Alþýðublaðið - 05.08.1976, Blaðsíða 5
SKÍí Fimmtudagur 5. ágúst 1976.
ÚTLðMD 5
Deilur Tyrkja og Grikkja um
yfirráð á eynni Kýpur, sem hóf-
ust 15. júli 1974, höfðu i för með
sér alvarlegar afleiðingar fyrir
ibúa eyjarinnar. Meira en 230
þúsund manns (rúmlega
þriðjungur eyjarbúa) urðu að
yfirgefa heimili sin og setjast að
sem flóttamenn viðsvegar á
eynni. Þetta hefur valdið
algerum aðskilnaði hinna
grisku- og tyrkneskumælandi
þjóðarbrota, sem búa á Kýpur.
Nú, tveim árum siðar, búa
mörg þúsund flóttamenn enn i
tjöldum. Aðrir hafast við i vöru-
geymslum, bilskúrum, hálf-
byggðum húsum, bráða-
birgðaskýlum, eða i troðfullum
herbergjum i gömlum húsum.
Fjárhagsstaða rikisins hafði
farið sibatnandi siðastliðinn
áratug og atvinnuleysi þekktist
varla. Nú hefur þetta allt
hrunið til grunna. 1 dag eru um
20% ibúanna atvinnulausir:
flestir þeirra atvinnulausu eru
flóttamenn.
1 ágúst 1974 var Sadruddin
Aga Khan, yfirmaður Flótta-
mannahjálpar Sameinuðu Þjóð-
anna, skipaður yfirumsjónar
maður aðstoðar við flóttamenn
á Kýpur. Þegar i ágúst 1974 var
byrjað að sendamat, lyf, fatnað
og tjöld til allra þeirra sem þess
þurftu með á eynni. Enn
þann dag i dag er haldið uppi
viðtækri aðstoð við ibúana,
einkum hvað varðar matvæli,
aðstoð við húsnæðisöflun,
menntamál og heilsugæzlu.
Upphæð sú sem varið hefur ver-
ið til flóttamannahjálpar á
Kýpur nemur nú um 39 milljón-
um Bandarikjadala.
Meðfylgjandi myndir fékk
Alþýðublaðið sendar frá
Flóttamannahjálp Sameinuðu
Þjóðanna, en þær tók Jean Mohr
á Kýpur fyrir skömmu.
Mörg þúsund
Kýpurbúa hafast
við í tjöldum
Þessi börn búa i Stavros
f lóttamannabúðunum,
sem eru skammt frá
Níkósiu á Kýpur. Þau
hafa dvalizt þarna í tvö
ár og hafa gleymt
hvernig það var að búa
við önnur og betri kjör en
þau hafa nú.
◄
Börn í flóttamannabúð-
unum i Stavros á Kýpur.
Flóttamenn hafa fengið
aðstoð frá Sameinuðu
Þjóðunum og stjórninni á
Kýpur. Flóttamanna-
hjálp Sameinuðu Þjóð-
anna hefur varið 39
milljón dollurum til að-
stoðar flóttamönnum á
Kýpur.
Þessi gamla kona, sem
þurfti að yfrigefa heimili
sitt sumarið ,74, býr nú í
tjaldi ásamt sjö öðrum
gömlum konum rétt hjá
elliheimilinu í Larnaca á
Kýpur. Það reyndist
nauðsynlegt að koma upp
tjaldbúðum þarna, því
f jöldi gamals fólks í hópi
flóttamanna var það
mikill, að öll elliheimili
urðu yfirfull á svip-
stundu.