Jens Óli Eysteinsson, garð-
prófastur
Már Gunnarsson, lögfræðingur
Gestur Þorgeirsson, læknir
Tómas Asgeir Einarsson, tann-
læknanemi
Elisabet Benediktsdóttir, frú.
Samanlagt hlutafé er 200.000.-
kr.
Ábyrgð gagnvart
yfirvöldum og
byggjanda
Starfsemi fyrirtækisins er
með öllu óhugsandi án þess að
það hafi i þjónustu sinni fag-
menntaða starfsmenn, sem
hver á sinu sviði bera persónu-
lega fagábyrgð gagnvart bygg-
ingaryfirvöldum og byggjanda.
Um þá ábyrgð er ekki hægt að
stofna hlutafélag „áhuga-
manna” en i byggingarsam-
þykkt Reykjavikur segir m.a.
(11. gr.): ,,Sá, sem uppdrátt
gerir, skal undirrita hann með
eigin hendi,og ber hann ábyrgð
á, að uppdrátturinn sé réttur og
gerður skv. gildandi lögum og
reglum og brjóti ekki i bág við
rétt annarra.” Mátti þvi frá
upphafi vera ljóst, að hluta-
félagið Itak var að þessu máli
alls óþarfur milliliður, sem ekki
gat boðið þær ábyrgðir, sem lög
kveða á um að fylgja skuli ráð-
gjafastarfsemi á þessu sviði.
ítak óþarfur milliliður.
Stjórn A.l. og ýmsir félagar
hafa haldið uppi fyrirspurnum
um þetta mál hjá réttum yfir-
völdum nú um nokkurt skeið.
Engin rök hafa þar komið fram,
sem gætu gefið svo mikið sem
grun um að þessi nýstárlegu
vinnubrögð opnuðu nokkra leifj,
sem ekki væri jafn vel eða betur
fær með milliliðalausu sam-
komulagi aðila, né að Reykja-
vikurbcrg hafi nokkurn sýni-
legan hagnað af þessu ráðslagi.
Helzt hefur mátt skilja, að
með samningi við fyrirtækið
vilji borgin tryggja sig gegn
sviksemi og/eða vanhæfni
hönnuða svo og fyrirhugað sé að
bjóða byggingu skólans út mið-
að við tvær mismunandi
byggingaraðferðir.
Um fyrra atriðið
Um fyrra atriðið er það að
segja, að eins og bent hefur ver-
ið á hér að framan, þá
eru ábyrgðir hönnuða persónu-
legar, og þvi mun borgin þurfa
að semja við þá hvern og einn
um þeirra þátt i verkefninu,
verkframlag þeirra og
hönnunartima, aldeilis án tillits
til samningagerðar við Itak h.f.
Hugsanleg ábyrgðartrygging
sem tryggja ætti borgina fjár-
hagslega gegn öllum i bygging
um, sem stafa af rangri hönnun,
hlýtur einnig, eðli málsins sam-
kvæmt, að bindast viðurkenn-
ingu tryggingarsala á reynslu
þess starfsmanns, sem áritar
teikningar og ber ábyrgð á
þeim.
Um síðara atriðið
Um siðara atriðið, útboð
miðað við mismunandi bygg-
ingaraðferðir, ætti einnig að
vera óþarfi að fjölyrða.
Það hefur allt til þessa dags
þótt sjálfsagt að engan millilið
þyrfti sérstaklega i slikum til-
vikum, og svo mun vera enn. A
einum stað segir i röksemdar-
færslunni fyrir ágæti Itaks-
samninganna, að „ýmsir hafi
haldið þvi fram, að hús byggð úr
einingum væri 20—30%
ódýrari”.
Er sannarlega ekki nema
eðlilegt að sú hugmynd freisti
þeirra sem falið er að gera mikil
verk af litlum efnum.
En sá er hængur á, að „ýms-
ir” eru i þessu dæmi sölumenn
Itaks h.f., og tölurnar fengnar
úr kostnaðarágizkun, sem þeir
hafa lagt fram án nokkurra
skuldbindinga, áður en raun-
veruleg hönnun bygginganna er
hafin og jafnvel áður en fyrir
liggur hvar þær eiga að standa.
Enda mun það svo, að þeir
sérfræðingar borgarinnar, sem
um byggingarmál fjalla, hafa
ekki tekið þessa áætlun ýkja
hátiðlega.
Reykjavíkurborg
starfrækir
byggingardeild.
En eins og kunnugt er starf-
rækir Reykjavikurborg
byggingardeild, sem hefir eftir-
lit með framkvæmd verk-
samninga og framkvæmdum al-
mennt, sömuleiðis hefur deildin
eftirlit með undirbúningi út-
boða.
Við skrifstofu fræðslustjóra
hefur nú einnig verið ráðinn
reyndur verkfræðingur til að
annast verksamninga við hönn-
uði og til að undirbúa og sam-
ræma hönnun skólabygginga.
Sé hinsvegarfyrirtækinu ttaki
h.f., ætlað einhverskonar eftir-
litshlutverk með hönnunar-
starfinu fyrir hönd byggjanda,
eins og einnig hefir flogið fyrir,
þá hljótum við að benda á að við
blasir öllu háskalegri mynd.
