Alþýðublaðið - 23.03.1976, Side 13
IÞÝ!
blaöi
iö Þriðjudagur 23. marz 1976
ÚRYMSUM ÁTTUM 13
í kolanámu
Tæknigallar hafa ennfremur
veriö meövirkandi i stærstu
hátignar voru tekriir frá þessum
oliusvæöum — og freigáturnar,
sem nú hafa þann starfa helztan
að reyna aö sigla á islenzk varð-
skip voru áöur við gæzlustörf á
þessum slóðum — m.a. i varn-
arstööu ef óvinariki eða hermd-
arverkaflokkar reyndu aö vinna
pöllunum ógagn.
Brezka tryggingarfyrirtækið
Lloyds, sem tslendingum er aö
góöu kunnugt og tryggir eða
endurtryggir alla mögulega
hluti og ómögulega, lætur jafn-
an ganga úr skugga um það aö
ströngustu öryggiskröfum sé
fylgt i hvivetna, bæöi við gerö
pallanna og stöövanna, og viö
sjósetningu þeirra. Síðan aö
sérstakir öryggisfulltrúar séu
um borö á hverjum palli til að
ganga úr skugga um að hvergi
sé slakaö á öryggiskröfunum.
Þ>á sendir iðnaðarráðuneytið
lika sina eftirlitsmenn reglulega
til að hafa eftirlit og bera sig
saman við eftirlitsmenn oliufé-
laganna og tryggingarfélag-
anna, þannig að sjá má, að beri
eitthvaðút af, þá er engin önnur
skýring haldbær en sú, að ekki
verði feigum forðað né ófeigum
i hel komið.
Dýr óhöpp
011 slys og óhöpp, sem hent
hafa hingað til hafa reyndar að-
eins orðið á borpöllunum, en
ekki sjálfum vinnslupöllunum,
en það eru mun veigameiri og
dýrari mannvirki, enda ætlað að
standa lengur og þola meira á-
lag.
En enginn er kominn til með
að segja að ekki bili eitthvað af
þeim mannvirkjum, þótt vel sé
til þeirra vandað. Til að reyna
að sjá fram i timann er þess
vegna unnið að þvi að sviðsetja
óhöpp og aðstæður veðurfars
sem leitt gæti til slysa i straum-
fræðirannsóknarstofnunum.
Þar eru allar hugsanlegar veð-
uraðstæður látnar vinna á likön-
um —og reynt að finna út hverj-
ar séu veikustu hliðarnar.
Verulegt óhapp á olíuborpalli
er óhemju dýrt. Stærsti pallur-
inn sem gerður hefur verið er
348 þúsund tonn og nær 240
metra upp frá sjávarborði.
Hann getur geymt allt að
milljón tonn af oliu. Verðmæti
hans er um 60 þúsund milljónir
islenzkra króna.
En eins og vikið hefur verið
að, þá eru það ekki náttúruöflin
ein, sem gætu unnið þessum
dýru mannvirkjum tjón.
Ottinn við að hermdarverka-
menn kæmust um borð i þessa
palla og reyndu að vinna þar
einhver illvirki, eða hóta sliku
til að fá einhverjum kröfum sin-
um framgengt, hefur leitt til
þess aö vel er gætt að við allar
mannaráðningar, og sérstakir
verðir eru á öllum pöllum til
þess að gæta þess annars vegar
að engir óviökomandi komist
þangað og unnt yrði að bæla nið-
ur tilraunir til „valdaráns” á
pöllunum sjálfum.
Þess vegna var það oliufélög-
unum litið fágnaðarefni, að
brezki flotinn skyldi fækka
gæzluskipum sinum þar um
slóðir til að fjölga verndar-
skipaflota veiðiþjófanna á ts-
landsmiðum.
—BS.
***™**™mndi
I siðasta blaði Suðurnesjatið-
inda er á forsiöu rætt mál, sem
mjög er eftirtektarvert og flest-
ir þyrftu að gefa gaum. Þar er
rætt það böl, sem skert starfs-
orka er hverjum manni. Minnzt
er á starf SÍBS að Múlalundi, og
siðan sagt:
„Hér á Suðurnesjum er nokk-
ur fjöidi fólks, sem ýmissa or-
saka vegna hefur ekki fulla
starfsorku, og þessu fólki geng-
ur illa að fá vinnu við sitt hæfi.
Tryggingakerfið greiðir þessu
fólki fé til að byrja með, en svo
kemur að þvi, að ekki fæst
meira þar, nema til komi ör-
orka. Þá er ekki um annað að
ræða en að leita á náðir hins
opinbera.
Það er erfitt fyrir fullorðna
menn, sem alla tið hafa séð um
sig og sina, að þurfa allt i einu
að fara að þiggja af sveit, eins
og það var kallað.
Sveitarfélögin á Suðurnesjum
hafa á siöari árum sifellt verið
að auka samvinnu á fleiri svið-
um. Stofnun fyrir fólk með
skerta starfsorku ætti að vera
næst i þessu samstarfi”.
Hér reifar blaðið mál, sem
nauðsynlegt er að vekja athygli
á. Það er ekki aðeins fólk með
skerta starfsorku, sem þarf að
huga að. I nútima þjóðfélagi þar
sem meöalaldur karla og
kvenna er rúmlega 70 ár, dæma
aldurstakmörk marga fullfriska
frá störfum. Fyrir vinnusamt
fólk eru það ill örlög að verða að
hætta að vinna, þótt heilsa og
starfsorka sé i bezta lagi.
