Alþýðublaðið - 02.06.1976, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 02.06.1976, Qupperneq 3
í»Iaðjd,'MicWikiidagur 2. júní 1976. FRÉTTIR 3 Mótmæla samningum við Breta Fulltrúará&sfundur Menningar og friöarsamtaka islenskra - kvenna hefur sent frá sér ályktun þar sem segir aö fundurinn mót- mæli eindregið öllum samningum islenzku rikisstjórnarinnar við Breta um fiskveiöi innan 200 milna lögsögunnar. Enn fremur skorar fundurinn á rikisstjórnina aö fella fiskveiði- samninginn viö vestur-þjóöverja tafarlaust úr gildi. IUSY fordæmir herskipa innrás Breta harðlega Frá þingi Evrópudeildar alþjóöasambands ungra jafnaðarmanna, IUSY, sem haldið er á Möltu: Fordæmum harðlega hernaöaraðgerðir Breta gegn Islendingum. Við krefjumst tafarlausrar brottkvaðningar allra herskipa af Islandsmiðum og skilyrðislausrar viður- kenningar Breta á 200 milna fisk- veiðilögsögu íslendinga. Sérstaklega þykir okkur það slæmt, að það skuli vera verka- mannastjórn, sem stendur að þessari stefnu Breta gegn íslend- ingum. Allar kjötvörur merktar frá og með mánaðamótum? Hinn 1. júni tók gildi auglýs- ing viöskiptaráðuneytisins um merkingu kjötvara, sem seldar eru i smásölu. Frá og með þeim degi er skylt að merkja allar unnar kjötvörur, sem seldar eru I smásölu i neytendaumbúöum, og veita meðal annars upplýs- ingar um heiti vörunnar, fram- leiðsluhætti, samsetningu, geymsluaðferð, meðferð við neyzlu, pökkunardag og siðasta leyfilegan söludag. Alþýðublaðið hafði samband við Jón Sigurðsson, formann Félags islenzkra kjötkaup- manna, og spurði hann álits á reglugerð þessari. Jón sagði þessa breytingu ekki hafa nein áhrif á kjötkaupmenn, sem ynnu kjötið sjálfir og seldu það „beint yfir borðið” (þ.e. óinn- pakkað) þar eð engar kröfur hefðu verið gerðar til merking- ar á slikum vörum. Þar af leiðandi hlyti þetta að mæða mest á kjötiðnaðarstöðvunum, sem sjá um pökkun og selja vörur sinar smásöluverzlunum. Hjá sambandinu náðum við tali af Jóhanni Steinssyni, deildarstjóra, sem sagði að nú væri unnið af kappi við að breyta merkimiðum i samræmi við reglugerðina Jóhann sagðist vona að nýju merkimiðarnir yrðu teknir i notkun mjög fljótlega. Sömu sögu sagði Vigfús Tómasson hjá Sláturfélagi Suðurlands. Þeir þurftu að auka til muna vélakost sinn. en eru þó þegar búnir að merkja stóran hluta framleiðslunnar eins og gert er ráð fyrir. Vigfús vonað- ist til að þvi, sem á vantaði yrði kippt i lag fljótt eftir Hvita- sunnu. Framleiðendur hafa haft all- langan aðlögunartima til aö koma á þessari breytingu og hafa flestir brugðist skjótt við, þrátt fyrir hinn mikla kostnað sem óhjákvæmilega fylgir i kjölfarið. Enn eru þó brögða að þvi að ómerktar kjötvörur sjáist á markaðnum, en viö vonum að framleiðendur geri sér grein fyrir nauðsyn þessarar þjónustu við neytendur og að á næstunni megi fá fullnægjandi upplýs- ingar um hvað á boðstólum er. — AV Gallar á viðbúnaði vegna flugslyss verða lagfærðir Nú liggur fyrir mat á því hvernig æfing vegna hugsanlegs flugslyss á Reykjavíkurf lugvelli tókst. Æf ing þessi fór, sem kunnugt er, fram þann 22. maí og var hún gerð til þess að kanna hvernig áætlun sem Almanna- varnir Reykjavíkur lét gera væri í framkvæmd. Það er samdóma álit þeirra, sem að æfingunni stóðu, að hún hafi tekizt mjög vel. Þrír gallar 1 ljós komu þrir gallar eða mistök sem lagfæra verður. 