Alþýðublaðið - 23.03.1976, Side 5
blaöfö* Þriðjudagur 23. marz 1976
„Og nú eru
þeir líka
að taka
af okkur
dagblöðin,
blessaðir”
Rætt við þrjá vistmenn á Hrafnistu
„Ef ég hef ekkert annað aö gera. þá tek ég skorpu i frimerkjasafninu minu, en ég er búinn aö safna fri-
merkjum i mörg ár”. óskar Árnason i herbergi sinu.
Félagsleg aðstaöa aldraöra hefur tekiö mjög mikium breytingum
á siðustu áratugum. Þaö er ekki ýkja langt sföan afar og ömmur,
foreldrar og börn bjuggu öil saman á einu heimili. Haföi gamla fólk-
iö þá gjarnan þaö starf með höndum aö gæta bús og barna, og gera
eitt og annað sem til féli, meöan foreldrarnir unnu úti.
Aö visu þekkist þetta fyrirkomulag sumsstaöar ennþá, og þá eink-
um til sveita, en þeim heimilum fer sifeiit fækkandi þar sem stór-
fjölskyldan býr saman I sátt og samlyndi og gamla fólkiö getur nýtt
starfsorku sina til fulls.
Nú iiggur leiö þeirra, sem orönir eru of aldraöir eða lasburða til
að teljast gjaldgengir á hinum almenna vinnumarkaði, á elliheimili
og aörar svipaðar stofnanir sem finna má i okkar ágæta nútima-
þjóöféiagi.
Viö brugðum okkur i stutta heimsókn upp á Hrafnistu og ræddum
þar viö nokkra vistmenn um lif og starf þeirra sem þar dvelja.
„Þaö er nauösynlegt að hafa eitthvaö til aödútia viö” segir ólafur
Arnason.
Viö gátum talið Guönýju á aö hafa tvo af púöunum sfnum meö á myndinni, og eins og sjá má eru þeir
býsna fallegir.
dvalarkostnaðinn hérna, og ef
þau duga ekki þá verður maður
að borga afganginn úr eigin
vasa.
Flestir fá einhverja vasapen-
inga frá Tryggingastofnuninni
en ég er svo lánsamur að ég hef
; ekki þurft á þvi að halda ennþá,
þvi ég tók engin ellilaun út
fyrstu átta árin sem ég átti rétt
á þeim.”
„Ferðu oft i heimsóknir eða
bæjarferðir?”
„Uppeldisdóttir min er búsett
i Hafnarfirði og hún sækir mig
oft um helgar. Ég kemst lika
allra minna ferða með strætis-
vögnum og skrepp oft i bæinn, ef
mig vanhagar um eitthvað.
Þau átta ár sem ég hef verið
hérna hef ég alltaf farið i langa
gönguferð á hverjum degi,
þegar vel hefur viðrað.”
„Er það eitthvað sem þér
finnst vera ábótavant hérna,
Ólafur, eða ertu ánægður með
hlutina eins og þeir eru?”
„Nei, ekki læknisþjónustuna.
Hún mætti vera miklu meiri og
betri. Þegar ég kom hingað voru
hér tveir starfandi læknar,
hálfan daginn hvor. Nú er það
bara sjúkradeildin sem hefur
fastan lækni, en við hin getum
ekki hitt lækni nema 2-3svar i
viku.
Þar sem allur þorri fólks hér
þarf á einhverskonar læknis-
hjálp að halda, getur þetta verið
mjög bagalegt. Ég skal bara
nefna ykkur eitt dæmi: Ekki
alls fyrir löngu lagðist ég i inflú-
ensu og var heldur illa haldinn.
Eg þurfti að fá lyf til að ná þessu
úr mér, en það leið hálfur mán-
uður, áður en ég gat fengið
lækni til að lita á mig.
Þetta mætti vera betra, en að
öðru leyti likar mér vel hérna.”
E11 i la u ni n hr ökkva
skammt
Siðastur varð á vegi okkar
Óskar Arnason.
„Hvað ertu búinn að vera
lengi á Hrafnistu, Óskar?
„Ég er búinn að vera hérna
siðan 1973. Ég byrjaði á sjónum
16 ára og var þar allar götur til
1960. Þá veiktist ég af astma og
varð að hætta sjómennskunni og
svo endaði ég hér.”
Við hvað styttið þið ykkur
helzt stundir á daginn?
