Alþýðublaðið - 02.06.1976, Side 2
2 FRÉTTIR
- t
Miðvikudagur 2. júni 1976.
Útfíefandi: Alþýðuflokkurinn.
Itekstur: Iteykjaprent hf. Ritstjóri 1
of> ábyrgðarmaður: Arni Gunnars-
son,. Kitstjóri: Siglivatur Björgvins-
son. Fréttastjóri: Bjarni Sigtryggs-
son. Aðsetur ritstjórnar er í Siðu-
imila 11, simi 81866. Auglýsingar: simi 14900 og 14906. Prent-
un : Blaðaprent h.f. Askriftarverð: 1000 krónur á mánuði og 50
krónur i lausasölu.
alþýöu-
blaöíó
Verður samið
um síðasta
þorskinn?
Mikil er ábyrgð þeirra manna, sem nú stjórna
þessu landi. Þeir eru um þessar mundir að kasta á
milli sín fjöreggi þjóðarinnar í samningum við er-
lendar þjóðir um fiskveiðiréttindi á (slandsmiðum.
Svo getur farið, að eggið falli á gólf ið og brotni. Það
verður þá ekki sett saman á ný.
Samkvæmt rannsóknum hæfustu vísindamanna
þjóðarinnar er nú veruleg hætta á því, að eins geti
farið fyrir þorskstofninum og urðu örlög íslenzku
síldarinnar. Þeir hafa bentá, að mjög verulega þurfi
að draga úr sókninni í stofninn, og jafnvel hefur
verið talað um að stöðva veiðar íslenzkra skipa
ákveðinn tíma á ári hverju.
f Alþýðublaðinu í gær er grein eftir Reyni Huga-
son, verkfræðing, þar sem hann leiðir rök að því, að
draga þurf i úr sókninni í þorskstofninn um allt að 80
af hundraði. Hann bendir á, að af heildarút-
f lutningi sjávaraf urða árið 1974 haf i þorskur verið 47
af hundraði. Sjávaraf urðir voru í heild 75% af heild-
arútf lutningi landsmanna. Samkvæmt þessustendur
þorskurinn einn undir 34 af hundraði heildar-vöru-
útflutnings (slendinga.
Fiskifræðingar hafa dregið upp dökka mynd af
ástandinu, og f lestir gera sér nú Ijóst að lífsaf koma
íslenzku þjóðarinnar er í húfi. Sjómenn og útgerðar-
menn gera sér þetta Ijóst, og þeir vita að f ramundan
getur verið algjört hrun í atvinnugrein þeirra. —
Ekki hafa allir stjórnmálamenn viljað viðurkenna
þessar staðreyndir, og fer það nokkuð eftir kjör-
dæmum.
Á sama tíma og þessar staðreyndir eru flestum
Ijósar sitja íslenzkir ráðherrar í Osló og semja við
Breta um fiskveiðar í íslenzkri landhelgi, allt upp að
20 mílum. Samningar verða gerðir á grundvelli
samningsdraga, sem urðu til í brezku ráðuneyti.
Fundurinn í Osló er meira formsatriði en hitt#
íslenzka rikisstjórnin hafði að verulegu leyti sam-
þykkt drögin áður en fundurinn hófst.
Stjórnarflokkarnir höfðu mikinn meirihluta kjós-
enda að baki eftir síðustu þingkosningar. Þeir munu
því undirrita samninga í krafti þess meirihluta. Ekki
er þó víst að allir kjósendur þeirra hefðu undirritað
þá samninga, sem nú verða gerðir.
Stjórnaandstöðuflokkarnir hafa lýst eindreginni
andstöðu gegn þeim samningsdrögum er lögð eru til
grundvallar samningunum. Alþýðuf lokkurinn telur,
aðsamkvæmtþeim muni Bretar halda óbreyttu afla-
magni, og sækja það að mestu eða öllu leyti inn f yrir
50 mílur. Þetta myndi hafa í för með sér niðurskurð á
veiðum íslendinga eða stórkostlega hættu á hruni
þorskstofnsins. Einnig bendir Alþýðuf lokkurinn á að
í samningsdrögunum felist engin viðurkenning af
Breta hálfu á 200 mílunum.