Þarf raunar ekki auðugt
imyndunarafl til að sjá fyrir
hvert stefnir, ef farin er sú
braut að fela fjármálafyrirtækj-
um eftirlit með eigin gerðum
fyrir hönd opinberra aðila.
Gengiö á svig
við meginsjónarmið
Viðvaranir og athugasemdir
A.l. beinast fyrst og fremst
gegn þvi, að teknir skuli upp
samningar um hönnum bygg-
inga á vegum opinberra aðila
við fyrirtæki á borð við ttak h.f.,
sem ekki eru undir stjórn né i
eigu fagmanna á þvi sviði. Með
þessu er gengið á svig við það
meginsjónarmið, sem hingað til
hefur verið haft i heiðri þegar til
samstarfs er stofnað rniiii
byggjanda og hönnuðar, að
hönnuður tekur að sér persónu-
lega ráðgjöf á sinu fagsviði, og
að ráðgjafastörfin byggist á
gagnkvæmu trúnaðartrausti
milli ráðgjafa og þess aðila,
sem ráðgjafastörf eru unnin
fyrir. Með þvi að troða þá braut,
sem nú virðist mörkuð, setur
byggjandinn það milliliðum eða
tillviljunum á vald hvaða ein-
staklingum er falin forsjá hinn-
ar raunverulegu fagvinnu, eða
jafnvel hvort nokkur hæfur
hönnuður fylgir verki frá upp-
hafi til loka.
Séð undir þessu horni er milli-
liðurinn ekki aðeins nauðsynja-
laus byrði, heldur báðum aðil-
um, byggjanda og hönnuði til
beinnar óþurftar.
Hluthöfum
skyndilega fjölgað
Nú hefur það gerzt siðan A.t.
tók þetta mál til opinberrar um-
ræðu, að hluthöfum fyrirtækis-
ins sem um er rætt hefur
skyndilega fjölgað um helming.
1 tilkynningu framkvæmdar-
stjórans fylgir kynning og af-
rekaskrá hinna nýtilkomnu,
ásamt sérstakri yfirlýsingu (að
gefnu tilefni) um að hans fyrir-
tæki sé sko arkitekta-og verk-
fræðingafyrirtæki.
Nú dylst að sjálfsögðu engum
hvaða leik er verið að leika né
að einn arkitekt og tveir verk-
fræðingar eru orðnir aðilar að
fyrirtækinu, a.m.k. að nafninu
til. Hitt dylst heldur engum að
það Itak, sem Reykjavikurborg
hóf samninga við fyrir einu og
hálfu ári var ekki arkitekta-og
verkfræðifyrirtæki, þannig að
„Nýtt Itak” er greinilega til
orðið. Er nú enn eftir að sjá
hvort borgaryfirvöld telja sig
geta hlaupið svo eftir hverful-
leik heimsins og flutt skuld-
bindingar sinar átakalaust frá
Itaki til Itaks.
Verzlunarfyrirtæki
i eöli sínu.
Og einmitt þessi auðvelda
metamorfósa ttakanna skýrir i
myndum það, sem við höfum
reynt að gera skiijanlegt með
orðum: Hvað sem liður yfir-
lýsingum og nafnagiftum, þá
starfa svona itök ekki á sama
hátt og arkitekta- og verkfræði-
fyrirtæki né lúta þau sömu lög-
málum. Þau eru verzlunarfyrir-
tæki i eðli sinu og hlita fyrst og
siðast lögum kaupmennsku.
1 dag hentar þeim að selja
„arkitektúr”, á morgun verða
það kannski fiskinet, kannski is-
skapar, allt eftir þvi hvar fé
hluthafanna vinnur þeim bezt.
Og þegar svo er komið, að þeir
sem itökin eiga, telja ekki
lengurhagkvæmt að verzla með
hönnun, þá spyr enginn um það
hverjir séu hagsmunir Reykja
vikurborgar eða annarra við-
semjenda. Það er nefnilega svo
skelfing auðvelt að stofna til
nýrra itaka eða breyta gömlum,
ef skuldbindingar fara að verða
til byrði.
Fræðsluyfirvöld Reykjavikur
Vönduð karlmannaföt nýkomin
tækifæriskaup, kr. 10.975.00. Flauelsbux-
urnar eftirspurðu nýkomnar, verð kr.
2060.00. Glæsilegar skiðaúlpur nýkomnar
kr. 5000.00. Terylenebútar kr. 670.00 i bux-
urnar (1.30 m). Sokkar kr. 130.00, tery-
lenebuxur og fleira ódýrt. Opið föstudag
til kl. 7 og laugardag til kl. 12.
Andrés, Skólavörðustíg 22
Aðalfundur
Kaupfélags Hafnfirðinga verður haldinn
þriðjudaginn 30. marz n.k. kl. 20.30, i fund-
arsal félagsins, Strandgötu 28.
Dagskrá:
Samkvæmt samþykktum félagsins.
Stjórn Kaupfélags Hafnfirðinga.
Akranes
Hafnarvörður
Starf hafnarvarðar við Akraneshöfn er
laust til umsóknar.
Laun og kjör samkvæmt samningi
S.T.A.K. og Akraneskaupstaðar.
Umsóknum skal skilað til undirritaðs fyrir
5. april næstkomandi.
Hafnarstjórinn á Akranesi.
sssr.,.*.«