Alþýðublaðið - 02.06.1976, Qupperneq 16
MIÐVIKUDAGUR
2. JÚNÍ 1976
Utifundur gegn samningunum
KI. 18 í dag veröur haldinn úti-
fur.dur á Lækjartorgi um land-
helgismálið. Það er samstarfs-
nefndin til verndar landhelg-
inni, sem boðar til fundarins, en
aðild að nefndinni eiga þessir
aðilar: Alþýðusamband
islands, Sjómannasamband
islands, Verkamannasamband
islands, Farmanna- og fiski-
mannasamband islands.
Félag áhugamanna um
sjá varútvegsmál, Alþýöu-
bandalagiö, Alþýðuflokkurinn
og Samtök frjálslyndra og
vinstri manna.
Ræðumenn á fundinum verða
Sigurður Guöjónsson, skip-
stjóri, Ingólfur Ingólfsson,
formaður Véls t jóra f éla gs
islands og Guömundur J.
Guðmundsson formaður Verka-
mannasambands islands.
Fundarstjóri verður Björn
Jónsson forseti ASl.
Fundurinn verður haldinn
undir kjörorðum eins og t.d.
Móti uppgjöf í unnu striði. Gegn
óhæfusamningum.
EB
Islenzki hesturinn getur
sér gott orð í Þýskalandi
Litli hesturinn, sem um aldir
var einkaeign okkar tslendinga,
getur sér nú æ meiri frægð á er-
lendri grund, bæöi i keppnum og
á sýningum.
1 gær lauk i Munchen árlegri
landbúnaöarsýningu, „DLD
aufstillung”. A þessari sýningu
kynnti Samband Islenskra
Samvinnufélaga islenzka hest-
inn viö góöan oröstýr. Þaö var
Gisli B. Björnsson, sem haföi
veg og vanda af þessari
kynningu fyrir hönd Sam-
bandsins. Gisli er nú nýlega
kominn til landsins, og i samtali
viö Alþýöublaöiö sagöi hann, aö
sýning þessi heföi i alla staöi
tekist vel og Islenzki hesturinn
vakiömikla og veröskuldaöa at-
hygli sýningargesta.
Að sögn Gisla komu islenzkir
hestar fram tvisvar á dag á
stórum hringvelli. Hestarnir 6
talsins, eru allt úrvalsgripir.
Þeir eru: Hrafn frá Kröggólfs-
stöðum og Dagur frá Núpum
sem eru nýlega komnir til
meginlandsins. önnurnöfn ættu
að vekja góðar minningar
meöal hérlendra hestaunnenda.
Sigurboöi, Stjami, Glæsir og
Ljósi voru allt þekktir hestar á
Islandsdögum sinum.
2 Kvikmyndir
í sýningarrými SIS voru alla
dagana sýndar tvær kvik-
myndir önnur heitir „Tölt”, og
er um gang islenzka hestsins,
hin er ný mynd sem Kvik tók á
Evrópumeistaramóti islenzkra
hesta, sem haldiö var i
Semriach i Austurriki siöast-
liöiö haust.
Auk þessa var dreift
auglýsingabæklingum og fyrir
þá sem mestan áhuga höföu var
gert „plakat” meö mynd af
islenzkum hesti.
Aö öllu samanlögðu taldi Gisli
að sýning þessi heföi tekist hiö
bezta og væri góö kynning fyrir
hestinn og landið.
ES
Varað við
auglýsinga-
brögðum
tóbaks-
framleiðenda
Krababbameinsfélag Arnes-
sýslu varar sterklega við til-
raunum tóbaksframleiðenda og
umboðsmanna þeirra til að
draga virt almannasamtök t.d.
innan iþróttahreyfingarinnar
inn i auglýsingastarfsemi sina
svo sem meö fyrirhuguðu skák-
móti á vegum sigarettufram-
leiðenda. Jafnframt er fagnað
afstööu Skáksambandsins til
þessa móts og tekiö undir
áskorun þess til skákmanna að
hafna þátttöku i mótinu.
