Alþýðublaðið - 23.03.1976, Side 7
bSaífö* Þriöjudagur 23. marz 1976
Alþýðuflokkurinn 60 ára 7
.\A.ario Soares, formaöur Hans Janitschek, aöalrit-
jafnaöarmannafiokks ari Alþjóöasambands jafn-
Portúgals aöarmanna
MBÖNO
MANNA
flokkur), Sviss, Sviþjóð og
Bandarikjunum (Social Demo-
cratsUSA). Auk þess eru tvö al-
þjóðleg samtök Gyðinga, sem
eru jafnaðarmenn.
AUKAAÐILDARFLOKKAR
eru í þessum löndum: Flokkar
útlaga frá Búlgariu, Tékkó-
slóvakiu, Eistlandi, Ungverja-
landi, Lithaugalandi, Lettlandi,
Júgóslaviu, Póllandi og
Rúmenfu. Siðan flokkar i Norö-
ur-lrlandi (tveir flokkar), Suður
Jemen, Suður-Vietnam, Ber-
muda, Costa Rica, Paraguay,
Perú og Venezuela.
HÆSTA PRÓSENTTÖLU
greiddra atkvæða i kosningum
siðustu árin hafa þessir flokk-
anna fengið: Singapore 84,4%,
Jamaica 57%, Costa Rica 55%,
Mauritius 52%, Malta 51%,
Austurriki 50,4%, Astralfu 48%
Noregi 46,7%, V-Þýzkalandi
45,8%, Sviþjóð 43,6%, tsrael
40%, Bretlandi 39,3%,Nýja-Sjá-
landi 38,9% og Portúgal 37,8%.
I RIKISSTJORNUM: A árinu
1975 voru jafnaðarmannaflokk-
ar við st jórn eða þátttakendur I
stjórnum i eítirtöldum rikjum:
Astraliu (siðan breytt), Austur-
riki, Costa Rica, Finnlandi,
V-Þýskalandi, Bretlandi, ír-
landi, Israel, Danmörku, Jam-
aica, Luxemburg, Möltu,
Mauritius, Hollandi, Noregi,
Portúgal, San Marino, Singa-
pore, Sviþjóð, Sviss, Venezuela,
Nýja-Sjálandi.
Kosningafylgi jafnaðarmannafiokka
Miðað við siðustu kosningar fyrir 1975 höfðu þessir jafnað-
armannaflokkar hlotið mest atkvæðafylgi i þingkosningum:
Vestur-Þýzkaland............................... 17.175.169
Japan: Sósialistaflokkur....................... 13.907.864
Bretland....................................... 11.468.646
Frakkland....................................... 4.950.000
Japan: Sósialdemókratar......................... 3.660.953
Italia: Sósialistaflokkur....................... 3.290.000
Ástralia ....................................... 3.000.000
Austurriki...................................... 2.334.309
Sviþjóð......................................... 2.247.000
Portúgal........................................ 2.145.392
Italia: Sósialdemckratar........................ 2.063.528
Holland......................................... 2.021.473
Kanada: Nýi óemókrataflokkurinn................. 1.467.748
Belgia.......................................... 1.401.725
Noregur......................................... 992.524
Danmörk........................................... 913.155
Malagasy.......................................... 880.000
Finnland.......................................... 695.394
Israel.......................................... 621.183
Nýja-Sjáland ..................................... 560.241
Fjölmennustu jafnaðarmannaflokkar
Samkvæmt skýrslum á siöasta ári höfðu eftirtaldir jafnað-
armannaflokkar flest fólk félagsbundið. Þess ber að gæta, að
i flestum þessara landa geta verkalýðsfélög gengið i heilu
lagi i flokkana, en það mun ekki talið t.d. hjá brezka flokkn-
um.
Sviþjóð........................................981.778
V-Þýzkaland ...................................957.253
Austurriki.....................................694.619
Bretland ......................................665.397
Italía: Sósialistaflokkurinn ....................538.000
Kanada ....................................... 350.000
Italía: Sósialdemókrataflokkur...................303.000
Noregur........................................300.000
Israel.........................................300.000
Belgia.........................................226.731
Noregur........................................200.000
Engin félagsmála-
hreyfing getur lyfzt eöa
þróast, nema hún sé borin
uppi i árdaga af hug-
sjónaeldi.
