Alþýðublaðið - 23.03.1976, Page 16
Nýorðnar og væntanlegar hækkanir raktar
ÞRIÐJUDAGUR
23.MARZ 197(
Verðhækkanir dynja yfir
Þa& hefur vist ekki farið fram hjá neinum að vöruverðs- og
þjónustuverðshækkanir hafa dunið yfir almenning undanfarna
daga. Alþýðublaðið rekur nú nýafstaðnar hækkanir, og þær sem
væntanlega eru ekki langt undan.
Hárskerar, efnalaugar og kex
Hárskerar fengu á dögunum 5% hækkun. Það þýðir það að al-
menn klipping kostar nú 480 kr. i staö 460 áður. Herraklipping,
eða svokölluð snöggklipping, kostar nú 385 kry365 kr. fyrir hækk-
un. Þá kostar formkiipping 610 krónur.
Gjaldskrá efnalauga hækkaði um 14%. Hraðhreinsun á 1 kg af
fatnaði kostar nú 285 krónur, áður 250 kr. Hreinsun á jakka og
buxum kostar nú krónur 610, áður 535 kr.
Þá hækkar innlent kex um 6%.
Sjónvarp og útvarp
Afnotagjöld sjónvarps og hljóðvarps hækka um 30%.
Að sögn Axels Olafssonar innheimtustjóra rikisútvarpsins,
verður heils árs gjald af hljóövarpi nú 5000 krónur, en var áður
3800 krónur.
Svokallað sjónvarpsgjaid, sem innifelur bæði hljóðvarp og
sjónvarp verður nú 16000 á ári, en var 12200 krónur.
Það er þvi orðinn dýr munaður að hlusta á hljóövarp og horfa á
sjónvarp þessa dagana. Hvorki meira né minna en 16 þúsund
krónur, eöa tæpar 44 krónur á dag.
Áfengi og tóbak
Hækkun á áfengi er gegnumgangandi 15%. A sumum tegund-
um meiri, öörum minni. Tóbak hækkar allt um 15%.
Verð á helztu vintegundum er samkvæmt eftirfarandi. (Fyrra
verð i sviga). Verðið er miðað við 3ja peia flöskur.
Vodka (pólskt) 3550 kr. (3060).
Brennivin 2600 kr. (2170 kr.)
Romm (Baccardi) 4000 kr. (3590 kr.)
Genever (pottflaska) 4000 kr. (3450 kr.)
Whisky 3800 kr. (3400 kr.)
Rauðvin (meðaiverð) 1750 kr. (1640 kr.)
Hvitvin (meðalverð) 1600 kr. (1590 kr.)
Koniak (Camus) 4150 kr. (3580 kr.) ,
Verð á tóbaki: Allflestar algengustu sigarettutegundirnar fara
úr krónum 190 i 220 krónur pakkinn. Neftóbaksdósin 50 gr kostar
nú 115 krónur.Pakkinn af skroinu er nú á 230 krónur. Algengustu
tegundir reyktóbaks kosta nú 185 krónur, hver pakki. Vindla-
pakkinn svo sem London Docks hækkar úr 290 krónum i rúmar
330 krónur.
Þessar stóru syndir, þ.e. að lyfta vinglasi og soga að sér ban-
eitraðan tóbaksreykinn eru þvi ekki aðeins dýrar heilsunni,
heldur jafnvel fyrst og fremst, pyngjunni. Fannst þó flestum nóg
um, fyrir hækkunina.
Almenningsvagnar
Landleiðirhækkuðu gjaldið á ferðum sinum milli Hafnarfjarð-
ar og Reykjavikur um 14% i siðustu viku.
í lausagjaldi kostar nú ferðin milli Hfj. og Rvikur 95 krónur.
(áður 80kr.) Rvik. —Garðabær 70 kr. (65 áður), Rvik. — Kóp. 45
kr. (36 kr.), Kóp. — Garðab. 35 kr. (30 kr.), Kóp. — Hfj. 50 kr. (45
kr.), Garðab. — Hfj. og innanbæjar i Hafnarfirði kostar 35 krón-
ur (áður 30 kr.).
Fyrrnefndar tölur miðast við fullorðinsgjöld.
Þá eru afsláttarkort til sölu. Til að mynda kostar 25 ferða af-
sláttarkort nú 1800 krónur (1600 áður) og samsvarar það að hver
ferð milli Hfj. og Rvikur sé á 72krónur.
Strætisvagnar Reykjavikur
hafa farið fram á 35% hækkun fargjalda. Borgarstjórn Rvikur
samþykkti á fundi sinum á sl. fimmtudag að heimila þessa
hækkun frá og meðl. april nk. Verðlagsstjóri á þó eftir að leggja
sina blessun yfir þessi hækkunaráform.
Landbúnaðarafurðir
Að sögn Gunnars Guðbjartssonar formanns framleiðsluráös
landbúnaðarins i gær hefur 6 manna nefnd verðlagsráðs land-
búnaðarins lokið störfum sinum og reiknað út verð landbúnaðar-
afurða.
Hefðu niðurstöður nefndarinnar veriö sendar rikisstjórninni
sem tæki ákvörðun um niðurgreiðslur. Taldi Gunnar á þvi mögu-
leika að yfirlýsingar um endanlegt verð, yrði að vænta frá rikis-
stjórninni i dag.
Búvörugrundvöilurinn mun hækka um 8,5%. Samkvæmt fjár-
lögum er gert ráð fyrir þvi að niðurgreiðslur af landbúnaðaraf-
urðum lækki um 11%.