Þessi yf irlýsing Alþýðuf lokksins er samin á grund-
velli beztu fáanlegra upplýsinga og með þjóðarheill í
huga. En Alþýðuf lokkurinn hef ur jafnf ramt lýst yf ir
því, að hann vilji stuðla að viðræðum um lausn land-
helgisdeilunnar. En grundvöllur viðræðna þarf mikið
að breytast svo f lokkurinn geti orðið þeim fylgjandi.
Nú verður vart gengið framhjá þvi, að íslenzka
rikisstjórnin ætlar að undirrita samninga við Breta.
Hér á í hlut löglega kjörin stjórn, sem fór eða fer,
með umboð meirihluta þjóðarinnar. Á þessum alvar-
legu tímamótum er því aðeins hægt að bera f ram þá
ósk, að ríkisstjórnin geri allt sem í hennar valdi
stendur til að ná sem hagkvæmustum samningum,
að hún glopri ekki f jöregginu í gólfið, en á því er nú
mikil hætta.
I dag mun islenzka þjóðin væntanlega sjá hvað í
samningunum felst. Hún verður að draga sínar
ályktanir af þeim og fella þann dóm, sem réttlátur
er.
Jafnaðarmenn um allan
heim sameinast í barátt-
unni fyrir efnahagslegu
jafnrétti
Leiðtogar jafnaðar-
mannaflokka Evrópu-
rikja eru nú komir
heim frá fundum i
Mexikó og Venezúela,
þar sem ræddar hafa
verið hugmyndir jafn-
aðarmanna um sam-
ræmt stjórnarfar allra
rikja heims.
Á þessum fundum
urðu fulltrúar sam-
mála um,að i framtið-
inni skuli fulltrúar lýð-
ræðislegra sósialista-
flokka i Asiu, Afriku og
Norður-Ameriku einnig
sitja leiðtogafundi
jafnaðarmannaflokk-
anna.
Þaö var lokaniðurstaöa af
fundum hinna eitt hundrað full-
trúa frá þróunarrikjum jafnt
sem þróuöum iönríkj:. Evrópu, ,
að hugmyndafræði jafnaðar-
stefnunnar þurfi aö vera grund-
völlur nýrrar viðleitni til friðar,
félagslegs jafnréttis, mannrétt-
inda og alþjóðlegrar sam-
kenndar.
Það var vesturþýzki jafn-
aöarmannaflokkurinn (SPD) og
stjórnarflokkurinn i Venezúela,
Accion Democratica (AD), sem
skipulögöu þennan fund ráð-
herra og stjórnarandstöðuþing-
manna jafnaöarmanna — en AD
er aöili að alþjóöasambandi
jafnaðarmanna, sem hefur að-
setur i London.
Fundirnir voru fyrsthaldnir i
Caracas í Venezuela, en siöan i
Mexico City, höfuðborg Mexikó.
Skarpar umræður
Umræöurnar á fundunum
voru hinar liflegustu, oft hinar
skörpustu, þar sem fulltrúar
þróunarrikjanna, einkum i
Suður-Ameriku, sökuðu jafn-
aðarmannaleiötogana i Evrópu
fyrir að boða eitt en breyta á
annan veg, þegar um væri að
ræða viðleitni til að finna leiðir
til efnahagslegs jafnréttis allra
þegna heims.
Meðal hinna hörðustu gagn-
rýnendanna var utanrikisráð-
herra Jamaica, Dudley Thomp-
son, sem spurði hreint út hvort
sósialistar þróunarrikja gætu
litið á jafnaðarmenn Evrópu-
rikjanna sem bræður. meöan
þeir hagnýttu sér hið óréttláta
auðvaldsfyrirkomulag heims-
verzlunarinnar, eins og hann
komst að orði.
Hann vék einnig hörðum orð-
um að hinni „sam-evrópsku”
stefnu þeirra jafnaðarmanna,
sem viö völd sitja i Evrópurikj-
um.
Forseti Venezuela, Carlos
Andrés. taldi aö barátta verka-
lýðsfélaganna i hinum auðugri
löndum miðaðist ekki viö að
rétta hlut bræöranna i hinum fá-
tækari, heldur væri stefnt aö þvi
að halda áunnum launum, og
semja frið við fjármagnseig-
endur. Þar með væri búið að
tryggja að engar hliðstæöar
kjarabætur ynnust i þróunar-
rikjunum.