Alyktun þessi var samþykkt
einum rómi á aðalfundi felags-
ins, sem haldinn var nýveriö. A
fundinum varð einhugur um, að
félagiö leggöi áherzlu á fræðslu
á sviði krabbameinsvarna, ekki
sizt með fræðslu um skaösemi
reykinga.
Nú eru um 420 félagar i
Krabbameinsfélagi Arnessýslu
og formaður félagsins er Þór-
hallur B. Ólafsson héraðslæknir
i Hveragerði.
...og svo skal ég
líka gefa þér
nammi i staðinn
fyrir klossana...
Þessa snáða rakst
ljósmyndari okkar
á i góða veðrinu.
Þá er um að gera
að leika sér úti og
vera nógu létt-
klæddur.
alþýöu
blaöið
HEYRT,
SÉÐOG
HLERAÐ
Heyrt: Að Halldór Blöndal,
varaþingmaður Sjálf-
stæöisflokksins, veröi rit-
stjóri tslendings á
Akureyri. Sigrún Stefáns-
dóttir, sem gegnt hefur
starfinu með prýöi um all-
langan tima, er nú hætt og
hefur ráöist til Rikisút-
varpsins. Halldór hefur að
undanförnu stundað
kennslu við menntaskólann
á Akureyri, og hefur oft
komiö viö sögu tslendings.
Frétt: Aö enn hafi bæjar-
ráö Akureyrar ekki fjallaö
um eftirmann Bjarna
Einarssonar, bæjarstjóra,
sem sagt hefur starfi sinu
iausu. Ein umsókn hefur
boriztum starfið, sem ekki
þykir mjög spennandi, þar
eð fyrirsjáanlegir eru tais-
veröir fjárhagsöröugleikar
hjá bænum vegna mikilla
framkvæmda, sem byrjað
hefur verið á og þarf aö
hefja fljótlega.
Tekiö eftir: Að ótrúlega
mikill munur er á frá-
sögnum Visis og Dag-
blaðsins um kaup Reykja-
prents hf. á hlutabréfum i
Reykjaprenti og Járnsiöu
hf.. Visir segir, að kaup-
veröiö sé 63 milljónir
króna, en það eru eigendur
VIsis, sem kaupa. Dag-
blaöið gerir minna úr
upphæöinni og segirhana
vera 24 milljónir (núvirði)
króna, en það voru Dag-
blaösmenn, sem seldu.
Frétt: Aö fyrrnefndur
kaupsamningur á hluta-
bréfum hljóði upp á liölega
63 milljónir króna, sem
greiða á á 15 árum.
Frétt: Að mörg launþega-
samtök séu ákveðin I þvi,
að gera allt, sem i þeirra
valdi stendur til aö koma i
veg fyrir aö samningur
rikisstjórnarinnar viö
Breta um fiskveiöar i land-
helgi, taki gildi. útifund-
urinn i dag sé aðeins einn
liöurinn i þeirri baráttu.
Lesið: 1 Visi I gær: „Lúövik
Jósepsson, formaöur þing-
flokks Alþýöubanda-
lagsins, sagði i samtali viö
norska blaöiö Aftonposten,
aö stjórnarandstaðan gæti
gengiö til samninga, ef þaö
lægi ljóst fyrir að deilan viö
Breta væri endanlega
útkljáö fyrsta desember.
Heyrt: Að meöferöar-
heimiliö að Kleifarvegi 15
verði lagt niður þrátt fyrir
aö flestir þeirra aöila sem
leitað var álits hjá um
framtiöarskipulag með-
feröar- og sérkennslu-
stofnana i borginni, hafi
veriö þvi eindregiö and-
snúnir. A það var bent að
stofnunin aö Kleifarvegi 15
hafi veriö starfrækt þaö
stuttan tima aö ekki veröi
lagður dómur á árangurinn
aö svo komnu máli. Svo
viröist sem máliö hafi verið
keyrt i gegnum stjórnunar-
kerfi borgarinnar og þar
hafi ráöið valdamiklir em-
bættismenn.