Það er hlutverk eldhug-
anna að blása nýju lífi í
barma samtíðarmanna
sinna og vera árgalar
þess dags, sem þeir boða.
Það væri samt til of
mikils mælzt, að þeim
svelli i barmi örugg ráð
til að leysa allan vanda,
sem þeir brjótast gegn.
Enginn skyldi þó van-
meta vakningarmáttinn,
þó honum sé ekki sam-
fara svör við öllu, sem
hreyfing þeirra ber i sér.
Þegar íslenzkir
jafnaðarmenn minnast
stórafmælis, eins og nú,
verður frumherjunum
seint fullþakkað.
Forganga þeirra og
fordæmi eru enn lýsandi
kyndlar á vegferðinni,
sem blikna ekki í tímans
rás, þótt breyttar aðstæð-
ur geti bent á leiðir að
markinu, sem upphaf-
lega var reist og haldið á
loft, en þeir eygðu ekki í
þeim svip, sem mannleg
vegferð er í þessu jarð-
lífi.
Oft verður okkur á, að
staldra við stóru nöfnin
og víst er það maklegt.
En sérhver hreyfing á
lika sína nafnlausu her-
menn sem hver á sínum
stað brutu brautina og
lögðu grunninn að fram-
tíðarhöllinni, sem enn er
ekki fullgerð.
Öllum þessum mönnum
viljum við þakka og
geyma minningu þeirra
og þeirra starfs með að-
dáun.
Við játum fúslega, að
án f rumherjanna, sem
báru eldinn í hugi og
hjörtu eins og Prome-
þeivs forðum eldinn af
Olympstindi, væri
heimurinn skuggsýnni, þó
okkur hafi ekki tekizt að
koma i framkvæmd enn
sem komið er öllum
þeirra hugsjónamálum.
,,Vort ferðalag gengur
svo grátlega seint,
og gaufið og krókana
höfum við reynt.
og framtíðarlandið er
fjarri.", kvað Þorsteinn
Erlingsson.
En sá, sem á fram-
tíðarland, sem að er
stefnt, verður víst oft að
sætta sig við, að ekki er
ætið hægt að ,,brjótast
það beint" og brekkurnar
eru of háar til þess að
teknar verði í fáum
skref um.
Mestu skiptir, að ekki
sé misst sjónar af endan-
legu takmarki.
Það mun ekki leika á
tveim tungum, að þegar
minnst er frumherjanna,
ber eitt nafn hæst, nafn
Ólafs Friðrikssonar. Með
tilkomu Ölafs var brotið
blað í sögu islenzkrar al-
þýðuhreyf ingar til sóknar
eftir þeim mannréttind-
um, sem þá skorti á að
fólkið nyti.
Ölafur Friðriksson var
maður ekki einhamur.
Tilkoma hans var eins og
isabrot sem sjaldan fer
fram með neinni hægð.
Klakahjúp sinnuleysis og
vanmetakenndar varð að
brjóta af hugum og at-
ferli f átæklinganna og
kenna þeim að þekkja
sinn ,,rétt, til að lifa eins
og menn."
Það myndi hafa reynzt
á fárra færi, að fara þar í
fótspor Olafs, sem hafði
til að bera hiklausa f ram-
göngu og skörulegt orð-
færi og rödd, sem sannar-
lega var hrópandans.
Þetta allt samfara eld-
legum áhuga og góðri
greind, gerði hann að
óhvikulum merkisbera.
Hann var hinn mikli
plægingamaður, sem
undirbjó jarðveginn og
hlífði sér i engu við þau
umbrot. Engin hreyfing
verður söm eftir, að hafa
notið slíkra verka og at-
orku sem hans.
Þess vegna mun minn-
ing hans jafnan verða ís-
lenzkum jaf naðarmönn-
um hugfólgin sem þess,
er hikaði ekki við stóru
steinatökin i árdaga, þó
þau sýndust ofurefli
mannlegri getu.
—OS