Hann benti á,að hin miklu
hlunnindi, sem verkafólki i rik-
um löndum, hefðu áskotnazt
væru greidd með þeim arði, sem
rænt væri frá þróunarrikjunum.
Hér skorti samstöðu út yfir hin
efnahagslegu landamæri.
Kenning kveðin niður
A föstudaginn var samþykkt
lokaniðurstaða fundanna, og
gefin út yfirlýsing um.að barizt
skyldi fyrir á öllum sviöum
sköpun nýrrar alþjóðastofnunar
sem baráttutækis hinna snauö-
ari rikja.
I lokaræöu fundanna sagði
Mario Soares frá Portúgal, að
slik stofnun gæti kveðið niður
hina viötekn u kenningu um aö
óumflýjanlegur sé árekstur
hinna auðugu og hinna snauðu.
Soares taldi þó að tilgangi
ráöstefnunnar væri náð, að
koma af stað umræöum milli
lýðræöislegra sósiaista frá 6-
likum löndum i þvi sameigin-
lega markmiði að berjast fyrir
félagslegu og efnahagslegu
jafnrétti allra þegna heims.
Meðal þátttakenda á ráö-
stefnunni voru Anker Jörgensai
frá Danmörku, Willy Brandt frá
Þýzkalandi, Bruno Kreisky frá
Austurriki og hinn róttæki
argentíski flokksformaður,
Ricardo Balbin. Þessir menn
mynda starfshóp, sem skal
undirbúa alþjóðlega ráðstefnu
lýöræðislegra sósialista og
stefna að þvi að fá á þá ráö-
stefnu fulltrúa frá Afriku, Asiu
og Norður-Ameriku. Enginn Is-
lendingur sat þennan fund, enda
óvenjulegt að leiðtogafundir
jafnaöarmanna séu haldnir svo
fjarri Norðurlöndunum og
ferðakostnaöur mikill.
LAMBAKJ0TIÐ: 300 KR.
ÞAR EN 423 KR. HÉR
1 gærdag var birt nýtt verð á
búvörum og fól það i sér nokkra
hækkun, sem stafar, að sögn, af
hækkun áburðarverðs.
Súpukjöt kostarnú.ef um er aö
ræöa framparta, eða siðu.kr. 584
hvert kg, en sé um að ræða læri,
hryggi og framparta þá kostar
það 629.
Verð á heilum skrokkum,
ósundurteknum, er kr. 542 hvert
kg, en kr. 549 ef þeir eru teknir i
sundúr fyrir kaupandann. Það,
sem hér aö ofan er sagt, er smá-
söluverð þ.e.a.s. verðið til
neytanda.
Til þess að gleðja lesendur
skulum viðlita á verð á islenzku
lambakjöti i Noregi, Danmörku
og Sviþjóð.
Búvörudeild Sambandsins
hefur flutt nokkurt magn af kjöti
til Noröurlandanna og samkvæmt
upplýsingum, sem blaðið fékk hjá
búvörudeildinni er verðið, sem
fæst fyrir Islenzkt lambakjöt sem
hér segir: í Sviþjóö kr. 299,73 kr.
reiknaö i islenzkum krónum,
Danir borga tæpar 240 kr. fyrir
kflóiö og Norömenn borga 296.20
kr.
Þó standa vonir til þess, að
nokkur uppbót fáist á verðið i
Noregi, og einnig er von til þess,
að við fáum einnig niðurgreiðslur
á það i Noregi, en Norömenn
hækkuöu nýveriö niðurgreiðslur á
lambakjöt um 4 kr. norskar.
Það verð, sem hér er tilgreint, er
reiknaö á genginu sem var á
viðkomandi myntum i gær.
Einnig skal þess getiö, að
verðið, sem hér er tilgreint er
heildsöluverð, en munurinn er þó
svo gifurlegur ^ö manni sárnar,
að hér skuli vera framleitt kjöt,
sem siðan er selt öðrum langt
undir þvi veröi, sem við verðurh
sjálfir að greiða fyrir hvert kg.
EB
Alþýðublaðifr -
á fivert heimrli