Flestir þekkja dæmi þess
hvernig athafnasamir menn
hafa beinlinis hrörnað á nokk-
rum mánuðum, þegar þeim hef-
ur verið gert að hætta þátttöku i
atvinnulifinu. Málefni þessa
fólks verður að taka til athugun-
ar i þeim tilgangi að skapa þvi
atvinnu á meðan starfsorka
helzt óskert. Þetta er verkefni
fyrir stjórnmálamenn, sem
vilja láta gott af sér leiða.
Hótel í ólafsfirði
tslendingur á Akureyri skýrir
frá þvi, að nú sé á döfinni að
hefja smiði hótels i ólafsfirði.
Það á að rúma 22 gesti i her-
bergi og 60 manns i mat. Ætlun-
in er, að taka hluta af hótelinu i
notkun vorið 1977 og á að starf-
rækja það allt árið.
Aður hefur verið sumarhótel i
Ólafsfirði i gamla prestssetr-
inu.— Nýja hótelinu hefur verið
ætlaður staður og búið er að
gera teikningar. Húsið á að
verða fokhelt i sumar. Trausti
Skert starfsorka og
aldur - Hótel í Ólafs
firði— Stefnan að norðan
- Landsfundur SFV
Magnússon heitir athafnamað-
urinn, sem ræðst i hótelsmiðina
og hefur hann sótt um lán til
Byggðasjóðs og Ferðamálaráðs
og fengið góðar undirtektir.
Hann hefur einnig sótt til
menntamálaráðuneytisins um
heimild til reksturs mötuneytis
yfir vetrarmánuðina fyrir gagn-
fræðaskólanemendur úr ná-
grenninu. Bæjaryfirvöld i Ólafs-
firði hafa sýnt málinu áhuga.
Stefnan að norðan.
Alþýðumaðurinn á Akureyri
birtir leiðara, sem nefnist
„Stefnan að noröan”. Þar segir
„Jafnaðarstefnan er án efa sú
þjóðfélagshreyfing, sem mest
áhrif hefur haft á mótun
islenzks þjóðfélags i áttina til
jafnréttis og raunhæfs lýðræðis.
Alþýðuflokkurinn var mynd-
aður um þessa stefnu og hóf
baráttu fyrir henni, þegar eftir
stofnun flokksins I marz 1916,
fyrir 60 árum.
Áhrifa jafnaðarstefnunnar
gætir mjög á sviðum mannrétt-
inda, þar sem flokkurinn hefur
barizt fyrir vikkun kosninga-
réttar, viðurk e n n i ngu
samningsréttar og fleiri réttind-
um. Á sviðum félagsmála,( þar
sem til koma almannatrygging-
ar, sjúkrasamlög og fleiri atriði
i viðtæku kerfi. A sviði skóla-
mála, ibúðabygginga, opin-
berrar þátttöku i félags- og
efnahagslifi og fleira mætti
telja.”
Siðan er minnt á það, að
Alþýðuflokkurinn og
Alþýðusamband tslands mynd-
uðu ein og sömu samtökin. Þá
segir: „Saga þessara samtaka
snertir Akureyri á sérstakan
hátt. Ólafur Friðriksson, hinn
hugdjarfi brautryðjandi og bar-
áttumaður, hafði dvalizt hér á
unglingsárum og átti ættingja a
Norðurlandi, er hann landi, er
hann kom heim eftir dvöl i Dan-
mörku 1914,— Ólafur lagði leið
sina til Akureyrar haustið 1914
og þar stofnaði hann fyrsta
Jafnaðarmannafélagið á
tslandi”
Ííýftí^mól
Landsfundur SFV.
Ný þjóðmál, blað Samtaka
frjálslyndra og vinstri manna,
skýrir frá þvi, að framkvæmda-
stjórn samtakanna hafi ákveðið
að boða til landsfundar dag-
ana30—31. október næstkom-
andi. Samkvæmt lögum Sam-
takanna fer landsfundurinn með
æðsta vald i málefnum þeirra,
ákveður stefnu þeirra og lög.
Slikan landsfund skal halda
annað hvert ár.
Andri ísaksson formaö-
ur.
Þá segir blaðið frá þvi, að
Andri tsaksson, prófessor, hafi
nýlega verrið kjörinn formaöur
kjördæmisráðs Samtakanna i
Reykjanesumdæmi. Meö hon-
um i stjórn eru: Eyjólfur
Eysteinsson, Guðmundur Aðal-
steinsson, Ólafur Jensson, Jens
Hallgrimsson, Sigurjón Ingi
Hilariusson og Andrés
Kristjánsson.
—AG.
Ritstjórn Alþýðublaðsins
er í Síðumúla 11
- Sími 81866 __________
|alþýðu[
Volkswageneigendur
Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Huröir — Vélarlok —
Geymslulok á Wolkswagen i allflestum litum. Skiptum á
einum degi meö dagsfyrirvara fyrir ákveöið verö.
Reyniö viöskiptin.
Bilasprautun Garðars Sigmundssonar.
Skipholti 25 Simar 19099 og 20988.