Það er mikið spilað og svo
situr fólk og spjallar og svo
lesum við auðvitað dagblöðin,
en það er nú verið að fækka
þeim við okkur eins og þú
eflaust veizt.”
„Hvernig er með peningaráð
hjá ykkur. Virðist þér að það
hafi allir nóg fyrir sig?
Ellilaunin sjáum við nú ekki.
Þau fara eins og þau leggja sig
upp i dvalarkostnað. Ég er i
lifeyrissjóði verkamanna og fæ
peninga þar á þriggja mánaða
fresti, en það þýðir að ég fæ
enga vasapeninga hjá Trygg-
ingarstofnuninni.En ég held að
fólk megi yfirleitt ekki verða
fyrir neinum óvæntum út-
gjöldum ef það á að ná endum
saman.”
„Heldurðu að það leiðist
engum hérna — að það séu allir
jafn ánægðir?”
„Það er þá helzt fólkið á
sjúkradeildinni sem verður að
vera án félagsskapar, þvi það
kemst ekki fram á gang óstutt.
Svo eru það lika þeir sem
heyra ílla og geta ekki fylgzt
með samræðum, þeir verða lika
útundan.
En það er nú alltaf verið að
reyna að hjálpa þessu fólki. Til
dæmis er Borgarbókasafnið
farið að lána út kasettur fyrir þá
sem sjá ekki lengur á bók, og
það er mikill munur fyrir þetta
fólk.”
„Hvað gerir þú sjálfur þér
helzt til afþreyingar á kvöldin til
dæmfe?
Ég hlusta mikið á útvarp og
horfi á sjónvarp.
Eins og þú sérð. þá er ég með
sjónvarpstæki hérna i her-
berginu hjá mér og það hafa
margir eigið tæki. Við þurfum
ekki að borga nein afnotagjöld,
svo þetta er enginn kostnaður
fyrir okkur.
Ég les lika töluvert og það er
ágætt bókasafn hérna niðri, og
auk þess kemur bókabillinn
alltaf einu sinni i viku, svo af
nógu er að taka.”
Að þessum orðum sögðum,
þökkum við þessu ágæta fólki
fyrir spjallið, kveðjum það og
yfirgefum Hrafnistu. JSS
Hér þarf enginn að láta
sér leiðast
Fyrsta hittum við að máli
Guðnýju Stefánsdóttur og
spurðum við hana hvernig henni
likaði vistin.
„Mér likar hún ágætlega og
ég get ekki munað eftir neinu
sem betur mætti fara, segir
Guðný. Ég er nú bráðum búin að
vera hérna i 5 ár og mér hefur
liðið alveg ljómandi vel.”
„Hvað hefurðu helst fyrir
stafni á daginn?”
„Ég hef unnið mikið i hönd-
unum siðan ég kom hingað. Það
styttir manni stundir og ég er
lika óvön að vera iðjulaus. Ég
fer mikið niður i föndurstofu,
sem er hér i kjallaranum og þar
getum við fengið munstur og
garn að vild. Fjölskylda min er
nú orðin stór, en fram til þessa
hef ég ekki gefið aðrar gjafir en
þær sem ég hef sjálf búið til.”
„Færðu margar hiemsóknir
ættingja og vina, Guðný?”
„Ég á þrjár dætur sem giftar
eru i Reykjavik og þær koma
mjög oft að heimsækja mig og
taka mig lika heim með sér um
helgar. Eins lita kunningjarnir
inn til min af og til.
Annars er gert töluvert fyrir
fólkið hérna. Vistheimilið býður
okkur alltaf i ferðalag á hverju
sumri og er það okkur til mik-
illar ánægju. Kiwanisklúbb-
urinn Hekla hefur lika gengizt
fyrir skemmtunum hérna og svo
er Vistheimilið með samkomur
á hverju fimmtudagskvöldi, svo
hér þarf enginn að láta sér
leiðast.
Læknisþ jónustan m'jög
ófullnægjandi
Næst knúðum við dyra hjá
Ólafi Árnasyni. Hann var
önnum kafinn við að hnýta
öngla á linu, og sagðist ckki
mega vera að taia við okkur
nema örstutta stund, þvi hann
þyrfti að skila af sér dagsverk-
inu fyrir kl. 5.
„Ég fæ 306 krónur fyrir
hverja þúsund öngla sem ég
hnýti. Það eru svo sem engin
ósköp, en það munar samt um
það.
Ellilaunin fara öll upp i