1. Allt of mörg verkefni hvila á lögreglunni samkvæmt áætl- uninni og olli það seinkun á viðbrögðum hennar. Seinkunin kom harðast niður á flutningi greiningarlæknis af Borgar- spitalanum á slysstað. Læknirinn var tilbúinn á eðlilegum tima, en þurfti að biða óeðlilega lengi eftir flutningi. 2. Þá þarf að bæta fjarskipti milli löggæzlunnar á flugvallar- svæðinu og flugtturnstil þess að hægt sé að beita samræmdum aðgerðum við stjórnun bila- og flugumferðar, innan vallar ef slys verður. 3. Boðun greiningarlækna af Landakotsspitala og Landspitala þarf að vera ákveðnari og öruggari. Harma að hafa valdið skelfingu Almannavarnir harma að hafa valdið farþegum flugvélar, sem var að koma frá Vestmanna- eyjum ótta, þar sem biða þurfti heimildar til lendingar nokkurn tima. Var talið vist að allir starfs- menn Flugfélags Islands vissu af fyrirhugaðri æfingu, þar sem undirbúningur hennar fór að mestu fram hjá Flugfélagi íslands, og flugumsjón Flug- félagsins og öðru starfsfólk. hess á Reykjavikurflugvelli hafði verið tilkynnt um hana. Slik æfing hlýtur alltaf að vekja ugg með mönnum, ef hún er gerð eins raunveruleg og kostur er, en það ber jafnframt að hafa i huga að þetta er stór liður i að auka öryggi-á Reykjavikur flugvelli. Almannavarnir vilja þakka öllum þeim fjölmörgu, sem tóku virkan þátt i æfingunni og öðrum þeim, sem gerðu það unnt að koma henni i framkvæmd, og siðasten ekki sist Flugmálastjórn sem átti frumvkæði að þvi að æfingin var haldin. JSS/EB Leikur, látbragð, tónlist og dans Siðasta frumsýning Leik- félags Reykjavikur á þessu leik- ári verður 7. júni á Sögunni af dátanum eftir Igor Stravinsky og C.F. Ramus og er það fram- lag félagsins til Listahátiðar. Verkið er flutt i samvinnu við Kammersveit Reykjavikur. Verkið er byggt á rússneskri þjóðsögu um hermanninn, sem selur óvininum sál sina. Það er samið undir lok heimstyrjaldar- innar fyrri og gætir i þvi áhrifa af þeirri siðferðilegu niðurlæg- ingu og fjárhagslegu öngþveiti, sem þjóðir Evrópu urðu að þola i striðinu. Sagan af dátanum er mjög sérstætt leikhúsVerk, en þar er reynt að sameina frásögn leik og dans, en tónlistin gegnir veigamiklu hlutverki. I sýning- unni i Iðnó er enn einum þætti bætt við þessa formfléttu, lát- bragðsleik, en tveir trúðar bregða sér i gervi ýmissg þög- ulla persóna verksins, lita þannig frásögnina. Trúðarnir leika auk þess tákn umhverfis- ins, gefa til kynna stað og stund og koma þannig að nokkru I stað leikmyndar. Með hlutverk þessara trúða fara þau Daniel Williamsson og Valgerður Dan, Jón Sigur- björnsson er sögumaður, Harald G. Haraldsson leikur dátann, en Sigriður Hagalín fenmeð hlutverk djö.fulsins, sem raunar bregður sér i allra kvikinda liki og mun óvenjulegt ef ekki einsdæmi að kona fari með þetta hlutverk. Helga Magnúsdóttir hefur samið list- dansinn i sýningunni en dans- meyjan er Aðalheiður Nanna Ölafsdóttir. Leikstj. er Kjartan Ragnars- son. — Stjórnandi hljómsveitar- innar er Páll P. Pálsson, en hljóðfæraleikar-ar þau Rut Ingólfsdóttir, sem leikur á fiðlu, Jón Sigurðsson, bassi, Gunnar Egilsson, klarinett, Sigurður Markússon ,fagot, Lárus Sveinsson, trompet, Ole