Gjaldskrá Hitaveitu Reykjavikur hækkar um 27%. Mun vatns-
verðnú verða 50 krónur á hvert tonn, en var 39,36 kr. fyrir hækk-
un. —GÁS
Hitaveitan
27%
hækkun
hjá Hita-
veitunni
— en samt
ekki nóg
Þrátt fyrir 27% hækkun
á gjaldskrá Hitaveitunnar í
Reykjavík, verður mun
minna um framkvæmdir á
vegum veitunnar en fram-
kvæmdaáætlun frá í
október gerð ráð fyrir.
Þessar upplýsingar fékk
blaðið hja Jóhannesi Zoega
hitaveitustjóra. Sagði hann
að farið hefði verið f ram á
32% hækkun til þess að
unnt yrði að sinna fyrir-
huguðuum fram-
kvæmdum. Ekki yrði unnt
að halda áfram fram-
kvæmdum við dreifilagnir
i Hafnarfirði og Garðabæ
eins og til hefði staðið.
Reyndar myndi hálfklár-
uðum verkefnum verða
lokið, en fleiri verk yrðu
ekki boðin út í bili.
Sömu sögu væri að segja
um Breiðholt 3 og Vestur-
bæinn. Þar yrði fram-
kvæmdum frestað af f jár-
magnsleysi. —gas
Hann er ihugull og rólegur, þegar hann litur yfir salinn i Fiskiðjunni i Vestmannaeyjum með stálið i
vinstri hendi og flatningshnifinn i þeirri hægri. — Þær eru.að gegnumlýsa flökin konurnar og i baksýn
eru myndskreytingarnar, sem lifga mjög upp á salinn. Óg þrifnaðurinn er eins og á skurðstofu. —■
Ljósm. Guðmundur Sigfússon.
; >
ÍgÉPf
Með stálið í vinstri...
Afsláttarmiðar SVR upp-
seldir í hamsturtíðinni
Almenningur i Reykja-
vík hefur heldur betur
tekið við sér eftir síðustu
hækkanir. Er af því
fréttist að til stæði að
hækka fargjaldið hjá
SVR hefur ásóknin í
afsláttarmiða SVR orðið
slík að miðarnir eru nú
þegar orðnir uppseldir.
Sagði Skúli Halldórsson hjá
SVR að um leið og blöðin hefðu
birt um það fréttir að fram-
undan væri 35% fargjalda-
hækkun þá hefði hafizt alveg
geysilegt hamstur á miðunum.
Hefði mánaðarupplag rokið út á
einum degi og væru afsláttar-
miðarnir uppseldir, eða svo gott
sem. Myndu ekki nýir afsláttar-
miðar settir i umferð fyrr en hið
nýja verð yrði komið.
Það er þvi augljóst að fáir for-
sjálir hafa sparað sér umtals-
verðar fjá^rhæðir með þessu
hamstri sínu, en meginþorri
fólks klórar sig i handabökin
fyrir ónotað tækifæri. —GAS
alþýðu
blaðiö
LESIÐ: I „Alþýðumann-
inum” á Akureyri, að frá
þvi loðnuvertið hófst i vetur
hafi 12.700 tonn af loðnu
borizt til Siglufjarðar. Þá
var b/v Sigurðuraflahæsta
löndunarskipið á Siglufirði,
búið að landa 2500 tonnum.
HEYRT: Að nú sé unnið að
nýrri markaðsleit og auknu
sölustarfi á niðursoðnum
og niðurlögðum afurðum i
Bandarikjunum á vegum
Sölustofnunar lagmetis.
SPURT: Vegna nýyrðisins
„lagmeti” hvort ekki sé þá
rétt að kalla fljótandi fæðu
einu nafni „lapmeti”?
LESIÐ: t færeyska blaðinu
„Sosialurinn”, að Fær-
eyingar hafi fengið nýtt
skip til landhelgisgæzlu..
Skipið á jafnframt að ann-
ast landhelgisgæzlu við
Grænland. Það hefur hlotið
nafnið „Beskyttercn”.
Skipið hefur isbrjótsstefni,
er isstyrkt og hefur ishnifa
við skrúfur. Það getur tekið
á sig 200 lestir af isingu,
hefur 3 aflvélar og gengur
18 milur.
LESIÐ: t sama blaði, að i
s.l. mánuði fóru fram i
Þórshöfn i Færeyjum
réttarhöld yfir manni, sem
farið hafði um borð i danskt
varðskip i höfninni og stolið
5 vélbyssum. Fyrir rétt-
inum sagðist hinn ákærði
ekkert muna eftir þvi, að
hann hefði farið um borð i
skipið, en játaði þó, að það
hlyti hann að hafa gert, þvi
að byssurnar fann hann
heiiha hjá sér næsta
morgun. Hann vardæmdur
i 40 daga varðhald, ekki
fyrir þjófnað heldur fyrir
„hervirki”. Ætlun hans var
að afvopna danska flotann,
að hans sögn.
HEYRT: Að það, serr
vakað hafi fyrir ólafi Jc
hannessynimeð opnu bréf
unum til Þorsteins Páls
sonar hafi verið að endur
taka fræga grein, sem
Jónas frá Hriflu skrifaði
þegar honum þótti að séi
vegið. Greinin hét „Stón
bomban”. Hugmyndin ei
góð —engallinner bara sá
að þessar bombur eru sv<
vangæfar með það, að þæi
vilja ekki springa nemt
það sé eitthvert púður
þeim.