Kr. Hanssen, básúna og Jóhannes Eggertsson, slagverk. Sex- sýn- ingar verða á „dátanum” fram til 20. júni. Þosteinn Valdimars- son þýddi textann, leikmynd gerir Jón Þórisson. Alls verða fimm verk á fjölun- um i Iönó á Listahátið. Franski látbragðsleikarinn Yves Lebreton sýnir dagana 14. og 15. júni. Leikur hans nefnist Ha, eða ævintýri herra Ballon. Að- ferð þessa þekkta látbragðs- leikara hefur vakið mikla athygli viða um heim, en hann sameinar i túlkun sinni ýmis einkenni hefðbundins látbragðs- leiks og tiltektir skemmtitrúðs. Umsóknar- frestur rennur út sama dag og auglýsing birtist Auglýsing, er birtist í Alþýðublaðinu í gær, frá AAenntamálaráðuneytinu um lausar skólastjóra — og kennarastöður, vakti athygli margra. Auglýs- ing AAenntamálaráðu- neytis er dagsett 31. maí og kom í blöð 1. júní. Þar eru meðal annars aug- lýstar tvær skólastjóra stöður og kennarastöður við fimm skóla og var umsóknarfrestur til 1. núní, eða sama dag, og auglýsingin birtist. Okkur fannst umsóknarfrestur í styzta lagi og höfðum því samband við Sigurð Helgason hjá ráðuneytinu. Dróst vegna kostnaðar. Hann sagði, að auglýsingin væri búin að biða lengi hjá ráðu- neytisstjóra, þar sem óákveðið hefði verið, hvort hún fengi að birtast vegna kostnaðar. Það væri búið að auglýsa allar þessar stöður, bæði i Lögbirt- ingarblaðinu og i útvarpinu, og þessi auglýsing væri nánast samantekt á þeim, tii að forðast endurtekningu. Að birta þessar auglýsingar i dagblöðum væri algjört nýmæli. Að lokum kvað Sigurður þessar stöður vera um 96% af öllum skólastjóra— og kennara- stöðum, sem auglýstar verða á grunnskólastigjnu, en þar eru m.a. auglýstar um 15 skóla- stjórastöður. ATA Bókagerðarmenn á Norðurlöndum mynda samtök Nýlega var haldinn, i Noregi, fundur, þar sem saman komu fulltrúar hinna ýmsu félaga prentiðnaðarins á Norðurlönd- um. A þessum fundi var gengið frá sameiningu þeirra þriggja sérsambanda sem fyrir hafa verið innan prentiðnaðarins, en hingað til hafa prentarar verið i sérsambandi, offsetprentarar i öðru og bindarar i þvi þriðja. A þessum fundi voru sem sagt þessi þrjú sambönd sameinuð, og sjóðir þeirra þar með lika. Markmiðið með stofnun sam- bandsins var að sameina alla bókagerðamenn undir einu merki og styrkja þannig stöðu þeirra út á viö. Við samruna sjóðanna myndaðist einn gildur sjóður sem nemur 12,7 milljón- um sænskra króna. Mun þessu fé varið til að standa straum af ráðstefnuhaldi auk þess að vera varasjóður ef eitthvert aðilda- félaganna fer i verkfall. Fær hver félagsmaður sem i verk- falli stendur, sem svarar til 100 sænskra króna á viku úr sjóðn- um. Innan prentiðnaðarins á Norðurlöndum munu nú starfa um 93000 manns. Frá íslandi fóru tveir full- trúar á þennan stofnfund, þeir Ölafur Emilsson formaður hins islenzka prentarafélags og Ar- sæll Ellertsson frá Grafiska Sveinafélaginu. 1 viðtali við blaðamann Alþýðublaðsins. sagði Ölafur að hann vænti mikils af samstarfi við starfs- bræður sina á Norðurlöndum, þeir væru lengra á veg komnir i þróuninni en við, og byggju yfir hafsjó af fróðleik, sem gott væri að eiga aðgang að. Taldi hann að aðild að þessu samstarfi væri stórt skref i framfara átt. —gek

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.